Fréttablaðið - 30.06.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 30.06.2020, Síða 6
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings Komdu eða pantaðu tíma í síma 515 5500 eða sendu póst á lyfsalinn@lyfsalinn.is Þekkirðu lyn þín? LYFSALINN GLÆSIBÆ Álfheimum 74 104 Reykjavík Sími 517 5500 www.lyfsalinn.is lyfsalinn@lyfsalinn.is OPNUNARTÍMI Mán.- fös. kl. 08:30-18:00 GLÆSIBÆ DÓMSMÁL „Ég verð að standa hérna sem málsvari lögmanna í landinu við þessar aðstæður og vera dálítið grimmur við lögguna,“ sagði Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlög- maður í málf lutningi í máli lög- mannsins Steinbergs Finnboga- sonar, í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Steinbergur fer í mál- inu fram á 10 milljónir í bætur frá ríkinu fyrir frelsissviptingu og aðrar íþyngjandi aðgerðir lögreglu vegna máls sem skjólstæðingur hans var sakborningur í. Steinbergur var handtekinn á skrifstofum héraðssaksóknara í febrúar 2016, vegna gruns um að vera viðriðinn peningaþvættismál skjólstæðings síns, vistaður í Hverf- issteini eina nótt og sætti einangrun í tvo sólarhringa í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Framkvæmdar voru húsleitir bæði á lögmannsstofu hans og heimili. Með úrskurði hér- aðsdóms rúmum þremur mánuðum síðar var embætti héraðssaksókn- ara gert að eyða afritum af öllum gögnum sem haldlögð voru í hús- leit á lögmannsstofunni, með þeim rökum að með afritun gagnanna hefði trúnaðarskyldu milli lög- manns og skjólstæðinga hans verið með öllu varpað fyrir róða. Meðal gagna sem haldlögð voru í húsleit- inni var mappa merkt nafni skjól- stæðings Steinbergs í málinu auk þess sem tekin voru afrit af rúm- lega tvö þúsund möppum í tölvum hans, merktum ýmsum málum og nöfnum skjólstæðinga. Steinbergur hafði réttarstöðu sakbornings í málinu í 19 mánuði áður en mál hans var fellt niður hjá héraðssaksóknara án þess að ákæra væri gefin út gegn honum. Síðar i hluti aðalmeðferðar málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku en fyrr í mánuðinum voru teknar skýrslur af nokkrum vitnum fyrir dómi, þar á meðal af Birni Þorvaldssyni, sak- sóknara hjá embætti héraðssak- sóknara. Við upphaf þinghaldsins í síðustu viku lagði ríkislögmaður fram bókun þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við óbil- gjarna framgöngu lögmanns Stein- bergs gagnvart Birni er hann gaf skýrslu fyrir dómi. Í bókuninni og í málf lutningi ríkislögmanns var gagnrýnt að lögmaðurinn hefði gefið í skyn að opinberir starfs- menn sem leiddir voru sem vitni í málinu, hefðu gerst sekir um brot í starfi. Arnar Þór brást ókvæða við bókuninni og sagði lögreglu og sak- sóknara verða að þola að saumað væri að þeim, enda gæfi mál Stein- bergs mögulega tilefni til áminning- ar á saksóknarann, og jafnvel rann- sakendum vegna þess að í beiðnum um húsleitir og gæsluvarðhald hafi verið að finna staðhæfingar sem voru ekki í samræmi við fyrir- liggjandi gögn úr skýrslutökum á þeim tíma. Þá væri ekki útilokað að fella mætti háttsemi saksóknarans undir ákvæði hegningarlaga um rangar sakargiftir. Þess vegna hefði hann varað Björn við því í upphafi skýrslutökunnar að hann kynni að fella á sig refsiábyrgð með skýrslu- gjöf sinni. „Ég held að Björn Þorvaldsson, sem er búinn að fá ansi marga bankamenn dæmda í fangelsi, eftir að hafa saumað að þeim, mætti nú alveg prófa að vera einu sinni spurður spjörunum úr og hafi nú bara gott af því,“ sagði Arnar Þór. Hann vísaði til skýrslugjafar lög- reglumanna sem komu að hand- töku Steinbergs, sögðust aðspurðir fyrir dómi óhræddir við að hand- taka lögmenn og fara í húsleitir á lögmannsstofur, enda hefðu þeir farið í fjölda slíkra. „Kannski er þetta vandinn,“ sagði Arnar og bætti við: „Kannski er embætti héraðssaksóknara sem áður hét Sérstakur saksóknari, komið það langt frá sakamálalög- unum og veruleikanum, að það er kominn tími núna árið 2020 til að segja stopp. Forherðingin er orðin of mikil.“ Arnar Þór sagði mál Steinbergs kornið sem fyllti mælinn. „Hér gengu menn of langt og framganga yfirvalda í þessu máli var ámælis- verð.“ Arnar Þór sagði þeim dómara sem úrskurðaði Steinberg í gæslu- varðhald og heimilaði húsleit á lög- mannsstofu hans, vorkunn. Vegna skamms tíma sem dómarar hafi til að úrskurða um rannsóknarað- gerðir þurfi þeir að geta treyst því að staðhæfingar í beiðnum, sem renna eigi stoðum undir grun gagn- vart sökuðum manni, séu réttar. Nokkur umræða varð í þinghald- inu um málsmeðferð umræddra beiðna og sagði dómarinn í málinu, Pétur Dam Leifsson, málsmeðferð slíkra beiðna í raun ærið rann- sóknarefni og tilvalið umræðuefni á Lagadegi, árlegum málþingsdegi lögfræðinga. Ríkislögmaður viðurkennir að Steinbergur eigi bótarétt vegna frelsissviptingar að ósekju en hafn- ar bótakröfunni sem of hárri. Dómur verður kveðinn upp í máli Steinbergs síðar í sumar. adalheidur@frettabladid.is Stöðva þurfi forherðingu embættisins Arnar Þór Stefánsson lögmaður sparaði ekki stóru orðin í málflutningi um kröfu umbjóðanda síns og kollega Steinbergs Finnboga- sonar í síðustu viku. Arnar Þór sagði framferði saksóknara og rannsakenda geta gefið tilefni til áminningar, jafnvel refsimeðferðar. Steinbergur Finnbogason gat aðeins fylgst með fyrri hluta aðalmeðferðar máls síns en síðari daginn var hann sjálfur í málflutningi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er kominn tími núna árið 2020 að segja stopp. Forherðingin er orðin of mikil. Arnar Þór Stefánsson, Hæstaréttarlögmaður Steinbergur var hand- tekinn vegna gruns um að vera viðriðinn mál skjól- stæðings síns. Hann hafði réttarstöðu sakbornings í 19 mánuði. 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.