Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1945, Blaðsíða 20

Íþróttablaðið - 01.06.1945, Blaðsíða 20
12 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Guðbrandur Þorkelsson. Atli Steinarsson. Villa M. Einarsdóttir. lagi er það lítill mælikvarði á hæfni í björgun að synda einskonar björg- unarsund án bjargþega, eins og þarna var gert. í öðru lagi er það undar- legt, að keppa um meistaratign í iþróttagrein, sem engin reglugerð er til um hvernig keppa skuli. Þetta hefði Í.S.Í. átt að athuga áður ev pessi liður er tekinn inn i Meistaru- mótið. Mín persónulega skoðun er, að sýna eigi björgun, sem oftast í sambandi við sundmót og af mönnum, sem eru vel bæfir til þess, en halda því utan við keppni, í það minnsta þangað til samin hefur verið reglu- gerð um keppni í þessari grein, sem nothæf getur taiist. 100 m. bringusund drengja. 1. Atli Steinarsson, Í.R. 1 m. 27,7 sek. 2. Hannes Helgason, Á. 1 m. 31,8 sek. 3. Kolbeinn Óskarss., Á. 1 m. 33,3 s. Atli er mjög efnilegur bringusunds- maður, bann er léttur og rennur vel, hann á eftir að verða skeinuhættur þeim eldri þegar bann þroskast meira 100 m. frjáls aðferð kvenna. 1. Villa M. Einarsd., Æ. 1 m. 33,6 s. 2. Jóhanna Friðriksd., Á. 1 m. 46,6 s. Villa syndir laglega, en er ennþá ekki nógu þróttmikil til að halda braðanum. Jóhanna er sterk, en hef- ur enn llaft of litla æfingu til að njóta sín. En báðar eiga án efa eftir að bæta sig mikið. 3x100 m. boðsund karla. 1. Sveit Ægis á 3 min. 53,4 sek. 2. Sveit Ármanns á 4 mín. 00,3 sek. 3. Sveit Í.R. á 4 mín. 03,6 sek. 4. A-sveit K.R. náði næst bezta tíma synti á 3 mín. 55,5 sek, en var dæmd úr leik fyrir rangan snún- ing á baksundinu. Þetta boðsund skiptist þannig, að fyrsti maður hjá bvorri sveit syndir 100 m. baksund, annar 100 m. bringu- sund og þriðji 100 m. skriðsund. Það varð mjög hörð keppni i þessu sundi sérstaklega milli sveitar K.R. og Ægis. í baksundinu var Leifur K.R. aðeins á undan Halldóri Æ, sem synti mun betur núna en fyrri daginn, en Hörður Æ, gerði það þrek- virki að draga Sigurð K.R. uppi og fara aðeins fram úr honum, og síð- an jók Ari millibilið um næstum 2 metra. í sveit Ægis voru: Halldór Bachmann, Hörður Jóhannesson og Ari Guðmundsson. Þessir þrír Ægir- ingar eru allir 17 ára og er þetta sennilega yngsta sveit, sem sigrað hef- ur í meistarasundi hér. Yfirleitt var mjög góður árangur i flestum sundunum, og er gleðilegt að taka eftir því, að sundið er í stöðugri framför. — Sundráð Reykja- víkur sá um mótið. prísundsveit Ægis. Talið frd vinstri: Ari, Höröur og Halldór.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.