Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 4
Gæðaeftirlitið er
ekki í lagi og það er
ekki farið eftir uppskrift-
inni.
Ólafur Guð-
mundsson
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
SAMGÖNGUR „Ég held að þetta sé
vitlaust blandað, það er of mikið
bik í þessu. Þetta er úti um allt, á
Reykjanesbrautinni, við Smára-
lindina, á Gullinbrú. Það oft búið
að kvarta undan þessu,“ segir
Ólafur Guðmundsson umferðar-
öryggissérfræðingur um malbikið
á vegarkaf lanum á Kjalarnesi þar
sem banaslys varð á sunnudag.
Hann segir að um léleg vinnu-
brögð sé að ræða og að margoft
sé búið að benda á hættuna sem
skapist við malbikun af þessu tagi.
„Gæðaeftirlitið er ekki í lagi og það
er ekki farið eftir uppskriftinni.
Þetta eru að mínu viti léleg vinnu-
brögð. Þetta verður eins gler,“ segir
Ólafur.
„Þegar það blotnar þá verður
þetta glerhált. Þetta verður mjög
lúmskt. Þetta er gert þegar menn
búa til hálkusvæði í tengslum við
ökuskóla erlendis, þá setja menn
extra mikið bik og úða svo vatni
og þá verður þetta f lughált,“ bætir
hann við.
Malbikun á vegarkaf lanum sem
um ræðir var í höndum Loftorku
og unnið var með efni frá Mal-
bikunarstöðinni Höfða. Ásberg
K. Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Malbikunarstöðvarinnar Höfða,
segir að rétt efni hafi verið afgreitt
frá stöðinni. „Við uppfylltum þær
kröfur sem komu frá verkkaupa
og hann óskaði eftir. Framleiðslu-
niðurstöður okkar sýna það,“ segir
hann.
Steinefnastærð hafi verið breytt
frá hinu hefðbundna en það eigi þó
ekki að hafa teljandi áhrif. „Þetta
á að vera stöðluð uppskrift,“ segir
Ásberg. Hvorki náðist í fram-
kvæmdastjóra né forstjóra Loft-
orku við vinnslu þessarar fréttar.
G. Pétur Matthíasson, upp-
lýsingafulltrúi Vegagerðarinnar,
segir það nú í rannsókn hvað fór
úrskeiðis. „Mér skilst að allar mæl-
ingar í malbikunarstöðinni hafi
verið innan marka. Eigi að síður
er malbikið of hált þegar það er
lagt út. Það er ekki hægt að segja á
þessari stundu hvort eitthvað hafi
brugðist í framleiðslunni og það er
eitt af því sem þarf að skoða gaum-
gæfilega,“ segir hann. Ýmsir þættir
geti spilað inn í, svo sem hvernig
völtunin var gerð.
„Við erum veghaldarinn og
endanlega berum við ábyrgðina,“
segir G. Pétur. „En verktakinn
skilar ekki því sem við viljum fá
samk væmt útboðssk ilmálu m
þannig að þeir bera ábyrgð á því.
Við þurfum hins vegar að vita af
hverju þetta verður svona,“ segir
hann. Þá segir hann Vegagerðina
ekki farna að nálgast málið með
kröfur á hendur Loftorku í huga.
En Loftorka muni sjá um að leggja
nýtt malbik yfir kaf lann á Kjalar-
nesi og aðra hála kaf la þar sem
sama var uppi á teningnum, til
dæmis við Gullinbrú. „Við vitum
um þessa kaf la og fylgjumst með
þeim,“ segir G. Pétur og nefnir til
dæmis kaf la við Vífilsstaði. Kaf l-
arnir séu merktir og séu ekki jafn
slæmir og á Kjalarnesi.
birnadrofn@frettabladid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
Segir malbiksblönduna vera
notaða við gerð hálkusvæða
Umferðaröryggissérfræðingur telur malbikið á vegarkaflanum á Kjalarnesi, þar sem banaslys varð á
sunnudag, ekki hafa verið rétt blandað. Oft hafi verið varað við hættu á vegarkaflanum. Rannsókn er
hafin á hvað fór úrskeiðis og segir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar ábyrgðina endanlega liggja þar.
Vegarkaflinn sem um ræðir er á Kjalarnesi, á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SJÁVARÚTVEGUR Alls veiddu 315
strandveiðibátar umfram veiði-
heimildir í maí á þessu ár. Þetta
kemur fram á vef Fiskistofu. Strand-
bátar hafa heimild til að fara tólf
veiðiferðir í hverjum mánuði og
veiða 650 þorskígildiskíló í hverri
veiðiferð. Þegar veitt er umfram
heimilaðan afla verður sá afli ólög-
mætur og á sama tíma frádreginn
heildaraflaheimildum strandveiði-
báta.
Þeir 315 bátar sem veiddu
umfram heimild veiddu samtals
rúmlega 37 þúsund tonn umfram
og munu útgerðir bátanna greiða
rúmar 8,6 milljónir króna í ríkis-
sjóð. Sá bátur sem veiddi mestan
ólögmætan afla í maí var Bára BA
30, 676 umframkíló og því næst
Hrólfur AK 29, 589 umframkíló.
– bdj
Hundruð
báta veiddu
ólögmætan afla
Alls veiddu 315 bátar rúmlega 37
þúsund tonn umfram heimildir.
NORÐURLÖND Gengið er út frá
því að þing Norðurlandaráðs
verði haldið í Hörpu í lok október.
Ákvörðun þess efnis var tekin á
fundi forsætisnefndar ráðsins í síð-
ustu viku. Sá fundur var rafrænn
eins og aðrir fundir ráðsins undan-
farna þrjá mánuði vegna COVID-19.
„Þó að tæknin hafi oftast virkað
sem skyldi hefur þessi reynsla stað-
fest hve óumræðilega mikilvægt er
að við hittumst reglulega í raun-
heimum, augliti til auglitis. Því gleð-
ur það okkur mjög að eins og staðan
er í dag getum við haldið áfram að
skipuleggja þingið í Reykjavík,“
segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, for-
seti Norðurlandaráðs.
Fari svo að önnur bylgja COVID-
19 skelli á Norðurlöndum eða hluta
svæðisins í haust er hugsanlegt að
aflýsa verði öllu þinginu,“ segir hún.
Engin óþarfa áhætta verði tekin.
Á þinginu koma saman 87 þing-
menn sem eiga sæti í Norðurlanda-
ráði en þar að auki taka fjölmargir
norrænir ráðherrar þátt í ýmsum
viðburðum. – sar
Þing óbreytt í
Hörpu í haust
STJÓRNMÁL Þingheimur var í óða-
önn að ljúka afgreiðslu síðustu
þingmála vorþingsins þegar Frétta-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Þótt sjaldan ríki sérstök spenna
um afgreiðslu þingmála var óvissa í
loftinu í gær um afdrif þingmanna-
frumvarps Pírata um afnám refsinga
við vörslu neysluskammta. Ekki var
ljóst hvernig þingmenn hygðust
greiða atkvæði um málið en skiptar
skoðanir hafa verið um stefnu í
fíkniefnamálum þvert á flokka.
Meðal annarra mála sem afgreidd
voru í gær voru samgönguáætlanir
og frumvarp um stofnun opinbers
hlutafélags um samgönguinnviði
á höfuðborgarsvæðinu. Þingmenn
Miðf lokksins héldu uppi málþófi
vegna andstöðu sinnar við málið og
skiptar skoðanir hafa verið um það
innan stjórnarmeirihlutans.
Tveir þingmenn Sjálfstæðis-
f lokksins, Guðlaugur Þór Þórðar-
son utanríkisráðherra og Sigríður Á.
Andersen, formaður utanríkismála-
nefndar, kölluðu inn varamenn sína
í atkvæðagreiðslurnar. Aðspurður
sagðist Guðlaugur Þór vera á löngu
ákveðnu ferðalagi um Snæfellsnes
með utanríkisráðherra Færeyja.
Fyrirspurn blaðsins um forföll Sig-
ríðar var ekki svarað.
Meðal mála sem döguðu uppi við
þinglok voru mál um skipun sendi-
herra, frumvarp um bætur fyrir
meiðyrði, margumrætt fjölmiðla-
mál og frumvarp um þjóðarsjóð.
Þing kemur aftur saman á stutt-
um þingstubbi í lok ágúst til að
ræða fjármálastefnu en ljóst varð
snemma í COVID-faraldrinum að
forsendur gildandi stefnu væru
brostnar. – aá
Spennuþrungnar atkvæðagreiðslur í þinginu í gær
3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð