Fréttablaðið - 30.06.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 4 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0
+ www.hekla.is/audisalur
Rauði þráðurinn
Sannkallað blíðviðri var á höfuðborgarsvæðinu í gær og fór hiti vel yfir 20 gráður þegar sólin skein sem hæst. Það var því kærkomið fyrir þessa stelpur að kæla sig í gosbrunni við Gerðar-
safn í Kópavogi, líkt og sjá má skemmtu þær sér mjög vel. Í dag má búast við hæglætisveðri í borginni með lítils háttar skúrum og hita á bilinu 8-13 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
DÓMSMÁL Mannréttindadómstóll
Evrópu (MDE) hefur fallist á að
taka til efnislegrar meðferðar kæru
Magnúsar Guðmundssonar, fyrr-
verandi bankastjóra Kaupþings
í Lúxemborg, sem var sakfelldur
fyrir aðild að markaðsmisnotkun
og umboðssvik í svokölluðu Mark-
aðsmisnotkunarmáli Kaupþings í
Hæstarétti árið 2016.
Með sakfellingunni var dómi hér-
aðsdóms snúið við að hluta en þar
var tveimur ákæruliðum á hendur
honum vísað frá dómi en hann
sýknaður af öðrum ákærum.
Kæra Magnúsar byggir á því að
Ingveldur Einarsdóttir og Þorgeir
Örlygsson, dómarar við Hæstarétt,
hafi verið vanhæf til að fella dóm á
mál hans vegna starfa sona þeirra.
Sonur Ingveldar var aðstoðarsak-
sóknari hjá Sérstökum saksóknara
og sonur Þorgeirs var yfirlögfræð-
ingur hjá slitastjórn Kaupþings.
Í niðurstöðu MDE um Al Thani-
málið var komist að þeirri niður-
stöðu að hæfi dómarans Árna Kol-
beinssonar hefði ekki verið hafið
yfir vafa en sonur hans starfaði fyrir
bankann bæði fyrir fall hans og eftir
að hann varð gjaldþrota.
Í kæru Magnúsar er einnig byggt
á hlutafjáreign dómara í föllnu
bönkunum og vísað til Viðars Más
Matthíassonar, Ingveldar Einars-
dóttur, Ólafs Barkar Þorvaldssonar
og Markúsar Sigurbjörnssonar.
Ekki er vitað til þess að aðrir í
hópnum en Ingveldur hafi átt hluta-
bréf í Kaupþingi fyrir fall bankans.
Af niðurstöðu MDE í Al Thani-mál-
inu má draga þá ályktun að dóm-
arar verði ekki taldir vanhæfir í
málum sem vörðuðu aðra banka en
þá sem þeir áttu fjárhagslega hags-
muni í og að þeir hagsmunir hafi
þurft að vera umtalsverðir.
Niðurstaða um meðferðarhæfi
kæru Magnúsar var birt á vef MDE
22. júní síðastliðinn. Þegar hefur
verið kveðinn upp áfellisdómur
í máli Elínar Vigfúsdóttur vegna
hlutafjáreignar dómara í Lands-
bankanum og í Al-Thani málinu
eins og áður sagði.
Fleiri íslensk mál um hluta-
fjáreign dómara bíða meðferðar í
Strassborg. – aá
MDE fjallar um mál Magnúsar
Mál Magnúsar Guðmundssonar, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, fær efnislega umfjöllun
við Mannréttindadómstól Evrópu. Málið varðar meint vanhæfi tveggja dómara vegna starfa sona þeirra.
SAMGÖNGUR Ólafur Guðmundsson
umferðaröryggissérfræðingur segir
malbikið á vegarkaflanum á Kjalar-
nesi, þar sem banaslys varð á sunnu-
dag, ekki rétt blandað. Þá segir hann
vegarkafla með sama malbiki vera
víða á höfuðborgarsvæðinu og að
varað hafi verið við hættunni þar.
„Þetta er gert þegar menn búa til
hálkusvæði í tengslum við ökuskóla
erlendis, þá setja menn extra mikið
bik og úða svo vatni og þá verður
þetta flughált,“ segir hann.
Malbikun á vegarkaflanum sem
um ræðir var í höndum Loftorku og
unnið var með efni frá Malbikunar-
stöðinni Höfða. Upplýsingafulltrúi
Vegagerðarinnar segir endanlega
ábyrgð liggja hjá Vegagerðinni og
rannsókn sé hafin á því hvað fór
úrskeiðis. – bdj, khg / sjá síðu 4
Malbikið ekki
rétt blandað
Sonur Ingveldar starfaði
hjá Sérstökum saksóknara
en sonur Þorgeirs hjá
slitastjórn Kaupþings.