Fréttablaðið - 23.07.2020, Qupperneq 8
Ef hlýnunin verður
nærri efri mörk-
unum höfum við nánast
enga möguleika á því að ná
markmiðum
Parísarsam-
komulagsins
Steve Sherwood,
prófessor
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
LOKADAGAR
ÚTSÖLU
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
UNGVERJALAND Aðalritstjóri helsta
óháða fréttavefs Ungverjalands,
index.hu, hefur verið rekinn úr
starfi sínu. Ákvörðunin var tekin um
mánuði eftir að ritstjórinn, Szabolcs
Dull, sagði að sjálfstæði miðilsins
gagnvart stjórnvöldum væri í hættu.
Fyrir tæpum tveimur árum setti
index.hu upp sérstakan mæli, sem
mælir hversu frjáls fréttaflutning-
urinn er. Þann 21. júní síðastliðinn
var ákveðið að færa nálina frá því
að miðillinn væri frjáls og yfir í að
frelsið væri í hættu.
Fyrr á árinu komst viðskipta-
maðurinn Miklos Vaszily til áhrifa
á miðlinum í gegnum fjármögnun
hans. Vaszily er hliðhollur ungversk-
um stjórnvöldum og forsætisráð-
herranum Victor Orban, en index.
hu er langstærsti miðillinn í landinu
sem er gagnrýninn á stjórnvöld.
Í yfirlýsingu frá stjórnarformanni
sjóðsins, sem á útgáfufélag index.
hu segir, að ritstjóranum hafi mis-
tekist að ná stjórn á innri átökum
á miðlinum í kjölfar aðkomu Vas-
zily. Það hafi komið niður á tekjum
þar sem auglýsendur héldu að sér
höndum. Sjálfstæði index.hu væri
ekki í hættu. – sar
Ritstjóri rekinn
fyrir gagnrýni
Barist við gróðurelda í Grikklandi
Gróðureldar geisa í þorpinu Kechries í Grikklandi en eldarnir hafa ágerst vegna sterks vinds á svæðinu. Þrjú hverfi og sumarbúðir barnahóps voru
rýmd í gær en 77 slökkviliðsmenn, með 26 slökkviliðsbíla að vopni, tvær f lugvélar og fimm þyrlur, hafa verið við slökkvistörf. MYND/EPA
COVID-19 Lyfjafyrirtækið AstraZe-
nece, sem er í samstarfi við vísinda-
menn hjá Oxford-háskólanum að
þróa bóluefni gegn kórónuveir-
unni, gerir ráð fyrir að efnið verði
komið á alþjóðamarkað fyrir lok
þessa árs.
„Við erum að stefna að því að
allir geti fengið bóluefnið á kostn-
aðarverði. Við vonumst til þess að
geta byrjað að framleiða efnið fyrir
árslok,“ segir Pascal Soriot, fram-
kvæmdastjóri AstraZeneca.
Fyrsti og annar fasi tilrauna með
bóluefnið gekk vel og kallaði bólu-
efnið fram ónæmi gegn veirunni.
Þriðji fasinn verður svo fram-
kvæmdur næsta haust.
Miðað er við að einn skammtur af
bóluefninu muni kosta sem nemur
um það bil 400 íslenskar krónur.
Lyfjafyrirtækin Johnson & Johnson,
Pfizer, Merck og Modena eru einnig
að þróa bóluefni gegn veirunni. – hó
Þróun bóluefnis
gengur afar vel
LOFTSLAGSMÁL Ný alþjóðleg rann-
sókn bendir til þess að hægt sé að
útiloka bæði bestu og verstu sviðs-
myndir áhrifa losunar gróðurhúsa-
lofttegunda á hlýnun jarðar.
Millir ík janef nd Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsmál hefur frá
árinu 2013 miðað við að tvöföldun
losunar frá því fyrir iðnbyltingu
myndi líklega leiða til hækkunar
hitastigs um 1,5 til 4,5 gráður.
Samkvæmt rannsókninni sem
birtist í gær í vísindaritinu Reviews
of Geophysics er nú talið að hækk-
unin yrði á bilinu 2,6 til 4,1 gráða.
Hópur vísindamanna hefur unnið
að rannsókninni undanfarin fjögur
ár.
Í grein sem fjórir höfundanna
skrifuðu á breska vefmiðilinn
CarbonBrief, sem sérhæfir sig í
umfjöllun um loftslagsmál, segja
þeir að þrátt fyrir aukna þekk-
ingu og fjölda rannsókna hafi mat
á þessum áhrifum á hitastigið lítið
breyst síðustu 40 árin.
Þeir segja að niðurstöðurnar þýði
að mannkyn geti ekki treyst á að
það sem áður voru talin lægri mörk
hlýnunar raungerist. Góðu frétt-
irnar séu hins vegar þær að verstu
sviðsmyndirnar séu nú taldar mjög
ólíklegar.
Hlutfall koldíoxíðs í andrúms-
loftinu er nú um 416 milljónarhlutar
(ppm) en var 280 ppm fyrir iðnbylt-
ingu. Ef ekki verður gripið til frekari
aðgerða til að draga úr losun mun
hlutfallið frá því fyrir iðnbyltingu
tvöfaldast í kringum árið 2060.
Einn vísindamannanna, Zeke
Hausfather hjá Berkley-háskóla í
Kaliforníu, segir í samtali við The
Guardian að niðurstöðurnar þýði
að meira þurfi að gera til að draga
úr hlýnun jarðar. „Við erum ekki
nálægt því að vera á réttri leið þar.“
Aðalhöfundur rannsóknarinnar,
Steve Sherwood, sem er prófessor
við Háskólann í Nýja Suður-Wales
í Ástralíu, segir að gríðarlega mikil-
vægt sé að auka skilning á áhrifum
losunar á hlýnun.
„Ef hlýnunin verður nærri efri
mörkunum höfum við nánast enga
möguleika á því að ná markmiðum
Parísarsamkomulagsins og þyrftum
að fara í yfirgír til að koma í veg
fyrir hamfarir,“ segir Sherwood við
The Guardian.
Samkvæmt Parísarsamkomulag-
inu á að takmarka hlýnun jarðar við
2 gráður miðað við hvernig það var
fyrir iðnbyltingu.
sighvatur@frettabladid.is
Draga í land varðandi
spár um hitastig jarðar
Tvöföldun hlutfalls koldíoxíðs í andrúmslofti miðað við hlutfallið fyrir iðnbylt-
ingu mun hækka hitastig jarðarinnar um 2,6 til 4,1 gráðu en ekki 1,5 til 4,5 gráður
eins og áður var talið. Þetta benda niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar til.
Frá loftslagsmótmælum í þýsku borginni Datteln á dögunum. MYND/EPA
BANDARÍKIN Sendiherra Bandaríkj-
anna í Bretlandi, Woody Johnson,
hefur verið sakaður um að hafa
viðhaft rasísk og niðrandi ummæli
um konur og fólk af afrísku bergi
brotnu. Í ítarlegri umfjöllun CNN
um málið koma fram mörg meint
ummæli hans frá ónafngreindum
heimildarmönnum sem vart sæma
manni í hans stöðu. CNN heldur
fram að Johnson hafi sætt rannsókn
í bandaríska innanríkisráðuneytinu
fyrir meint athæfi sitt sem og vegna
ásakana um að hann hafi nýtt stöðu
sína til þess að ýta undir rekstur fyr-
irtækja sem Donald Trump Banda-
ríkjaforseti tengist með einhverjum
hætti.
Johnson var tilnefndur í hina mik-
ilvægu sendiherrastöðu af Trump og
er afar hliðhollur honum. Hann er
vellauðugur enda einn af erfingjum
Johnson & Johnson-veldisins. – bþ
Sendiherrann í
basli í Bretlandi
Woody Johnson. MYND /EPA
2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð