Fréttablaðið - 30.06.2020, Side 13

Fréttablaðið - 30.06.2020, Side 13
Því hefur verið spáð að á næstu 40 árum þurfi mannkynið að framleiða jafnmikið af mat og það hefur gert seinustu 8.000 árin. Miðað við núverandi framleiðslu- og neysluhætti merkir það að við, mannkynið, þurfum að tvöfalda álagið á auðlindir jarðarinnar á þessum tíma. Á sama tíma er þekkt að í dag er matvælavinnsla ábyrg fyrir losun um 30% af gróðurhúsa- lofttegundum (allir einkabílar í heiminum losa um 2%). Álagið á jörðina er þegar allt of mikið. Verkefnið virðist óyfirstíganlegt. Íslendingar með sínar ríku auð- lindir svo sem hreina orku, gnægð vatns og þekkingu bera hér ábyrgð. Í stöðunni felast tækifæri. Matarskortur er ein af helstu ógnum mannkynsins Hungursneyð áttunda áratugarins gæti orðið hjómið eitt ef þjóðir heimsins taka sig ekki taki hvað varðar matvælaframleiðslu. John Beddington, vísindalegur ráðgjafi ríkisstjórnar Bretlands og prófess- or í hagnýtri líffræðitölfræði, hefur gengið svo langt að fullyrða að mat- vælaöryggi sé stærri og nærtækari ógn fyrir mannkynið en hlýnun jarðar, þótt vissulega séu þetta nátengdar ógnir. Heimurinn er ekki sanngjarn staður til að búa á. Fari fram sem stefnir mun matarskort- ur bitna harðast á þeim sem verst standa. Helmingur fátækasta hluta mannkynsins býr í Suður-Asíu. Þar búa líka 5 milljónir barna sem deyja úr fæðutengdum sjúkdómum eða hungri. Þróunarbanki Asíu spáir því að 1,6 milljarðar íbúa í Suður-Asíu muni innan skamms búa við veru- lega skert lífsgæði vegna skorts á matvælum. Víða um heim horfir til gríðarlegs vanda, takist mannkyn- inu ekki að framleiða meira af mat. Við eigum að flytja út, en erum að flytja inn Ísland er matvælaframleiðsluland. Hér standa sjávarútvegur og land- búnaður beint undir hátt í 7% af vergri landsframleiðslu. Heims- meðaltalið er 3,3%. Samt erum við eftirbátar annarra Norðurlanda- þjóða hvað varðar sjálf bærni í mat- vælaframleiðslu. Þrátt fyrir að búa við skilyrði til að framleiða, veiða og rækta hágæða matvæli á forsendum okkar ríku auðlinda, f lytjum við stóran hluta þess sem við neytum inn. Margt er vel gert en hægt er að gera betur Við Íslendingar getum langtum betur. Við getum byggt á styrk- leikum okkar og sótt fram af af li svo um um munar. Nýkynnt aðgerðaáætlun Kristjáns Þórs Júlíussonar, áhersla Þórdísar Kol- brúnar Reykfjörð Gylfadóttur og orðræða Katrínar Jakobsdóttur eru meðal þeirra fersku tóna sem geta orðið að hljómkviðu sóknarinnar. Framganga íslenska sjávarklasans er þannig að eftir er tekið og víða eigum við fyrirtæki og mannvit sem um munar. Við eigum mikið inni í fiskeldi, bæði í fulleldi á landi og í sjó. Sjávarútvegur er sterkur, mjólkurgeirinn hefur verulega sótt í sig veðrið og ylrækt vaxið. Víða má finna sprotana. Betur má þó ef duga skal. Við kunnum þetta Það þarf að stíga fastar fram og sú sókn verður ekki leidd af neinum öðrum en stjórnvöldum í sam- starfi við fyrirtæki og einkaaðila. Samhliða því að skýra ramma og kröfur er mikilvægt að skapa svig- rúm til sóknar. Við þurfum að ganga lengra í virkjun jarðvarma til matvælaframleiðslu og verðið á orkunni þarf að vera ívilnandi. Við þurfum að færa framleiðsluna í stýrt umhverfi svo sem risavaxin gróðurhús og úthafskvíar fyrir fiskeldi, stærðin skiptir hér máli og skattalegir hvatar eru ákvarðandi þáttur. Við þurfum að efla þekkingu og halda stöðugt áfram að tækni- væða framleiðsluna. Við þurfum fleiri fyrirtæki í matvælatækni. Við þurfum að efla hringrásarhagkerfi með áherslu á sjálf bærni og full- nýtingu náttúruauðlinda. Listinn yfir þörf verkefni er endalaus. Það þarf ekki að óttast enda þekkingin hér mikil. Í raun má segja að við kunnum þetta vel enda höfum við nýverið gert sambærilega hluti í sjávarútvegi með góðum árangri. Ölfus á óviðjafnanleg tækifæri Sveitarfélagið Ölfus er í einstakri stöðu þegar kemur að matvæla- framleiðslu. Hvergi á landinu er meiri nýtanlegur jarðvarmi, hvergi er aðgengið að fersku vatni meira, landrýmið er mikið, útf lutnings- höfnin góð, nálægð við alþjóða- flugvöllinn og lengi má áfram telja. Allt þetta er í miklu nábýli við fjöl- mennustu svæði landsins, háskóla og hvers konar sérfræðiþjónustu. Tækifærin eru því óþrjótandi. Þekkingarsetur og auðlindagarður Í nokkurn tíma hefur Sveitarfélagið Ölfus nú unnið með fyrirtækjum og einstaklingum að undirbúningi að stofnun Þekkingarseturs og rekst- urs auðlindagarðs með áherslu á umhverfisvæna matvælafram- leiðslu og hringrásarhagkerf i. Innan þess klasasamstarfs eru nú þegar aðilar sem ýmist eru þegar í umsvifamikilli framleiðslu á mat- vælum eða stefna á slíkt. Stefnan er að veita frumkvöðlum svo mikla þjónustu sem mögulegt er. Stefnan er að vinna með stjórnvöldum, fyr- irtækjum og einstaklingum að því að bregðast við stöðu matvælafram- leiðslu og leggja lóð á þá vogarskál að Ísland verði ekki eingöngu sem mest sjálfbært hvað matvæli varðar heldur sterk útflutningsþjóð á sviði fjölbreyttrar matvælaframleiðslu. Tími aðgerða er runninn upp. Matvælalandið Ísland bíður þess að raungerast. Matvælaskortur er raunveruleg ógn fyrir mannkynið Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi Víða um heim horfir til gríðarlegs vanda, takist mannkyninu ekki að fram- leiða meira af mat. Hlíðasmári 6. Sími: 510 7900. lind@fastlind.is Stefán Jarl Lögg. fasteignasali 892 9966 stefan@fastlind.is Nánari upplýsingar veita Hannes Steindórsson Lögg. fasteignasali 699 5008 hannes@fastlind.is TIL LEIGU TILBOÐ ÓSKAST Einstaklega vandað og vel staðsett skrifstofuhúsnæði. Eignin er öll mjög snyrtileg, 10 rúmgóðar skrifstofur allt frá 10 fm uppí 40 fm, aðstaða fyrir allt að 30-40 starfsmenn. Rúmgott fundarherbergi ásamt snyrtilegu eldhúsi og starfsmannaaðstöðu. Næg bílastæði. Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur 314 m2 atvinnuhúsnæði, 10 rúmgóðar skrifstofur S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.