Fréttablaðið - 23.07.2020, Page 6
Það selst allt jafn-
óðum um leið og
það kemur inn
Kristín Anný Jónsdóttir,
sölustjóri Víkurverks
FERÐALÖG Öll framleiðsla þessa árs
er uppseld hjá íslenska sporthýsa
framleiðandanum Mink Campers,
að sögn Arnar Ingva Jónssonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Þrátt fyrir að kórónuveirufarald
urinn hafi haft ýmis vandræði í
för með sér fyrir Mink Campers,
eins og f lest önnur framleiðslu
fyrirtæki, urðu forsvarsmenn fyrir
tækisins varir við mikla aukningu í
fyrirspurnum og pöntunum, segir
Örn.
Fyrirhugað er að framleiða 60
sporthýsi á þessu ári hjá Mink
Campers að sögn Arnar. Um þessar
mundir stendur fjármögnunarferli
fyrirtækisins yfir á hópfjármögn
unarsíðunni Funderbeam. Að fjár
mögnunarferli loknu er áætlað að
f lytja framleiðslu fyrirtækisins til
Lettlands, þar sem afkastagetan er
áætluð 450–500 sporthýsi á næsta
ári og allt að 1.500 eintök á ári frá
árinu 2022.
Mink Campers leitar sér nú fjár
mögnunar fyrir að minnsta kosti
500 þúsund evrur, en yfir 92 pró
sent af þeirri fjármögnun hefur
þegar verið tryggð. Fyrir þá fjár
hæð er 13% hlutur í fyrirtækinu til
sölu, sem þýðir að verðmæti þess er
metið á um 3,3 milljónir evra sem
stendur, eða sem nemur um 528
milljónir króna.
„Kórónuveirufaraldurinn reynd
ist okkur erfiður, erlendir birgjar
lokuðu margir hverjir og við gátum
hreinlega ekki fengið íhluti. Við
þorðum ekki öðru en að hefja fram
leiðsluna hér heima núna í haust en
hún mun færast alfarið til Lettlands
í september og október,“ segir Örn,
sem bætir við að fyrirtækið hafi
þegar tryggt sér starfsstöð og ráðið
lykilstarfsfólk þar eystra.
Fjölmargir landsmenn hafa nýtt
sumarfríið til að ferðast innanlands
þetta sumarið. Örn segir að Mink
Campers hafi ekki farið varhluta af
þeirri þróun, enda hafi eftirspurn
ferðahýsa af ýmsu tagi aukist mikið
í kjölfarið: „Fólk virðist kjósa að
ferðast meira á eigin vegum þessi
misserin. Við teljum að COVID
faraldurinn muni styrkja okkar
rekstur til lengri tíma þó auðvitað
hafi þetta verið mjög óheppilegt til
skemmri tíma.“
Aukinnar eftirspurnar hefur
orðið vart víðar í sama geira.
Kristín Anný Jónsdóttir, sölustjóri
Víkurverks, sem selur tjald og
ferðahýsi, tekur í sama streng og
Örn. „Það selst allt jafnóðum um
leið og það kemur inn,“ segir hún.
Kristín telur að söluaukning á
ferðahýsum fyrirtækisins sé um
40% frá síðasta ári.
thg@frettabladid.is
Öll framleiðsla þessa
árs þegar uppseld
Sporthýsaframleiðandinn Mink Campers hefur þegar selt alla framleiðslu
þessa árs. Eftirspurn ferðahýsa af ýmsu tagi hefur aukist eftir kórónuveirufar-
aldurinn. Sölustjóri Víkurverks telur að söluaukning þessa árs sé um 40%.
FERÐAMENNSKA Hótel Holt mun
verða opnað aftur þann 1. septem
ber næstkomandi og er þegar byrjað
að taka við bókunum. Viðræður við
nýja rekstraraðila fyrir veitingastað
hótelsins eru yfirstandandi, en ekki
er víst hvort takist að opna veitinga
staðinn á sama tíma og gistirýmið.
Bókanir eru þegar farnar að berast
fyrir haustið, segir Hrönn Greips
dóttir, stjórnarformaður hótelsins.
Holtið skellti í lás í byrjun apríl á
þessu ári, eftir að COVID19 farald
urinn hóf innreið sína á Íslandi. Nær
öllu starfsfólki hefur verið sagt upp,
en að jafnaði voru um 25–30 starfs
menn í vinnu hjá hótelinu.
Hluti starfsliðsins verður ráðinn
aftur þegar hótelið verður opnað
í september. Þjónustustig hótels
ins verður þó með breyttu sniði,
í það minnsta framan af. Til að
mynda verður ekkert morgunverð
arhlaðborð til að byrja með, segir
Hrönn. Innréttingar Hótel Holts eru
friðaðar og eðli málsins samkvæmt
verður útlit hótelsins óbreytt við
opnun þess í haust.
Rekstur Hótel Sögu hefur haldið
áfram í breyttri mynd frá því í vor,
en herbergi hafa meðal annars verið
boðin út í langtímaleigu. Veitinga
staðnum Grillinu var hins vegar
lokað fyrripartinn í apríl. Nýlega
sótti félagið um greiðsluskjól frá
kröfuhöfum sínum.
Sigurður Kári Kristjánsson lög
maður er umsjónarmaður Hótel
Sögu í því ferli. Að sögn Sigurðar
Kára er fjárhagsleg endurskipulagn
ing bæði rekstrarfélags hótelsins
og fasteignafélagsins til skoðunar í
heild sinni, og er veitingastaðurinn
Grillið þar með talinn. Sem stendur
eru engar viðræður í gangi við hugs
anlega rekstraraðila. Frestur Hótel
Sögu til að klára fjárhagslega endur
skipulagningu rennur út þann 7.
október næstkomandi. – thg
Hótel Holt opnað aftur í september
Allar innréttingar sem prýða Hótel Holt eru friðaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Örn Ingvi Jónsson, framkvæmdastjóri Mink Campers, segir að COVID-19 gæti styrkt reksturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Abra- kadabr ...
ANANAS!
GRILLAÐUR
Á
T
EI
N
I
ANANA
S
Fáðu töfra
innblástur á
kronan.is/
töfrar
griað sumar
Þe a verður
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð