Íþróttablaðið - 01.03.1943, Qupperneq 15
IÞRÖTTABLAÐIÐ
11
Ný sambandsfélög Í.S.Í.
Þessi félög hafa nýlega gengið i
sambandið:
U.M.F. Hjalti í Hjaltadal, félagar
45, form. Friðrik Rósmundsson.
íþróttafélag Þingeyinga, félagar 12,
form. Sigfús Jónsson.
U.M.F. Ársæll, Öngulstaðahreppi, fé-
lagar 54, form. Ingólfur Pálsson.
Skíðafélagið Þróttur, Hjalteyri, fé-
iagar 34, form. Sigurður Baldvinsson.
249 æfifélagar Í.S.Í.
Siðan á áramótum hafa 80 menn
gerzt æfifélagar Í.S.Í. og eru þeir nú
alls 249.
íþróttablaðið.
í þessu blaði varð því miður ekki
hæg't að birta úrslit frá Skiðamótinu
í Hveradölum, en ítarleg frásögn um
mótið bíður næsta blaðs og verða
jafnframt birtar fjölmargar myndir
frá mótinu. í næsta blaði verður grein
um landsmótið í handknattleik, fram-
hald af skíðakennslu Steinþórs Sig-
urðssonar o. fl.
Kaupendur íþróttablaðsins! Útveg-
ið hver ykkar 1 kaupanda og sendið
nafn hans og heimilisfang til Þórar-
ins Magnússonar, Haðarstíg 10. Með
þvi móti er útgáfu blaðsins ekki að-
eins borgið, lieldur verða þá einnig
tök á að stækka blaðið og auka fjöl-
breytni þess.
Sundlaugabyggingar á Austurlandi
Tvær sundlaugar eru nú þegar i
smíðum auk Eiða-sundhallar. Önnur
er á Þórshöfn, en hin í Neskaupstað.
Tilvera beggja þessara lauga byggist
á kælivatni og reykhita aflvéla, eins og
sundlaugarnar á Siglufirði og Flat-
eyri. Þórshafnarlaugin verður 5x12,50
m2 en Neskapstaðarlaugin 8x25 m2.
Á Búðum við Fáskrúðsfjörð er einnig
verið að undirbúa sundlaugarbyggingu
(5x12.5 m2). Eini jarðliitastaðurinn i
hyggð á Austurlandi er i Selárdal i
Vopnafirði. Ileita vatnið kemur upp í
árgili. Þar var byggð laug fyrir nokkr-
um árum, en áin braut hluta af henni.
Nú á að hefjast handa í Vopnafirði og
bæta úr þessu.
Frá Eskifirði.
Guttormur Sigurbjörnsson er um-
ferðar-íþróttakennari ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands. Hann
befur það, sem af er vetri starfað ein-
göngu á Eskifirði.
Leikfimihús.
Á landinu eru 13 leikfimihús núna
nothæf. 3 eru í smíðum. Auk þessa
eru til um 10 leikfimi- og samkomu-
hús. í Reykjavík hafa í vetur aðeins
verið 4 starfhæfir salir fram að jól-
um, en eftir jólin 5.
Ársþing Knattspyrnuráðs Rvíkur.
Var lialdið 22. febr. og 26. febr. s.l.
Formaður var kosinn Ólafur Sigurðs-
son. Mörg mál rædd, sem varða lög,
reg'lur, æfingasvæði og tryggingamál.
Meðal þeirra mála,sem knattspyrnu-
þingið hafði með höndum, var svo-
hljóðandi tilmæli til knattspyrnufé-
Iaganna í Reykjavík, varðandi kennslu
í knattspyrnu, fimleikum og öðrum
íþróttum:
„Knattspyrnuþingið beinir þeim til-
mælum til knattspyrnufélaganna i
Reykjavík, að þau beiti sér fyrir því
hvert í sínu lagi eða öll í sameiningu,
að ungir og efnilegir íþróttamenn
fari svo fljótt sem auðið er utan til
að læra kennslu í knattspyrnu, fim-
leikum og öðrum íþróttum með það
fyrir augum, að þeir verði svo at-
vinnu-knattspyrnukennarar hér á
landi.“
Var ályktun þessi samþykkt. Sömu-
leiðis var því beint til Knattspyrnu-
dómarafélags Reykjavíkur, að það
gengizt fyrir dómaranámskeiði síðari
hluta þessa vetrar.
Við þingslitin kom Gísli Sigur-
björnsson fram með uppástungu þess
efnis að Knattspyrnuráð Reykjavíkur
leitaðist fyrir um það, hvort ekki væri
tök á að fá hingað knattspyrnuþjálf-
ara frá Svíþjóð á sumri komanda.
Hnefaleiksmót glímufél Ármanns.
13. febr. s.l. fór hnefaleiksmót Ár-
manns fram í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar.
Keppendur 16. Skiftust þeir niður
í 7 þyngdarflokka. Til keppninnar
var vel búið og keppendur snyrtilegir.
Viðureignirnar fóru vel fram og sást
hvergi ódrengskapur eða illska. Sýni-
lega er þessari íþrótt að vaxa hér
virðing og keppendur taka iþróttina
alvarlega, sem íþrótt, en ekki sem
þjálfun undir það að verða „slags-
málahundar“. Leitt að heyra og sjá
live fólkið vanvirðir leikni keppend-
anna, með því að æpa eftir dáhögg-
um. Svölun fékk fólkið með því að
Hrafn Jónsson í þungvigt .sló Andrés
Bjarnason í dá tvívegis og vann á því
seinna. Nöfn sigurvegaranna:
Hrafn Jónsson.
Þungvigt:
Hrafn Jónsson.
Léttþungavigt:
Matthías Matthiasson.
Millivigt:
Gunnar Ólafsson.
Veltivigt:
Björn Rósinkranz.
Léttvigt:
Arnkell Guðmundsson.
Fjaðrarvigt:
Jóel Blomquist.
Bantamvigt:
Stefán Magnússon.