Fréttablaðið - 30.06.2020, Side 6
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings
Komdu eða pantaðu tíma í síma
515 5500 eða sendu póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Þekkirðu lyn þín?
LYFSALINN GLÆSIBÆ
Álfheimum 74 104 Reykjavík
Sími 517 5500
www.lyfsalinn.is
lyfsalinn@lyfsalinn.is
OPNUNARTÍMI
Mán.- fös.
kl. 08:30-18:00
GLÆSIBÆ
DÓMSMÁL „Ég verð að standa hérna
sem málsvari lögmanna í landinu
við þessar aðstæður og vera dálítið
grimmur við lögguna,“ sagði Arnar
Þór Stefánsson hæstaréttarlög-
maður í málf lutningi í máli lög-
mannsins Steinbergs Finnboga-
sonar, í Héraðsdómi Reykjavíkur í
síðustu viku. Steinbergur fer í mál-
inu fram á 10 milljónir í bætur frá
ríkinu fyrir frelsissviptingu og aðrar
íþyngjandi aðgerðir lögreglu vegna
máls sem skjólstæðingur hans var
sakborningur í.
Steinbergur var handtekinn á
skrifstofum héraðssaksóknara í
febrúar 2016, vegna gruns um að
vera viðriðinn peningaþvættismál
skjólstæðings síns, vistaður í Hverf-
issteini eina nótt og sætti einangrun
í tvo sólarhringa í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg. Framkvæmdar
voru húsleitir bæði á lögmannsstofu
hans og heimili. Með úrskurði hér-
aðsdóms rúmum þremur mánuðum
síðar var embætti héraðssaksókn-
ara gert að eyða afritum af öllum
gögnum sem haldlögð voru í hús-
leit á lögmannsstofunni, með þeim
rökum að með afritun gagnanna
hefði trúnaðarskyldu milli lög-
manns og skjólstæðinga hans verið
með öllu varpað fyrir róða. Meðal
gagna sem haldlögð voru í húsleit-
inni var mappa merkt nafni skjól-
stæðings Steinbergs í málinu auk
þess sem tekin voru afrit af rúm-
lega tvö þúsund möppum í tölvum
hans, merktum ýmsum málum og
nöfnum skjólstæðinga.
Steinbergur hafði réttarstöðu
sakbornings í málinu í 19 mánuði
áður en mál hans var fellt niður hjá
héraðssaksóknara án þess að ákæra
væri gefin út gegn honum.
Síðar i hluti aðalmeðferðar
málsins fór fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur í síðustu viku en fyrr
í mánuðinum voru teknar skýrslur
af nokkrum vitnum fyrir dómi, þar
á meðal af Birni Þorvaldssyni, sak-
sóknara hjá embætti héraðssak-
sóknara. Við upphaf þinghaldsins
í síðustu viku lagði ríkislögmaður
fram bókun þar sem gerðar eru
alvarlegar athugasemdir við óbil-
gjarna framgöngu lögmanns Stein-
bergs gagnvart Birni er hann gaf
skýrslu fyrir dómi. Í bókuninni og
í málf lutningi ríkislögmanns var
gagnrýnt að lögmaðurinn hefði
gefið í skyn að opinberir starfs-
menn sem leiddir voru sem vitni í
málinu, hefðu gerst sekir um brot í
starfi.
Arnar Þór brást ókvæða við
bókuninni og sagði lögreglu og sak-
sóknara verða að þola að saumað
væri að þeim, enda gæfi mál Stein-
bergs mögulega tilefni til áminning-
ar á saksóknarann, og jafnvel rann-
sakendum vegna þess að í beiðnum
um húsleitir og gæsluvarðhald
hafi verið að finna staðhæfingar
sem voru ekki í samræmi við fyrir-
liggjandi gögn úr skýrslutökum á
þeim tíma. Þá væri ekki útilokað að
fella mætti háttsemi saksóknarans
undir ákvæði hegningarlaga um
rangar sakargiftir. Þess vegna hefði
hann varað Björn við því í upphafi
skýrslutökunnar að hann kynni að
fella á sig refsiábyrgð með skýrslu-
gjöf sinni.
„Ég held að Björn Þorvaldsson,
sem er búinn að fá ansi marga
bankamenn dæmda í fangelsi, eftir
að hafa saumað að þeim, mætti
nú alveg prófa að vera einu sinni
spurður spjörunum úr og hafi nú
bara gott af því,“ sagði Arnar Þór.
Hann vísaði til skýrslugjafar lög-
reglumanna sem komu að hand-
töku Steinbergs, sögðust aðspurðir
fyrir dómi óhræddir við að hand-
taka lögmenn og fara í húsleitir á
lögmannsstofur, enda hefðu þeir
farið í fjölda slíkra.
„Kannski er þetta vandinn,“
sagði Arnar og bætti við: „Kannski
er embætti héraðssaksóknara sem
áður hét Sérstakur saksóknari,
komið það langt frá sakamálalög-
unum og veruleikanum, að það er
kominn tími núna árið 2020 til að
segja stopp. Forherðingin er orðin
of mikil.“
Arnar Þór sagði mál Steinbergs
kornið sem fyllti mælinn. „Hér
gengu menn of langt og framganga
yfirvalda í þessu máli var ámælis-
verð.“
Arnar Þór sagði þeim dómara
sem úrskurðaði Steinberg í gæslu-
varðhald og heimilaði húsleit á lög-
mannsstofu hans, vorkunn. Vegna
skamms tíma sem dómarar hafi
til að úrskurða um rannsóknarað-
gerðir þurfi þeir að geta treyst því
að staðhæfingar í beiðnum, sem
renna eigi stoðum undir grun gagn-
vart sökuðum manni, séu réttar.
Nokkur umræða varð í þinghald-
inu um málsmeðferð umræddra
beiðna og sagði dómarinn í málinu,
Pétur Dam Leifsson, málsmeðferð
slíkra beiðna í raun ærið rann-
sóknarefni og tilvalið umræðuefni
á Lagadegi, árlegum málþingsdegi
lögfræðinga.
Ríkislögmaður viðurkennir að
Steinbergur eigi bótarétt vegna
frelsissviptingar að ósekju en hafn-
ar bótakröfunni sem of hárri.
Dómur verður kveðinn upp í máli
Steinbergs síðar í sumar.
adalheidur@frettabladid.is
Stöðva þurfi forherðingu embættisins
Arnar Þór Stefánsson lögmaður sparaði ekki stóru orðin í málflutningi um kröfu umbjóðanda síns og kollega Steinbergs Finnboga-
sonar í síðustu viku. Arnar Þór sagði framferði saksóknara og rannsakenda geta gefið tilefni til áminningar, jafnvel refsimeðferðar.
Steinbergur Finnbogason gat aðeins fylgst með fyrri hluta aðalmeðferðar máls síns en síðari daginn var hann sjálfur í málflutningi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er kominn tími
núna árið 2020 að
segja stopp. Forherðingin er
orðin of mikil.
Arnar Þór Stefánsson,
Hæstaréttarlögmaður
Steinbergur var hand-
tekinn vegna gruns um að
vera viðriðinn mál skjól-
stæðings síns. Hann hafði
réttarstöðu sakbornings í 19
mánuði.
3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð