Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1945, Síða 14

Íþróttablaðið - 01.06.1945, Síða 14
6 ÍÞRÓTT ABL AÐIÐ hann þá út í vatnið upp í axlir og gat náð í bróður sinn og dreg- ið hann á land. Síðan dró hann upp netið og kom prestur þá upp með djúptoginu, er flækst hafði um hann. Virtist þeim bræðrum liann dáinn og lögðu hann til, án þess að hafa tilraun- ir nokkrar honum til endurlífg- unar, því að þá skorti ráðdeild og kunnáttu til þess. Fóru þeir siðan heim og sögðu tíðindin. Lík- ið var tafarlaust sótt, flutt að Hrauni og þaðan húið til greftr- unar“. Þessi er frásagan um dauða Hallgríms föður Jónasar. Jónas var þá 9 ára og mjög hændur að föður sínum. Söknuður lians mun hafa verið sár og oft verð- ur lians vart í Ijóðum Jónasar, t. <i. í þessum erindum: „Ungur var ég forðum fór ég einn saman föður sviftur, er fremst mér unni; þannig liðu langir dagar meini blandnir á marga lund. Þá var ég ungur, er unnir luku föðuraugum fyrir mér saman; man ég þó missi minn í heimi fyrstan og sárstan, er mér faðir hvarf“. Þessi atburður mun ávallt hafa verið Jónasi minnisstæður. Jónas var fæddur náttúrufræð- ingur, sem leitaði að orsökum. Sú gáfa mun hafa sýnt honum snemma hvað sundknnnáttan getur skirrt miklum vandræð- Um. Hann hefur því áreiðanlega mjög, vegna ])ess viljað stuðla að því,að sundkunnáttan fækk- aði slíkum slysum. Hin sérstaða Jónasar, kynni hans af starfi Jóns Þ. Kjærne- steðs, hefur fært honum heim- sanninn um nauðsyn leiðbein- inga um byggingu sundstaða, starfrækslu þeirra og' að menn gætu lært sund af sjálfum sér með skriflegri fyrirsögn og síð- ast en ekki sizt ýmsar varúðar- ráðstafanir. V. Áhrif sundreglanna á sundiðk- anir íslendinga eru mikil. Þau eru sum sýnileg. Þar á ég við fyrirhleðslur og sundhylji, sem enn ájást sem grasigrónar lautir víða um land og eru frá þessum sundörvunarárum. Víða er illt að segja með vissu um tilveru þessara gömlu sundstaða. Einn er til frá dögum Guðbrandar biskups Þorlákssonar, svo eru enn aðrir frá upphafsárum ung- mennafélaganna. Fjölnismenn hrifu landsmenn úr „holtaþokunni“ með eggjun- arorðum sínum jafnt í bimdnu og óbundnu máli. Þeir hrifu æskulýðinn til þess að endur- vekja íþróttir feðra sinna. Ör- uggt er, eins og Ólafur Davíðs- sön getur um, að Sund-Gestur var fenginn til kennslu til ýmsra byggðarlaga fyrir áhrif frá sund- reglum Fjölnismanna. VI. Björn Jónsson ritstjóri gaf sundreglurnar út í annarri útgáfu sumarið 1891, i tilefni af því, að þá var í 4. eða 5. sinn tekin upp sundkennsla við Laugarnar í Reykjávík. Sundkennslan bafði lagst þar niður 1887 við drukkn- un Björns Blöndals sundkenn- ara, en 1891 hefur Páll Erlings- son sundkennslu. Með honum hefst nýr þáttur í sundsögu Is- lendinga. Við eignumst sund- kennara sem helgar sig sund- kennslunni og við getum sagt að það stofnist sundskóli, sem enn starfar og hefur haft víð- tæk álirif á sundmennt okkar. Það er einnig annar atburður sundsögunnar tengdur við árið 1891, en hann er sá, að stiptsyf- irvaldið gengst fyrir því, að skólapiltar úr einum bekk Lat- ínuskólans taka þátt í sundnám- inu og með því var stigið fyrsta sporið af hálfu þess opinbera að gera alla skólagengna menn synda. Björn Jónsson mun hafa átt frumkvæðið að báðum þessum ráðstöfunum. Fyrst að Páll Er- lingsson var fenginn til sund- kennslu og námskeiðinu hrint á á stað og svo í öðru lagi að námssveinunum var gefinn kost- ur á sundnámi. Björn Jónsson lagfærði ýms atriði í sundreglunum, sem reynslan hafði sýnt að betur bentaði og eins ritaði bann mjög fróðlegan viðbætir um búð- ina, sjóböð, volgar sundlaugar, steypuböð og gufuböð og þar á meðal ágætar reglur varðandi öryggi og hreinlæti. 1932 gaf ísafoldarprentsmiðja h/f. í Rvik út II. hefti 1 af Rit- um Jónasar Hallgrímssonar og þar voru sundreglur Fjölnis- manna prentaðar í 3. sinn. Nú er í prentun kennslubók í sundi aðallega ætluð skólum vegna sundskyldunnar. Sú bók mun tileinkuð Jónasi Hallgríms- svni og kallast Sundreglur.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.