Íþróttablaðið - 01.06.1945, Blaðsíða 21
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
13
Illurk:
Vorhlaupin í Reykjavík.
f.R. vann VíðavangshlaupiS, en
K.R. átti fyrsta mann.
Þritugasta VíSavangshlaup Í.R. fór
fram sumardaginn fyrsta, 19. apríl.
Keppendur vom 13 talsins, 7 frá Ár-
manni og 4 frá I.R., cn aðeins 2 frá
K.R. eða ekki full sveit. Hlaupin var
ný ieið, byrjað í úthverfi bæjarins
eins og í fyrra og endað á Fríkirkju-
vegi móts við Bindindishöllina. Úr-
slit urðu þau, að Í.R. sigraði, í fyrsta
sinn síðan 1920, er önnur félög fóru
að tuka þátt í því. Fyrstu 4 árin sendi
Í.R. eitt keppendur í hlaupið. Sveit
Í.R. fékk 13 stig (2.,5. og 6. mann),
A-sveit Ármanns 14 stig (3., 4. og 7.
mann) og B-tsveit Ármanns 28 stig
(8., 9. og 11. mann). Röðin í mark
varð þessi:
Sveit Í.R.: Jóhannes, Óskar, Sigur-
gísli.
1. Har. Björnsson, K.R. 13:10,8 m.
2. Óskar Jónsson, l.R. 13:11,0 —
3. Hörður Hafliðason, Á. 13:13,2 —
4. Árni Kjartansson, Á. 13:15,0 •—
5. Jóhannes Jónsson, Í.R. 13:17,0 .—
0. Sigurg. Sigurðss., Í.R. 13:24,0 —
7. Reynir Kjartansson, Á. 13:30,0 —•
8. Helgi Óskarsson, Á. 13:30,0 —
9. Gunnar Gíslason, Á. 13:38,0 —
10. Magnús .Björnsson, Í.R. 13:39,0 —-
11. Steinar Þorfinnss., Á. 13:55,0 -—•
12. Oddgeir Sveinss., K.R. 14:09,0 —-
13. Jóhann Vigfússon, Á. 14:17,0 —
Eins og tímarnir bera með sér
var keppnin afar hörð. Leiddi Óskar
hlaupið þegar komið var á Fríkirkju-
veginn (af Sóleyjargötunni), en Har-
aldur fór svo fram úr rétt við markið.
Veður var óhagstætt, hvass vindur
mestmegnis á móti og slyddubylur
öðru hvoru. Má þvi telja tíma kepp-
enda ágætan, en vegalengdin er um
4 km.
Að þessu sinni var keppt í fyrsta
sinn um nýjan bikar, sem Dagblað-
ið Vísir hefur gefið.
Ármann vann drengjahlaupið og
bikarinn til eignar.
23. Drengjahlaup Ármanns fór fram
sunnudagínn 22. apríl s.l. kl. 10)4 f.
h. Úrslit urðu þau að Ármann sigr-
aði með 6 stigum, átti 3 fyrstu menn.
Sveit Í.R. fékk 17 stig (4., 0. og 7.)
og sveit K.R. 27% stig (5., 10., 11.
Haraldur og Óskar við mnrkið.
Drengjasveit Ármanns: Stefán, Gunnar og Jón.