Fréttablaðið - 13.06.2020, Page 62
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Við erum ekki ein um slíkt gósenland, enda finnast gullfallegir náttúrulegir
baðstaðir víða um jörðina sem gefa
íslensku laugunum ekkert eftir.
Japan og Ísland eru að mörgu
leyti líkir staðir þar sem bæði
liggja á f lekasamskeytum, sem
stuðlar að tíðum jarðskjálftum
og eldvirkni. Á báðum stöðum
finnst töluvert af heitu hveravatni
sem íbúar hafa verið duglegir að
nýta sér til góðs. Náttúrulaugar og
laugar þar sem heitt hveravatn er
notað, finnast víða um Japan líkt
og á Íslandi og eru alla jafna kall-
aðar „onsen“ sem á íslensku merkir
„heitavatnshver“. Onsen hug-
takið er notað yfir ýmsar gerðir
náttúrulauga, sem finnast annað
hvort undir beru lofti eða eru
yfirbyggðar. Miklar hefðir fylgja
onsen-baðferðum og á hefðbundn-
ari onsen klæðast sundgestir ekki
baðfatnaði.
Fyrir um fimm árum síðan
hafði um helmingur onsen-bað-
staða bannað húðflúruðum ein-
staklingum að nýta sér aðstöðuna.
Ætlunin var að koma í veg fyrir
að meðlimir glæpagengja, sem
þekktust af útflúruðum kroppum
sínum, nýttu sér onsen-baðstaði.
Bannið gildir enn í dag á mörgum
stöðum, en einnig er til fjöldi
onsen-baðstaða í Japan sem leyfa
húðflúr, eða biðja fólk um að hylja
f lúr sitt.
Baðmullarkastali
Tyrkland býr yfir einni fallegustu
Bestu
baðstaðir
veraldar
Við Íslendingar höfum lengi búið að
einni bestu baðaðstöðu veraldar í
bakgarðinum, með heitt hveravatn,
jarðsjó, náttúrulaugar og sundlaugar í
hverju einasta krummaskuði.
Onsen laugarn-
ar í Japan eru
vinsælir ferða-
mannastaðir.
Laugarnar í Pamukkale einkennast af hvítum útfellingum og túrkísbláu vatni.
Mikil selta vatnsins gerir það að verkum að maður flýtur eins og korktappi í því.
Enski leikarinn Rupert Grint, sem er best þekktur fyrir að leika Ron Weasley í kvik-
myndunum um Harry Potter,
hefur grætt verulega á fasteigna-
viðskiptum, en eignir hans eru
taldar vera rúmlega fjögurra
milljarða króna virði.
Leikarinn fjárfesti stóran hluta
af launum sínum fyrir hlutverkið
í Harry Potter í fasteignum og var
nýlega að bæta eignum að andvirði
tæplega tveggja milljarða króna
við eignasafnið. Grint hefur unnið
að því að byggja eignasafnið upp
árum saman og hefur stofnað
þrjú arðbær fasteignafyrirtæki
sem halda utan um rekstur þess.
Eitt þeirra fjárfesti í fasteignum
að andvirði tæplega 1,4 milljarða
króna á síðasta ári og annað er að
kaupa upp fasteignir rétt fyrir utan
London.
Grint er sagður fær fjárfestir og
Fasteignaveldi Ruperts Grint
Enski leikarinn
Rupert Grint
hefur grætt
verulega á
fasteignavið-
skiptum. MYND/
GETTY
náttúrulaug sem fyrirfinnst á
jarðríki. Laugarnar í Pamukkale,
sem merkir baðmullarkastali, er
að finna nálægt borginni Deinizli
í suðvestur Tyrklandi. Svæðið
er þekkt fyrir náttúrulaugar á
skjannahvítum klettasyllum, en
hvíti liturinn stafar af karbónít-
útfellingum úr vatninu, sem setjast
á steininn fyrir neðan. Svæðið er
hlaðið goðsögnum og eru til frá-
sagnir af því að Kleópatra sjálf hafi
baðað sig í þessum laugum.
Fljóta eins og korktappar-
Dauðahafið hefur löngum verið
vinsæll áfangastaður fyrir baðfúsa
gesti, enda býr það yfir alveg sér-
stökum eiginleika. Um er að ræða
stórt stöðuvatn á landamærum
Ísraels og Jórdaníu. Vatnið er
staðsett í lægð sem er framhald af
Austur-Afríku sprungunni.
Hinn sérstaki eiginleiki bað-
staðarins kemur til vegna gríðar-
legrar seltu, sem einnig verður til
þess að ekkert líf þrífst í vatninu,
hvorki fiskar né aðrar sjávarlífver-
ur. Eina lífið sem finnst í brimsöltu
vatninu eru smásæir þörungar og
gerlar. Selta Dauðahafsins er um
tíu sinnum meiri en sjávarins, en
ástæða þessarar miklu seltu er
að þar ríkir ójafnvægi milli inn-
streymis og útstreymis. Áin Jórdan
og aðrar minni ár streyma í Dauða-
hafið og leggja því til vatn. Hins
vegar er vatnið undir sjávarmáli og
því ekkert útstreymi úr því.
Uppleyst efni eins og sölt og
steinefni, sem berast í Dauðahafið
með árvatninu, ná ekki að gufa
upp og sitja þar eftir, sem veldur
því að seltan eykst statt og stöðugt.
Selta Dauðahafsins liggur við
mettun, sem verður til þess að salt
fellur út jafn hratt og það bætist
við. Þessi gífurlega selta gerir það
að verkum að eðlismassi Dauða-
hafsins er 1,24 kg/l, sem er mun
meiri en eðlismassi sjávar, og er
ástæða þess að menn fljóta eins og
korktappar um þetta massamikla
vatn.
hann kaupir fjölbreyttar fast-
eignir, bæði leiguíbúðir og fínni
einbýlishús. Hann er 31 árs gamall
og hann og kærasta hans, Georgia
Groome, eignuðust sitt fyrsta barn
í síðasta mánuði.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R