Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.07.2020, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 23.07.2020, Qupperneq 14
2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Biðin eftir þeim stóra hefur verið löng og ströng fyrir stuðnings-menn Liverpool, eða þrjátíu ár. Eftir að hafa hampað titlinum 1990, endaði Liverpool í öðru sæti tíma- bilið á eftir, en Arsenal, sem tapaði aðeins einum leik allt tímabilið, lyfti meistaratitlinum. Það ár setti Microsoft MS Dos 5.0 á markaðinn, Nevermind kom út og vinsælustu myndirnar voru Terminator 2: Judg- ment Day og Anthony Hopkins sem Hannibal Lecter í The Silence of the Lambs. Eftir að Úrvalsdeildin var sett á laggirnar árið 1992 var Liverpool töluvert langt á eftir grönnum sínum í Manchester United og end- uðu 25 stigum á eftir þeim. Áður en EM fór fram í Englandi 1996 endaði Liverpool 11 stigum á eftir Manc- hester United og tapaði fyrir þeim í bikarúrslitum. Stan Collymore kom fyrir metfé og skoraði sigur- mark gegn Newcastle í einum besta leik sögunnar sem endaði 4-3. James Bond sneri aftur á hvíta tjaldið og Playstation kom á markað. 30 stig í Arsenal Um aldamótin kom Emile Heskey í framlínuna fyrir 11 milljónir punda Þrjátíu ára þjáningarsögu loks lokið Liverpool fékk enska meistaratitilinn afhentan í gærkvöldi eftir tímabil sem fer, fyrir ýmsar sakir, í sögubækurnar. Sé sögubókin opnuð má sjá að ýmislegt hefur gerst á þessari þrjátíu ára leið Liverpool að titlinum. Til dæmis Facebook, fjármálahrun og YouTube. Það hefur margt gerst á þeim þrjátíu árum sem stuðningsmenn Liverpool hafa beðið eftir enska meistaratitlinum. og Slumdog Millionaire sló í gegn. En liðið tók skref aftur og endaði í sjöunda sæti árið 2010 og Carlsberg hvarf af búningunum eftir 18 ára veru. Benitez kvaddi einnig. Brendan Rodgers birtist fyrir átta árum og þótt hann hafi byrjað rólega var ljóst að það var eitthvað að gerast á Anfield. Sir Alex Fergu- son kvaddi með titli og var Liver- pool 28 stigum á eftir. Tímabilið 2013–2014 var árið sem Liverpool átti að vinna en Steven Gerrard klúðraði því með því að renna á rassinn gegn Chelsea og endaði Liverpool aðeins tveimur stigum á eftir Manchester City. Fullkomið púsluspil Áttunda október 2015 var svo til- kynnt að Jurgen Klopp hefði tekið við stjórnartaumunum. Alls fylgd- ust 35 þúsund með f lugferðinni hans á f lightradar.com og þó byrj- unin hafi verið hæg þá var ljóst að eitthvað var í pípunum. Í fyrra mun- aði aðeins einu stigi eftir æsilegasta endasprett síðari tíma. Liðið lyfti Meistaradeildarbikarnum og hefur tekið þetta tímabil nánast í nefið. Enginn hefur ógnað þeim og Liver- pool eru svo sannarlega verðugir meistarar. benediktboas@frettabladid.is en liðið endaði í fjórða sæti. Gerard Houllier stýrði sínu fyrsta tímabili og átta leikmenn komu en þrett- án fóru. Liðið endaði 24 stigum á eftir Manchester United. Ári síðar lyfti liðið þremur bikurum, meðal annars Evrópubikar eftir 17 ára bið. Liðið vann Alaves 5-4 í stórkost- legum úrslitaleik. Árið 2004 fagnaði Arsenal titl- inum með því að fara taplaust í gegnum tímabilið og var Liverpool heilum 30 stigum á eftir þeim. Rafa Benitez kom inn og Michael Owen fór til Madrídar eftir að hafa skorað 158 mörk í 297 leikjum. Grikkland vann EM, Mark Zuck- erberg stofnaði vefsíðu og Halle Berry fékk Óskarinn. Fjármálahrun og forsetar Liverpool vann AC Milan í úrslita- leik Meistaradeildarinnar eftir vítaspyrnukeppni í trúlega eftir- minnilegasta úrslitaleik sögunnar. Ljóshærði Spánverjinn Fernando Torres var keyptur og tímabilið 2007 byrjaði af krafti og var liðið efst eftir sex leiki. Það hélt þó ekki út og end- aði liðið ellefu stigum á eftir Man. United. Fjármálahrun varð svo ári síðar með alls konar ógæfu fyrir marga en það tímabil endaði Liver- pool aðeins fjórum stigum á eftir Manchester United. Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna Eðlilega var gleðin gríðarleg þegar Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, handlék bikarinn sem stuðningsmenn hafa beðið eftir í slétt þrjátíu ár. Þegar Fréttablaðið fór í prentun var gleðin mikil fyrir utan Anfield, þótt lögregla og yfirvöld hafi biðlað til stuðningsmanna um að fagna heima í stofu. Sumir réðu einfaldlega ekki við sig. Eðlilega. Þrjátíu ára bið er nú loks lokið. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.