Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 20
18
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
leikamenn, sem það hefir áll
bæði fyrr og síðar. Á seinni ár-
um liefir það mjög látið skíða-
íþróttina til sín taka og frjálsar
iþróttir, og á marga aíbragðs-
menn í báðum greinum. Stjórn
félagsins skipa nú: Torfi Þórðar-
son, form., Helgi Jónasson frá
Brennu, Óskar A. Gíslason, Gunn-
ar Steindórsson og Helgi Guð-
jónsson.
Sundmót K. R. fór fram 26.
marz s.l. Úrslit urðu þessi:
100 mtr. frjál.s aðferð, karlar.
Stefán Jónsson (Á.) 1:5.6 mín.
200 mtr. bringusund, karlar.
Sig. Jónsson (K. R.) 2:59.9 mín.
100 mtr. frjáls aðferð,
drengir innan 16 ára.
Árni Guðm.s. (Æ.) 1:16.3 mín.
50 mtr. baksund, karlar.
Guðm. Þórarinss. (Á.) 39.6 sek.
100 mtr. bringusund, konur.
Sigríður Jónsd. (K.R.) 1:43.1 mín.
k x 50 mtr. boðsund.
Sundfélagið Ægir 2:27.7 min.
Auk þessara sundkeppna sýndu
8 stúlkur úr K. R. undir stjórn
Jóns Inga Guðmundssonar list-
sund. Var þessi sýning, í geisla-
flóði ljóskastaranna, bin feg-
ursta.
Anton B. Björnsson.
Einmenningskeppni í fimleikum
hélt K. R. í marzmánuði. Sjö
K. R.-ingar tóku þátt í keppninni.
Hlutskarpastur varð Anton B.
Rjörnsson og lilaut'þar með nafn-
bótina fimleikameistari K. R. —
Anton er prýðilegur leikfimis-
maður og yfirleitt mjög fjölhæf-
ur og áhugasamur íþróttamaður.
Glímunámskeið. Mjög fjöl-
mennt glímunámskeið var haldið
í hændaskólanum á Hvanneyri i
vetur. Af um 50 nemendum skól-
ans tóku 40 þátt í námskeiði
þessu, sem verður að teljast fá-
dæma g'óð þátttaka. Kennari var
liinn ágæti glímumaður og fvrv.
glímukóngur Kjartan B. Guð-
jónsson. Slík námskeið þyrftu að
vera haldin sem víðast um land,
nú frekar en nokkru sinni áður.
Skólastjórinn á Hvanneyri, Run-
ólfur Sveinsson, á þakkir skilið
fyrir að koma þessu námskeiði
á. Að námskeiðinu loknu var
háð kappglíma um glímuhikar
Hvanneyrar og hlaut hann Stefán
Sigurþórsson.
Handknattleiksmóti íslands lauk
hinn 30. marz s.l. íslandsmeist-
ari varð knattspyrnufélagið Val-
ur eins og i fyrra. Léku Valur
og Víkingur úrslitaleikinn og
sigraði Valur með 19 mörkum
gegn 13, en eftir fyrri liálfleik
höfðu Víkingar eitt mark yfir
(9—8). I 1. flokki varð I. R. sig-
urvegari. Sigraði það Val í úr-
slitaleiknum með 30 mörkum
gegn 16. I 2. flokki varð Ármann
sigurvegari. Keppti úrslitaleikinn
við Hauka úr Hafnarfirði og
vann ineð 10 gegn 5. í flokka-
keppni kvenna urðu Ármenn-
ingar sigurvegarar. Allir leikirn-
ir fóru fram í iþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar.
Skíðamótið var háð á Akureyri
um páskana. Um tíma leit út
fyrir, að fresta yrði mótinu vegna
snjóleysis, enda var víðast svo
snjólétt í vetur, áð' skíðamótin
urðu að falla niður. Sunnlenzku
og vestfirzku skíðamennirnir
gátu ekki sótt landsmótið að
þessu sinni, og voru það þvi ein-
ungis Norðlendingar, sem þátt
tóku í mótinu. Þessir urðu meist-
arar í A-flokki: 18 km. ganga:
Guðm. Guðmundsson (Skíðafell).
Stökk: Sigurgeir Þórarinsson
(Skiðaborg). Svig: Björgvin Jún-
íusson (Akureyri). Ganga og
stökk (samanlagt): Jónas Ás-
geirsson (Skíðahorg) og hlaut
þar með nafnbótina Skiðakóng-
ur íslands. Er þetta í 3. sinn,
sem Jónas hlýtur þá nafnbót. I
B-flokki urðu þessir sigurvegar-
ar: 18 km. ganga: Erlendur Stef-
ánsson (Skíðaborg). Stökk: Sig-
urður Njálsson (Skíðaborg).
Svig: Ásgr. Stefánsson (Skíða-
fell).
Víðavangshlaup I. R. hið 27.
í röðinni var háð 23. apríl s.l.
(fyrsta sumardag). Þrjár sveiíir
kepptu, 2 frá Ármanni og 1 frá
K. R. A-sveit Ármanns sigraði
ineð 6 stigum, átti 1., 2. og 3.
mann. B-sveit Ármanns fékk 19
stig, en sveit K. R. var ekki full-
skipuð og kom því ekki til greina
við stigaútreikninginn. Fyrstur
að marki varð Sigurgeir Ársæls-
son á 14 mín. 33.2 sek., annar
varð Haraldur Þórðars. á 14:37.8
en þriðji Árni Kjartansson á
14:44.4.
Skíðamót Reykjavíkur fór fram
í Innstadal þann 26. april. Vegna
snjóleysis var aðeins hægt að
keppa í svigi. í A- og B-flokki
voru 4 keppendur og varð þar
fyrstur Magnús Árnason (í. R.)
á 68.8 sek., en í C-flokki Harald-
ur Árnason (I. R.) á 54.6 sek.
Drengjahlaup Ármanns var háð
26. apríl s.l. Þátttakendur voru
15: frá Ármanni, 1. R. og K. R.
Sveit I.R. sigraði með 7 stigum,
átti 1., 2. og 4. mann, K. R. hlaut