Fréttablaðið - 30.06.2020, Page 16
Þuríður Ottesen, eigandi Bóel, segir að nú sé tilvalið tæki-færi til að næla sér í vandaðar
og tímalausar flíkur. „Það er stans-
laust fjör á sumarútsölunni hjá
Bóel og sannarlega hægt að krækja
sér í f lotta hönnunarflík sem
kemur sér vel. Við leggjum áherslu
á að bjóða upp á vel hannaðar
flíkur sem endast vel og er alltaf
gaman að fara í.“
Vandaðar yfirhafnir
Meðal þess sem Bóel býður upp
á eru yfirhafnir þar sem gæði og
útlit koma saman. „Frakkarnir
á forsíðunni koma frá japanska
hönnunarfyrirtækinu MOYURU
sem er ein mest spennandi flíkin
hjá Bóel. Frakkinn er vind- og
regnheldur og myndi ekki blotna
í gegn nema kannski í suðaustan
11,“ segir Þuríður og hlær. „Þetta
er alveg rosalega smart f lík sem er
hægt að nota sem flottan frakka,
einnig sem utanyfirflík á veturna
og þá er maður bara í thermo-flík
undir eða peysu.“
Nú er því einstakt tækifæri til að
fjárfesta í vandaðri yfirhöfn á góðu
verði. „Það eru nokkrir frakkar
eftir og eru núna á 40% afslætti.
Þessir frakkar eru töluverð fjár-
festing en þetta er f lík sem er nær
ódrepandi úr efni sem er sérfram-
leitt fyrir MOYURU á Balí. Við
höfum fengið þessa frakka með
nýju sniði á haustin og vorin og
þeir rjúka alltaf út. Við keyptum
vel inn núna en svo skall Covid á
og þá nýtur einhver góðs af því að
geta keypt þá á frábærum afslætti.“
Töskur, skór og krem
Þá er ýmislegt f leira á boðstólum í
versluninni en fatnaður. „Útsalan
fór vel af stað í síðustu viku og
má nefna að litlu ferðatöskurnar
seldust upp á svipstundu, alls 11
stykki. Nú er 50% afsláttur af gull-
fallegum leðurseðlaveskjum frá
Mandarina Duck og um að gera að
koma fljótt.“
Þuríður nefnir sérstaklega skóna
frá danska merkinu LOFINA. „Það
er gaman er að segja frá dönsku
skóhönnuninni LOFINA sem er
stofnuð af hjónunum Lise-Lotte
og Morten Svenninggaard. Þau
kynntust 18 ára gömul í skóiðn-
námi, örlögin tóku taumana og
þau eltu ástríðuna til Ítalíu til að
læra handverkið til hins ítrasta.
Þau ákváðu svo að flytja aftur til
Danmerkur, stofnuðu skófyrir-
tækið LOFINA árið 1996 og eru
skórnir frá þeim nú fáanlegir í yfir
20 löndum.“
Skórnir eru einstaklega vand-
aðir. „Um leið og maður stígur í
skóna finnur maður að þeir eru
hannaðir með ást og kærleika í
huga. Þeir fara bæði vel á fæti og
vel með fæturna og eru því uppá-
haldsskórnir hjá flestum sem kom-
ast í kynni við þá. Nú á að rýma vel
til í búðinni og er 40% afsláttur af
LOFINA skóm. Það er farið að vera
pínu götótt í númerum en pottþétt
mun einhver finna draumaskóna
sína,“ segir Þuríður.
„Ég vil líka minna á lífrænu
snyrtivörurnar frá nýsjálenska
fyrirtækinu ANTIPODES en þær
eru nú á 20% afslætti. Svo erum
við með sértilboð á andlitsraka-
kreminu Immortal sem er með
náttúrlegri sólarvörn SPF15 en
kremið kostaði 5.500 kr. og er nú á
3.850 kr.“
Ný búð á Óðinsgötu 1
Það eru spennandi tímar fram
undan hjá Bóel en í ágúst mun
Þuríður Ottesen,
eigandi Bóel,
segir afar spenn-
andi tíma fram-
undan.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Leðurseðlaveskin frá Mandarina Duck eru nú á 50% afslætti eða á 9.500 kr.
Sterk og flott regnhlíf frá Mandarina Duck sem fæst nú á 4.000 kr. Rakadagkremið frá Immortal fæst nú í 60 ml túpu á 3.850 kr.
Handgerðir sandalar frá LOFINA á 40% afslætti og kosta núna 23.400 kr.
Má með sanni
segja að Skóla-
vörðuholtið sé suðu-
punktur hönnunar og
upplifunar.
Framhald af forsíðu ➛
Bumbutaskan frá Mandarina Duck er á 30% afslætti og kostar nú 11.500 kr.
Handgerðir leðurskór frá LOFINA, á 40% afslætti, eða 29.400 kr.
verslunin færa sig frá Skólavörðu-
stíg og opna í nýju húsnæði á
Óðinsgötu 1. Blaðamaður spyr
hvort það sé áhættusamt að opna á
nýjum stað. „Alls ekki, það verður
ekki síðra, ef ekki betra,“ svarar
Þuríður létt í bragði.
„Það er að myndast svo sterkur
hringur frá Skólavörðustíg að
Óðinsgötu, Spítalastíg og Týsgötu,
allur hringurinn er með hitalögn í
öllum götum svo það er sumarfæri
allt árið. Nú þegar á Óðinsgötu 1 er
hið stórfenglega Heilsuhof og kaffi-
húsið Systrasamlagið. Hringurinn
eins og ég vil kalla hann saman-
stendur af f lottum fyrirtækjum
eins og Mengi, Smekkleysu, Geysi,
Fasteignamarkaðinum, Snaps,
Fríðu skarti og svo er Magnólía að
koma inn í þessa fallegu festi.“
Framtíðin sé björt. „Fram-
tíðin er að koma í miðbæinn til að
upplifa og má með sanni segja að
Skólavörðuholtið sé suðupunktur
hönnunar og upplifunar og það er
alveg sérstaklega gaman hvað það
er að gerast organískt.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R