Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 10
8
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Þetta var mjög spennandi
hlaup. Jóhann, seni hljóp á 2.
braut, fór fljótt fram úr Brynj-
ólfi, á 3. braut, og dró ört á
Sigurgeir, sem liljóp á yztu
brautinni. Þegar komið var út
úr síðari beygjunni var Jóhann
orðinn fyrstur, en það stóð að-
eins skamma stund, því að Sigur-
geir náði honum aftur á loka-
sprettinum og kom i mark 2
metrum á undan. Brynjólfur dró
mjög á þá báða í endann. Tím-
inn er góður með tilliti til veð-
urs, sem var kalt og' óhagstætt.
— Metið er 52.6 sek.
Sigurgeir Ársælsson.
800 metra hlaup. mín.
1. Sigurgeir Ársælss. (Á.) 2:04.2
2. Hörður Hafliðason (Á.) 2:06.3
3. Árni Kjartansson (Á.) 2:07.6
4. Brynj. Ingólfsson (K.R.) 2:08.3
Árangurinn í þessu hlaupi er
mjög jafngóður, þvi af 7 þátt-
takendum voru 6 undir 2:10.0
mín. Brynjólfur leiddi fyrri
hringinn og fór liratt, en varð
skömmu síðar að slá af ferðinni,
enda kom Sigurgeir þá til sög-
unnar og tók forustuna og sig-
urinn í sínar hendur. Þeir Hörð-
ur og Árni unnu mikið á i loka-
sprettinum. Tíminn er góður og
jafn eins og áður er sagt. —
Metið er 2:00.2 mín.
1500 metra hlaup. mín.
1. Sigurgeir Ársælss. (Á.) 4:21.0
2. Árni Kjartansson (Á.) 4:23.6
3. Hörður Hafliðason (Á.) 4:24.0
4. Indriði Jónsson (K.R.) 4:26.0
í byrjun leiddu tveir I. R.-ing-
ar hlaupið, en síðan tók Sigur-
geir við og Indriði (K. R.) og
hinir Ármenningarnir fóru að
draga á. Árni og Hörður unnu
— eins og áður — á i lokasprett-
inum og fóru þá báðir fram úr
Indriða. Þetta var hressilegt
hlaup. 9 keppendur og þar af
7 undir 4:30.0 mín. er víst eins-
dæmi liérlendis. Tími 1. manns
er þó ekki eins góður og oft áð-
ur. — Metið er 4:11.0 mín.
5000 metra hlaup. mín.
1. Haraldur Þórðars. (Á.) 17:38.8
2. Indriði Jónsson (K.R.) 17:40.6
3. Árni Kjartansson (Á.) 17:43.4
Veður var óhagstætt (sama
kvöldið og 400 mtr. hlaupið) og
því ekki von á mikið betri tíma.
Hér vantaði Sigurgeir mjög til-
finnanlega. Hefði þá verið hlaup-
ið undir 17 mín. Haraldur vann,
sem fyrr, á endasprettinum og
úthaldinu. — Metið er 15:23.0
mín. og virðist muni eiga langt
líf fvrir höndum.
10.000 metra hlaup. mín.
1. Sigurgeir Ársælss. (Á.) 35:25.0
2. Har. Þórðarson (Á.) 35:28.2
3. Indriði Jónsson (K.R.) 36:41.8
Hér kom Sigurgeir aftur til
sögunnar og' sigraði auðveldlega
á endasprettinum; en hann hefir
aldrei hlaupið svona langt áður.
Indriði fékk sting um mitt hlaup-
ið og dróst við það aftur úr. —
Metið er 34:06.1 mín.
110 metra grindahlaup. sek.
1. Jóliann Jóhannesson (Á.) 18.6
2. Sigurður Norðdahl (Á.) 20.4
3. Baldur Möller (Á.) 22.7
Jóhann var langbeztur eftir
venju, þótt hann næði ekki góðu
viðbragði. Tveir K. R.-ingar
urðu að liætta við þátttöku vegna
hástökksins, sem var fært aftur
á leikskránni. Hefði verið gam-
an að sjá t. d. Skúla Guðmunds-
son keppa í þessari grein. Ár-
angurinn er svipaður og áður,
þolanlegur á íslenzkan mæli-
kvarða, en annars heldur léleg-
ur. — Metið er 17.0 sek.
10.000 metra ganga. mín.
1. Steingr. Atlas. (F. H.) 64:07.2
2. Magn. Guðbj.s. (K.R.) 69:09.8
3. Hörður Kristóf.s. (Á.) 69:52.4
Gangan var óvenju tilþrifalítil
að þessu sinni, enda vantaði
Hauk Einarsson, sem um mörg
undanfarin ár hefir verið ósigr-
andi í henni. Steingrímur og
Magnús liafa náð miklu betri
tima áður. •— Metið er 52:48.2
mínútur.
4 X 100 metra boðhlaup. sek.
1. A-sveit K. R...............46.7
2. A-sveit Ármanns .......... 47.5
3. F. H. sveitin ............ 47.7
4. B-sveit Ármanns .......... 49.4
Þetta var skemmtilegt hlaup
eins og boðhlaup eru venjulega.
K. R.-sveitin náði strax góðu for-
skoti á fyrsta sprettinum og
hljóp síðan sitt hlaup „fyrir
framan“ hinar sveitirnar. F. H.
virtist um stund ætla að verða
Ármanni erfitt, en endamaður
Ármanns (Baldur) hélt sínu for-
skoti að mestu leyti og kom í
mark 1% mtr. á undan Óliver.
Nöfn sigurvegaranna eru þessi:
Jóh. Bernhard, Sverrir Emilsson.
G. Huseby og Brynj. Ingólfsson.
Tíminn er mjög sæmilegur. —
Metið er 45.0 sek.
1000 metra boðhlaup. min.
(100, 200, 300, 400 mtr.).
1. A-sveit K. R............ 2:09.9
2. A-sveit Ármanns......... 2:10.0
3. B-sveit Ármanns......... 2:14.0
4. F. H.-sveitin ............2:15.5
Þetta var eitt af mest spenn-
andi hlaupum mótsins. K. R.
leiddi eftir fyrstu 100 mtr. og á