Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 16
Þuríður Ottesen, eigandi Bóel, segir að nú sé tilvalið tæki-færi til að næla sér í vandaðar og tímalausar flíkur. „Það er stans- laust fjör á sumarútsölunni hjá Bóel og sannarlega hægt að krækja sér í f lotta hönnunarflík sem kemur sér vel. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á vel hannaðar flíkur sem endast vel og er alltaf gaman að fara í.“ Vandaðar yfirhafnir Meðal þess sem Bóel býður upp á eru yfirhafnir þar sem gæði og útlit koma saman. „Frakkarnir á forsíðunni koma frá japanska hönnunarfyrirtækinu MOYURU sem er ein mest spennandi flíkin hjá Bóel. Frakkinn er vind- og regnheldur og myndi ekki blotna í gegn nema kannski í suðaustan 11,“ segir Þuríður og hlær. „Þetta er alveg rosalega smart f lík sem er hægt að nota sem flottan frakka, einnig sem utanyfirflík á veturna og þá er maður bara í thermo-flík undir eða peysu.“ Nú er því einstakt tækifæri til að fjárfesta í vandaðri yfirhöfn á góðu verði. „Það eru nokkrir frakkar eftir og eru núna á 40% afslætti. Þessir frakkar eru töluverð fjár- festing en þetta er f lík sem er nær ódrepandi úr efni sem er sérfram- leitt fyrir MOYURU á Balí. Við höfum fengið þessa frakka með nýju sniði á haustin og vorin og þeir rjúka alltaf út. Við keyptum vel inn núna en svo skall Covid á og þá nýtur einhver góðs af því að geta keypt þá á frábærum afslætti.“ Töskur, skór og krem Þá er ýmislegt f leira á boðstólum í versluninni en fatnaður. „Útsalan fór vel af stað í síðustu viku og má nefna að litlu ferðatöskurnar seldust upp á svipstundu, alls 11 stykki. Nú er 50% afsláttur af gull- fallegum leðurseðlaveskjum frá Mandarina Duck og um að gera að koma fljótt.“ Þuríður nefnir sérstaklega skóna frá danska merkinu LOFINA. „Það er gaman er að segja frá dönsku skóhönnuninni LOFINA sem er stofnuð af hjónunum Lise-Lotte og Morten Svenninggaard. Þau kynntust 18 ára gömul í skóiðn- námi, örlögin tóku taumana og þau eltu ástríðuna til Ítalíu til að læra handverkið til hins ítrasta. Þau ákváðu svo að flytja aftur til Danmerkur, stofnuðu skófyrir- tækið LOFINA árið 1996 og eru skórnir frá þeim nú fáanlegir í yfir 20 löndum.“ Skórnir eru einstaklega vand- aðir. „Um leið og maður stígur í skóna finnur maður að þeir eru hannaðir með ást og kærleika í huga. Þeir fara bæði vel á fæti og vel með fæturna og eru því uppá- haldsskórnir hjá flestum sem kom- ast í kynni við þá. Nú á að rýma vel til í búðinni og er 40% afsláttur af LOFINA skóm. Það er farið að vera pínu götótt í númerum en pottþétt mun einhver finna draumaskóna sína,“ segir Þuríður. „Ég vil líka minna á lífrænu snyrtivörurnar frá nýsjálenska fyrirtækinu ANTIPODES en þær eru nú á 20% afslætti. Svo erum við með sértilboð á andlitsraka- kreminu Immortal sem er með náttúrlegri sólarvörn SPF15 en kremið kostaði 5.500 kr. og er nú á 3.850 kr.“ Ný búð á Óðinsgötu 1 Það eru spennandi tímar fram undan hjá Bóel en í ágúst mun Þuríður Ottesen, eigandi Bóel, segir afar spenn- andi tíma fram- undan. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Leðurseðlaveskin frá Mandarina Duck eru nú á 50% afslætti eða á 9.500 kr. Sterk og flott regnhlíf frá Mandarina Duck sem fæst nú á 4.000 kr. Rakadagkremið frá Immortal fæst nú í 60 ml túpu á 3.850 kr. Handgerðir sandalar frá LOFINA á 40% afslætti og kosta núna 23.400 kr. Má með sanni segja að Skóla- vörðuholtið sé suðu- punktur hönnunar og upplifunar. Framhald af forsíðu ➛ Bumbutaskan frá Mandarina Duck er á 30% afslætti og kostar nú 11.500 kr. Handgerðir leðurskór frá LOFINA, á 40% afslætti, eða 29.400 kr. verslunin færa sig frá Skólavörðu- stíg og opna í nýju húsnæði á Óðinsgötu 1. Blaðamaður spyr hvort það sé áhættusamt að opna á nýjum stað. „Alls ekki, það verður ekki síðra, ef ekki betra,“ svarar Þuríður létt í bragði. „Það er að myndast svo sterkur hringur frá Skólavörðustíg að Óðinsgötu, Spítalastíg og Týsgötu, allur hringurinn er með hitalögn í öllum götum svo það er sumarfæri allt árið. Nú þegar á Óðinsgötu 1 er hið stórfenglega Heilsuhof og kaffi- húsið Systrasamlagið. Hringurinn eins og ég vil kalla hann saman- stendur af f lottum fyrirtækjum eins og Mengi, Smekkleysu, Geysi, Fasteignamarkaðinum, Snaps, Fríðu skarti og svo er Magnólía að koma inn í þessa fallegu festi.“ Framtíðin sé björt. „Fram- tíðin er að koma í miðbæinn til að upplifa og má með sanni segja að Skólavörðuholtið sé suðupunktur hönnunar og upplifunar og það er alveg sérstaklega gaman hvað það er að gerast organískt.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.