Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 32
Sumartónleikar í Skálholti verða haldnir 2. til 12. júlí. Í kirkjunni verða níu tón-leikar, tvennir fjölskyldu-tónleikar og tónleikaspjall á undan þrennum tón- leikum. „Þessi hátíð er í anda fyrri hátíða, áherslan er á tónlist fyrri alda og á nýja tónlist,“ segja Ásbjörg Jóns- dóttir og Birgit Djupedal sem eru listrænir stjórnendur og fram- kvæmdastjórar tónleikanna. Unnið með hljóðfæraleikurum Von var á erlendum barokkhljóm- sveitum til landsins en vegna COVID-19 varð ekki af því en þær mæta væntanlega á Sumartónleika að ári. „Við vildum alls ekki aflýsa Sumartónleikum en brugðum á það ráð að fresta stærstu viðburð- unum um ár. Þetta árið eru einungis innlendir f lytjendur auk þess sem við vorum búnar undir að allt gæti breyst með stuttum fyrirvara og að mögulega þyrftum við að miðla við- burðunum með öðrum hætti,“ segir Birgit. St aða r tón sk á ld Su ma r tón- leikanna í ár eru Þóranna Björns- dóttir og Gunnar Karel Másson og á lokatónleikunum mun KIMI-tríó frumflytja verk eftir þau sem samin voru sérstaklega fyrir Sumartón- leika. „Staðartónskáldin vinna með hljóðfæraleikurunum í Skálholti í tvær vikur. Við reynum að leggja áherslu á að tónlistarfólkið komi og njóti þess að vera sem mest í Skál- holti, upplifi staðinn og kirkjuna og vinni í rýminu,“ segir Ásbjörg. Fleiri verk verða frumflutt á Sum- artónleikum, þar á meðal frum- f lytur Aulos Ensemble verk eftir Kolbein Bjarnason og Elínu Gunn- laugsdóttur. Cantoque Ensemble f lytur Aldasöng eftir Jón Nordal. „Verkið samdi Jón í Skálholti árið 1986 en hann var fyrsta staðartón- skáldið þar og Hljómeyki frumflutti verkið. Núna pantaði Cantoque tvö ný verk eftir Steinar Loga Helgason og Hafstein Þórólfsson við önnur erindi úr Aldasöng,“ segir Birgit. Fjölskyldur koma saman Cauda Collective f lytur Þorláks- tíðir í eigin strengjaútsetningu en á undan tónleikunum mun Sig- urður Halldórsson, ásamt Cauda Collective, ræða um Þorlákstíðir. Tónleikaspjall verður einnig með Cantoque Ensemble og Steinari Loga og sömuleiðis verður rætt við staðarskáldin á undan lokatónleik- unum þar sem verk þeirra verða frumflutt. Fjölskyldutónleikar verða á sunnudögum. „Okkur langar til að bjóða fjölskyldum að koma saman og dagskráin verður sniðin að þeim. Börnin fá kynningu um orgelið og fiðludúett mun segja sögur af Jóhanni Sebastian Bach og Önnu Magdalenu Bach og spila verk eftir þau á milli,“ segir Ásbjörg og bætir við: „Það verður fjölbreytt og spennandi dagskrá á Sumartónleikunum fyrir fólk á öllum aldri.“ Fjölbreytt og spennandi dagskrá Sumartónleikar í Skálholti hefjast 2. júlí. Ásbjörg Jónsdóttir og Birgit Djupedal eru listrænir stjórnendur. Áhersla á hátíðinni verður á tónlist fyrri alda og nýja tónlist. Guðný Sara Birgisdóttir, myndlist- arkona og meistaranemi í hönnun við Listaháskólann, Ýr Jóhanns- dóttir, textíllistakona og nemi í listkennsludeild Listaháskólans, Jóhanna Malen Skúladóttir, jarð- vísindanemi í HÍ og teiknari, og Þórhildur Magnúsdóttir, víólunemi í Tónlistarháskólanum í Kaup- mannahöfn, eru sumarstarfsmenn Menningarhúsanna í Kópavogi í sumar. Þær sjá um smiðjur sem miða við aldurinn 10-14 ára, en verða opnar fyrir alla með áhuga á list- rænni sköpun. Leikið verður með bókmenntir, náttúru, sögu, tónlist og myndlist. Smiðjurnar hefjast í dag, 30. júní, eru ókeypis og verða alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga klukkan 13-15. Þriðjudagur 30. júní á Náttúrufræðistofunni: Tetris þrautasmiðja með Malen. Í smiðjunni er föndrað með Soma-kubb úr afgangspappír frá Svansprenti og við litum og skreytum kubbana að vild. Allir fá svo að taka sinn kubb með heim, og geta þá leyft foreldrum sínum og fleirum að spreyta sig á lausn gestaþrautarinnar. Miðvikudagur 1. júlí á Gerðarsafni: Klippimyndasmiðja með Guðnýju. Fallegir litir, form, möguleikar og uppröðun verða í fyrirrúmi í þess- ari smiðju. Skoðaðar klippimyndir Gerðar Helgadóttur myndhöggv- ara, sem safnið er kennt við. Fimmtudagur 2. júli á Gerðarsafni: Skapandi útsaumur og endur- vinnsla með Ýri. Í smiðjunni er unnið með strigaefni úr kaffi- pokum en efnin henta vel til útsaums en einnig verður unnið með efnivið frá fatasöfnun Rauða krossins á Íslandi. Form smiðj- unnar er frjálst þar sem efni, litir og áferð leiða för. Sumarspírur Menningarhúsanna Birgit og Ásbjörg eru listrænir stjórnendur og framkvæmdastjórar tónleikanna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is VIÐ REYNUM AÐ LEGGJA ÁHERSLU Á AÐ TÓNLISTARFÓLKIÐ KOMI OG NJÓTI ÞESS AÐ VERA SEM MEST Í SKÁLHOLTI, UPPLIFI STAÐINN OG KIRKJUNA OG VINNI Í RÝMINU. Sumarspírurnar eru starfsmenn menningarhúsanna í Kópavogí. Atvinnubílar E N N E M M / S ÍA / N M 0 0 1 4 6 5 4 x A tv in n u b í l a 5 x x 0 j n i Verð frá: 3.701.161 kr. án vsk. Verð frá: 4.969.677 kr. án vsk. Verð frá: 2.540.400 kr. án vsk.Verð frá: 5.390.000 kr. m. vsk. 100% RAFBÍLL/drægi 200 km* RENAULT TRAFIC DACIA DOKKERNISSAN e-NV200 4.590.000 kr. m. vsk. 6.150.000 kr. m. vsk. 3.150.000 kr. m. vsk. ÞRIGGJA ÁRA ÞJÓNUSTUPAKKI FYLGIR ÖLLUM NÝJUM ATVINNUBÍLUM Í JÚNÍ Kynnið ykkur rekstrarleigukjör á nýjum sendibíl Við bjóðum bíla í öllum stærðum til að takast á við fjölbreytt verkefni BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is*U p p g ef na r tö lu r um d ræ g i t ak a m ið a f ný ju m W LT P p ró fu nu m . A ks tu rs la g , hi ta st ig o g á st an d v eg a he fu r af g er an d i á hr if á d ræ g i r af b íla . RENAULT MASTER 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.