Fréttablaðið - 30.06.2020, Side 36
KVIKMYNDIR
Eurovision Song Contest:
The Story of Fire Saga
Netflix
Leikstjórn: David Dobkin
Aðalhlutverk: Will Ferrell, Rachel
McAdams, Dan Stevens, Pierce
Brosnan
Netf lix skrúfaði á föstudaginn
loksins frá streymi margumtalaðs
og langþráðs Eurovision-gríns
gamanleikarans Will Ferrell, Euro-
vision Song Contest: The Story of
Fire Saga, og myndin skaust beint í
fyrsta sæti yfir vinsælasta Netflix-
efnið á Íslandi.
Eðlilega, þar sem my ndin
fjallar um stórfenglegar hrakfarir
íslenskra Eurovision-fara og er að
hluta tekin upp hérna, með Húsa-
vík sem miðju hallærislegrar sögu-
heimsmyndarinnar. Þá fer hala-
rófa íslenskra leikara með misstór
aukahlutverk þannig að land og
þjóð setja vægast sagt sterkan svip
á myndina.
The Story of Fire Saga er eitthvað
svo undarlega „íslensk“ að maður
þarf af og til að minna sig á að hér
er um fokdýra ameríska framleiðslu
að ræða en ekki fjórðu myndina í
Lífs-flokki Þráins Bertelssonar þar
sem Vestmannaeyjar hafa breyst í
Húsavík og Þór og Danni vikið fyrir
þeim Lars og Sigrit í Júróvisjónlífi.
Hallærismet
Myndin hefst í Húsavík 1974 þar
sem Lars Erickssong litli sér Abba
sigra í Eurovision í beinni útsend-
ingu í lit í krafti djarfrar söguföls-
unar. Draumur drengsins um að
syngja sig til sigurs í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva vaknar
um leið og örlög hans ráðast og allt
sem hann og æskuvinkona hans,
Sigrit, gera í framtíðinni miðast við
þetta eina takmark.
Þegar Pierce Brosnan hefur for-
dæmt Abba-bröltið á skemmtilega
bjagaðri íslensku, í hlutverki föður
Eriks, víkur sögunni til vorra daga
þar sem Lars og Sigrit hafa full-
orðnast sem Will Ferrell og Rachel
McAdams.
Allt annað virðist frosið í tíma
og Ísland í dag er enn skrumskæld
Húsavík 1974 og því þarf engan að
undra að þegar æskuvinirnir fá
tækifæri til þess að keppa í Euro-
vision fyrir Íslands hönd þá þurfa
þau ekkert að hafa fyrir því að setja
alveg ný viðmið í hallærislegheitum
í margrómaðri Evrópumeistara-
keppninni í hallærislegheitum og
lélegum tónsmíðum.
Einhverjir hafa tekið að sér að
móðgast fyrir hönd Íslendinga
vegna þess hvernig mörlandinn
birtist í myndinni en það er vita-
skuld fullkominn óþarfi. Íslend-
ingar vita þjóða best að öll athygli
er betri en engin og þjóðin er vita-
skuld löngu orðin svo hipp og kúl á
vettvangi alþjóða að geta vel staðið
hlæjandi undir þessu góðlátlega
skensi.
Þá þurfum við hvorki að skamm-
ast okkar fyrir álfana okkar né
leikarana sem koma sveitó stemn-
ingunni fullkomlega til skila með
Hannes Óla Ágústsson fremstan
meðal senuþjófa í hlutverki digur-
barkans Olaf Yohansson sem heldur
til streitu þeirri fullkomlega eðli-
legu kröfu að við fáum að heyra Jaja
Ding Dong sem oftast.
Kunnuglegt stef
The Story of Fire Saga sver sig full-
komlega í ætt við allar aðrar gaman-
myndir sem hverfast um Will Fer-
rell og þroskasögu einhvers konar
lúða eða hrokagikks sem þarf að
hlaupa á nokkra múrveggi til þess
að sjá villur síns vegar og rísa upp
sem góðmennið sem hann er í raun
og veru er.
Ferrell reynir þarna ekki einu
sinni að finna upp hjólið, þótt
hann fari mikinn í hamsturshjóli
þegar myndin tekur almennilega
f lugið. Hann er bara Will Ferrell
og lætur sér, að því er virðist, bara
lynda ágætlega að standa sem slíkur
í skugga Rachel McAdams sem setur
miklu meiri dýpt og tilfinninga-
trukk í túlkun sína á Sigrit.
Handrit Ferrells og Andrews
Steele er hriplek hrákasmíð þar
sem þeir hirða varla um að hnýta
nokkra enda saman og teygja jafn-
vel lopann með samsöng þekktra
Eurovision-keppenda í senu sem
gæti verið beint úr Baywatch-þætti.
Höfundarnir hafa ekki einu sinni
fyrir því að magna upp almenni-
lega ógn í glysgjörnum höfuðand-
stæðingnum, fulltrúa Rússlands.
Það kemur þó vart að sök þar sem
hann er, í meðförum Dans Stevens,
bara svo fullkomlega dásamlegur
og yfirkeyrður í glamúrnum og
glimmerinu.
Kostuleg þvæla
Í raun má segja það sama um mynd-
ina alla. Hún er hálfgert drasl. Laus-
beisluð og þvæla þar sem runu af
kostulegum uppákomum og vissu-
lega vænum slatta af góðum og
fyndnum bröndurum er klastrað
saman með ómótstæðilega grípandi
„júróvisjón-lögum“ með tilheyrandi
sviðsetningum og diskóglimmeri.
Kannski er sú staðreynd að það
er ómögulegt að paródera paródíu
stærsti galli og um leið helsti kostur
myndarinnar. Vissulega er gert góð-
látlegt grín að Eurovision en, að því
er virðist, af talsverðri væntum-
þykju og virðingu fyrir fyrirbærinu
þannig að Will Ferrell og hans lið
hlær hér með Eurovision miklu frek-
ar en að henni. Mögulega eina vitið í
þessari vitleysu þar sem Eurovision
er svo mikill skrípaleikur í eðli sínu
að það er varla hægt að gera sann-
færandi grín að henni. Í það minnsta
ekki ljótt grín. Það yrði alltaf glatað.
Betra Eurovision en Eurovision
Köf lótt og losaraleg sagan gerir
það að verkum að framan af þarf
að beita sig dálitlum aga til þess
að halda athyglinni sem er að vísu
alveg í anda Eurovision sem hefur
allt of langan aðdraganda að flug-
eldasýningu í söng og dansi sem
þyrfti í raun ekki að taka mikið
meira en klukkustund.
Þegar The Story of Fire Saga tekur
loks flugið á stóra sviðinu neglir hún
þetta fullkomlega og verður betra
Eurovision en Eurovision. Lögin
sem samin eru fyrir myndina eru öll
þvottekta og grípandi „júróvisjón-
lög“ og jafnvel mun betri en gengur
og gerist. Sama má segja um svið-
setninguna. Allt 100% Eurovision.
Bara aðeins betra.
Ekkert toppar samt vinsælasta lag
Sigritar og Lars á barnum í Húsavík,
Jaja Ding Dong, sem kjarnar í raun
myndina og boðskap hennar. Þetta
er einföld og innantóm þvæla, ómót-
stæðilega grípandi og yndisleg í ein-
lægum hallærislegheitum sínum.
Alveg eins og þessi mynd og alveg
eins og Eurovision.
Þórarinn Þórarinsson
NIÐURSTAÐA: Eurovision-myndin
hans Wills Ferrell er undarlegt furðu-
verk sem er í grunninn illa skrifað drasl
en fangar um leið fyrir grunnrista galdra
anda viðfangsefnisins svo fullkomlega
að um einhvers konar meistaraverk
hlýtur að vera að ræða.
Jaja Ding Dong!
Will Ferrell og Rachel McAdams syngja sig í gegnum ósköp einfalda og hugljúfa sögu sem er pakkað saman í
leiftrandi Eurovision-umgjörð þar sem kjarni málsins er ekki flóknari en jaja ding dong. MYND/NETFLIX
Sumar
útsala
Frábær útsala
í fjórum búðum
verslaðu á dorma.is eða í DORMA
verslun og við sendum þér vörurnar frítt
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Frábær útsala
í fjórum búðum
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r vörurnar frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM ÚTSÖLUBÆKLINGIN
N OKKAR
Dýna og hjól 2-3 | Mjúkva
ra og dúnn 4–11 | RÚM 12–2
1 | Svefnsófar 22–23 | Sófa
r 24–34 | Stólar 35–39 | Bo
rð og smávara 40–55
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
SENDUM
FRÍTT
Sumar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Þú kaupir Oakley eða
Everly heilsudýnu eða
heilsurúm sem afhent
er í boxi á hjólum og
færð innifalið glæsilegt
Aspen fjallahjól*
RENNDU ÞÉR INN Í SUM
ARIÐ!
* á meðan birgðir endast
Sjá nánar bls. 2–3
DÝ
N
A
Góður svefn
Hjólreiðatúr
Þú finnur
nýjan
útsölu-
bækling
á dorma.is
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
SENDUM
FRÍTT
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ