Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 13
Því hefur verið spáð að á næstu 40 árum þurfi mannkynið að framleiða jafnmikið af mat og
það hefur gert seinustu 8.000 árin.
Miðað við núverandi framleiðslu-
og neysluhætti merkir það að við,
mannkynið, þurfum að tvöfalda
álagið á auðlindir jarðarinnar á
þessum tíma. Á sama tíma er þekkt
að í dag er matvælavinnsla ábyrg
fyrir losun um 30% af gróðurhúsa-
lofttegundum (allir einkabílar í
heiminum losa um 2%). Álagið
á jörðina er þegar allt of mikið.
Verkefnið virðist óyfirstíganlegt.
Íslendingar með sínar ríku auð-
lindir svo sem hreina orku, gnægð
vatns og þekkingu bera hér ábyrgð.
Í stöðunni felast tækifæri.
Matarskortur er ein af helstu
ógnum mannkynsins
Hungursneyð áttunda áratugarins
gæti orðið hjómið eitt ef þjóðir
heimsins taka sig ekki taki hvað
varðar matvælaframleiðslu. John
Beddington, vísindalegur ráðgjafi
ríkisstjórnar Bretlands og prófess-
or í hagnýtri líffræðitölfræði, hefur
gengið svo langt að fullyrða að mat-
vælaöryggi sé stærri og nærtækari
ógn fyrir mannkynið en hlýnun
jarðar, þótt vissulega séu þetta
nátengdar ógnir. Heimurinn er ekki
sanngjarn staður til að búa á. Fari
fram sem stefnir mun matarskort-
ur bitna harðast á þeim sem verst
standa. Helmingur fátækasta hluta
mannkynsins býr í Suður-Asíu. Þar
búa líka 5 milljónir barna sem deyja
úr fæðutengdum sjúkdómum eða
hungri. Þróunarbanki Asíu spáir því
að 1,6 milljarðar íbúa í Suður-Asíu
muni innan skamms búa við veru-
lega skert lífsgæði vegna skorts á
matvælum. Víða um heim horfir til
gríðarlegs vanda, takist mannkyn-
inu ekki að framleiða meira af mat.
Við eigum að flytja út,
en erum að flytja inn
Ísland er matvælaframleiðsluland.
Hér standa sjávarútvegur og land-
búnaður beint undir hátt í 7% af
vergri landsframleiðslu. Heims-
meðaltalið er 3,3%. Samt erum við
eftirbátar annarra Norðurlanda-
þjóða hvað varðar sjálf bærni í mat-
vælaframleiðslu. Þrátt fyrir að búa
við skilyrði til að framleiða, veiða og
rækta hágæða matvæli á forsendum
okkar ríku auðlinda, f lytjum við
stóran hluta þess sem við neytum
inn.
Margt er vel gert
en hægt er að gera betur
Við Íslendingar getum langtum
betur. Við getum byggt á styrk-
leikum okkar og sótt fram af
af li svo um um munar. Nýkynnt
aðgerðaáætlun Kristjáns Þórs
Júlíussonar, áhersla Þórdísar Kol-
brúnar Reykfjörð Gylfadóttur og
orðræða Katrínar Jakobsdóttur eru
meðal þeirra fersku tóna sem geta
orðið að hljómkviðu sóknarinnar.
Framganga íslenska sjávarklasans
er þannig að eftir er tekið og víða
eigum við fyrirtæki og mannvit
sem um munar. Við eigum mikið
inni í fiskeldi, bæði í fulleldi á landi
og í sjó. Sjávarútvegur er sterkur,
mjólkurgeirinn hefur verulega sótt
í sig veðrið og ylrækt vaxið. Víða
má finna sprotana. Betur má þó ef
duga skal.
Við kunnum þetta
Það þarf að stíga fastar fram og sú
sókn verður ekki leidd af neinum
öðrum en stjórnvöldum í sam-
starfi við fyrirtæki og einkaaðila.
Samhliða því að skýra ramma og
kröfur er mikilvægt að skapa svig-
rúm til sóknar. Við þurfum að
ganga lengra í virkjun jarðvarma
til matvælaframleiðslu og verðið
á orkunni þarf að vera ívilnandi.
Við þurfum að færa framleiðsluna
í stýrt umhverfi svo sem risavaxin
gróðurhús og úthafskvíar fyrir
fiskeldi, stærðin skiptir hér máli og
skattalegir hvatar eru ákvarðandi
þáttur. Við þurfum að efla þekkingu
og halda stöðugt áfram að tækni-
væða framleiðsluna. Við þurfum
fleiri fyrirtæki í matvælatækni. Við
þurfum að efla hringrásarhagkerfi
með áherslu á sjálf bærni og full-
nýtingu náttúruauðlinda. Listinn
yfir þörf verkefni er endalaus. Það
þarf ekki að óttast enda þekkingin
hér mikil. Í raun má segja að við
kunnum þetta vel enda höfum við
nýverið gert sambærilega hluti í
sjávarútvegi með góðum árangri.
Ölfus á óviðjafnanleg tækifæri
Sveitarfélagið Ölfus er í einstakri
stöðu þegar kemur að matvæla-
framleiðslu. Hvergi á landinu er
meiri nýtanlegur jarðvarmi, hvergi
er aðgengið að fersku vatni meira,
landrýmið er mikið, útf lutnings-
höfnin góð, nálægð við alþjóða-
flugvöllinn og lengi má áfram telja.
Allt þetta er í miklu nábýli við fjöl-
mennustu svæði landsins, háskóla
og hvers konar sérfræðiþjónustu.
Tækifærin eru því óþrjótandi.
Þekkingarsetur
og auðlindagarður
Í nokkurn tíma hefur Sveitarfélagið
Ölfus nú unnið með fyrirtækjum og
einstaklingum að undirbúningi að
stofnun Þekkingarseturs og rekst-
urs auðlindagarðs með áherslu
á umhverfisvæna matvælafram-
leiðslu og hringrásarhagkerf i.
Innan þess klasasamstarfs eru nú
þegar aðilar sem ýmist eru þegar í
umsvifamikilli framleiðslu á mat-
vælum eða stefna á slíkt. Stefnan
er að veita frumkvöðlum svo mikla
þjónustu sem mögulegt er. Stefnan
er að vinna með stjórnvöldum, fyr-
irtækjum og einstaklingum að því
að bregðast við stöðu matvælafram-
leiðslu og leggja lóð á þá vogarskál
að Ísland verði ekki eingöngu sem
mest sjálfbært hvað matvæli varðar
heldur sterk útflutningsþjóð á sviði
fjölbreyttrar matvælaframleiðslu.
Tími aðgerða er runninn upp.
Matvælalandið Ísland bíður þess
að raungerast.
Matvælaskortur er raunveruleg
ógn fyrir mannkynið
Elliði Vignisson
bæjarstjóri í
Ölfusi
Víða um heim horfir til
gríðarlegs vanda, takist
mannkyninu ekki að fram-
leiða meira af mat.
Hlíðasmári 6. Sími: 510 7900. lind@fastlind.is
Stefán Jarl
Lögg. fasteignasali
892 9966
stefan@fastlind.is
Nánari upplýsingar veita
Hannes
Steindórsson
Lögg. fasteignasali
699 5008
hannes@fastlind.is
TIL
LEIGU
TILBOÐ
ÓSKAST
Einstaklega vandað
og vel staðsett
skrifstofuhúsnæði.
Eignin er öll mjög
snyrtileg, 10 rúmgóðar
skrifstofur allt frá 10 fm
uppí 40 fm, aðstaða fyrir
allt að
30-40 starfsmenn.
Rúmgott fundarherbergi
ásamt snyrtilegu eldhúsi
og starfsmannaaðstöðu.
Næg bílastæði.
Hlíðasmári 6,
201 Kópavogur
314 m2 atvinnuhúsnæði,
10 rúmgóðar skrifstofur
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0