Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1943, Side 16

Íþróttablaðið - 01.03.1943, Side 16
12 IÞRÓTTABLAÐIÐ Sundmót K.R. Á sundmóti K.R. í Sundhöllinni 14. marz s.l. voru 2 sundmet sett: í 200 m. bringusundi af Sigurði Jónssyni K.R. 2 m. 57,1 sek., gamla metið var 2 m. 57.3 sek., og í 50 m. bringusundi kvenna af Sigríði Jónsdóttur K.R. 43.9 sek., eldra metið var 44.8 sek. Þau Sigurður og Sigríður eru systkini. Urslit í einstökum sundum urðu þessi: 100 m. frjáls aðferð, karla... 1. Stefán Jónsson Á. 1 m. 5,4 sek. 2. Rafn Sigurvinsson IÍ.R. 1 m. 6,8 s. 3. Einar Hjartarson Á. 1 m. 14,0 sek. í sundið voru skráðir 7 keppendur, en aðeins 3 komu til leiks, vegna veikinda. 200 m. bringusund, karla. 1. Sigurður Jónsson K.R. 2 m. 57,3 s. 2. Sigurjón Guðjónsson Á. 3 m. 10,0 s. Siguröur Jónsson. Sigurður hafði forystu alla leið og synti með mjög stórum og skriðdrjúg- um tökum. 200 m. bringusund, drengja innan 16 ára. 1. Halldór Lárusson íþr.f. Reykhylt- ing'a 3 m. 16,9 sek. 2. Einar Sigurvinsson K.R. 3 m. 27,0 s. 3. Hörður Jóhannesson Æ. 3 m. 31,0 s. Árangur Halldórs Lárussonar er sérstaklega góður af svo ungum manni. 50 m. baksund, karla. 1 Logi Einarsson Æ. 36,9 sek. 2. Guðm. Þórarinsson Á. 38,9 sek. 3. Guðm. Ingólfsson K.R. 39,7 sek. og Pétur Guðjónsson Á. á samá tíma 39,7 sek. Á þessu sundi sýndi Logi greinilega yfirburði, hafði mjúkan og fallegan sundstíi eins og á öllum öðrum sund- aðferðum. Aðrir keppendur syntu all sæmilega, mega l)ó bæta stíl sinn að mun, harðasta keppnin var milli Guðm. T. og Péturs G. 50 m. bringusund, kvenna. L Sigríður Jónsdóttir K.R. 43,9 sek. 2. TJnnur Ágústsdóttir K.R. 44,8 sek. Sigríður Jónsdóttir. Var hér um harða keppni og ágæt- an árangur að ræða, önnur á mettima cn hin undir meti. 50 m. frjáls aðferð, drengir innan 16 ára. 1. Halldór Bachmann Æ. 32,3 sek. 2. Marteinn Kristinsson Æ. 37,0 sek. 3. Baldur Zophóníasson Æ. 37,7 sek. Hér vantaði 3 af 7 keppendum til leiks vegna veikinda. Eins og fyr bar Halldór af í þessu sundi, þótt hinir svntu rösklega. 400 m .frjáls aðferð karla. 1. Guðm. Jónsson Æ. 6. m. 28,5 sek. 2. Sigurg. Guðjónss. Iv.R. 6 m. 36,5 s. 3 Pétur Eiríksson K.R. 6 m. 50,3 sek. Árangur á þessu sundi er slærnur og sýnir því miður mikla afturför á þessari vegalengd, er það leitt ef lengri sundin þurfa að leggjast niður fyrir leti betri sundmanna félaganna, við að æfa fyrir þau. 4x50 m. boð-bringusund, karla. 1. A-sveit K.R. 2 m. 28,6 sek. 2. Sveit Ármanns 2 m. 28,8 sek. 3 B-sveit K.R. 2 m. 43,7 sek. Eftir þessu sundi var beðið með ó- þreyju, enda sveik það engan, sveit- irnar voru svo jafnar frá upphafi til enda, að ómögulegt var að sjá hver sigra mundi fyr en á síðasta augna- bliki. Yfirleitt má segja að sundfólkið hafi sýnt góða frammistöðu sér og kenn- urum sínum til sóma og ánægju Sund- in voru skemmtileg á að horfa en gangur mótsins var ekki góður, sund- in hyrjuðu 15. m. á eftir tilsettum tima og' virtist g'anga í þófi milli sunda. Tímatilkynning var afleit. Sundhöllin verður að fá sér betri til- kynningatöflur og' Teikstjóri þarf að nota kalltrekt ef tala þarf til fólksins. Þ. Magnússon. Frá Seyðisfirði. Þar hefur dvalið Stefán Þorleifs- son íþróttakennari i Neskaupstað og haldið fimleikanámskeið fvrir konur og lcarla og skólabörn. Frá Búðum, Fáskrúðsfirði. Síðan leikfimishúsið var byggt og börn Vöndust íþróttánámi hefur í- þróttaáhuginn vaxið. Gunnar Ólafsson íþróttakennari, sem um leið er kenn- ari í almennum fögum skólans, hefur unnið þarna ágætt starf. Nú hefur hann í vetur haldið uppi íþrótta- kennslu 3 kvöld í viku og hafa 25 konur og 30 karlar notið kennslu i íþróttum að staðaldri. Gunnar hefur einnig kennt á skíðum og á sumrum handknattleik og frjálsar iþróttir. I----------------------------------—“ í Þ R Ö T T A B L A Ð IÐ. Útgefandi: íþróttablaðið li/f. Iíitstjóri: Þorsteinn Jósepsson. Ritnefnd: Benedikt Jakobsson, Þorsteinn Einarsson. Blaðstjórn: Ben. G. Waage, Kristján L. Gestsson, Jens Guð- björnsson, Sigurjón Pét- ursson, Þorst. Einarsson. Afgreiðslum.: Þórarinn Magnússon, Haðarstíg 10. Utanáskrift: íþróttablaðið, Póst- hólf 367, Reykjavík. Verð: Kr. 20.00 pr. árg. Kr. 2.50 pr. tbl. Herbertsprent -------------------------------------J

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.