Fréttablaðið - 23.07.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 23.07.2020, Síða 16
Elskulegur eiginmaður minn, Þórður Guðmundur Sæmundsson sem varð bráðkvaddur þann 11. júní síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þann 28. júlí næstkomandi, kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda Drífa Sigurbjarnardóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Gestsdóttir Garðatorgi 17, Garðabæ, lést á Landspítalanum, þann 17. júlí. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju, mánudaginn 27. júlí, klukkan 13.00. Jóhann Þórir Gunnarsson Herdís Hermannsdóttir Gestur Þorsteinn Gunnarsson Helga Skúladóttir Elísabet Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Einar Sigurður Björnsson Dagmar Gunnarsdóttir Jóhann Áki Björnsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna (Stella) Halldórsdóttir Hjarðarhaga 38, Reykjavík, lést mánudaginn 20. júlí, á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Lindakirkju, Kópavogi, miðvikudaginn 29. júlí, kl. 13. Magnús Þ. Jónsson Guðmundur Guðbjörnsson Friðbjörg Blöndahl barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigþór Sigurðsson netagerðarmeistari, Sóleyjarima 3, lést mánudaginn 20. júlí sl. á Landspítalanum við Hringbraut. Útför auglýst síðar. Ingigerður Anna Guðmundsdóttir Ragnheiður Guðrún Sigþórsdóttir Bjarki Sigþórsson Björk Valdimarsdóttir Sigríður Sigþórsdóttir Hilmar K. Lyngmo barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför móður okkar og tengdamóður, Bryndísar Þorsteinsdóttur sem lengst af bjó að Laugarásvegi 63, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Grundar, fyrir frábæra umönnun, nærgætni og hlýju. Dagný Helgadóttir Gunnar H. Egilson Árni B. Helgason Rósa Guðný Jónsdóttir Guðrún Helgadóttir Atli Rúnar Halldórsson Þorsteinn Helgason Jónína Á. Steingrímsdóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Sigurðsson bifreiðastjóri, frá Sleitustöðum í Skagafirði, sem lést á heimili sínu, mánudaginn 13. júlí, verður jarðsunginn frá Hóladómkirkju, föstudaginn 24. júlí, kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sælureit ættarinnar, Fagralund, sem honum var einkar hugleikinn. Reynir Þór Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir Íris Hulda Jónsdóttir Björn Gunnar Karlsson Gísli Rúnar Jónsson Lilja Magnea Jónsdóttir Skúli Hermann Bragason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ólafur Halldór Garðarsson lést í faðmi fjölskyldunnar, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sunnudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 5. ágúst, kl. 13. Óli Haukur Mýrdal Ína Hrund Ísdal Sunna Dís Ólafsdóttir Daníel Árnason Hanna Þurý Ólafsdóttir Garðar Ólafsson Thelma Guðlaug Arnardóttir og afabörn. Kæru ættingjar og vinir. Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför yndislegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Bryndísar Ottósdóttur Kópavogstúni 12, sem varð bráðkvödd fimmtudaginn 2. júlí og jarðsungin frá Hallgrímskirkju 15. júlí. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Gjörgæsludeildar í Fossvogi. Kristján Árni Baldvinsson Ingigerður Guðmundsdóttir Haraldur Eiríksson Edda Guðmundsdóttir Angus Brown Rannveig Ása Guðmundsd. Ármann Davíð Sigurðsson Magnús Ari Guðmundsson Jake Alexander, Goði, Kári, Bryndís Aría og Viktor Breki Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Guðmundsson Hjallahlíð 25, Mosfellsbæ, lést á æðaskurðlækningadeild Landspítalans, þ. 17. júlí, 2020. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn 29. júlí, kl. 13.00. Björg Guðnadóttir Álfheiður Arnardóttir Guðni Þór Skúlason Sigurbjörg Ámundadóttir Ragnheiður Linda Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hálfrar aldar afmælið átti bara að líða í kyrrþey en ég  gaf dóttur minni Snærós og kærustunni Sigrúnu leyfi til að halda upp á það ef þær vildu. Það var eins og við manninn mælt, mér skilst að hér verði hátt í hundrað manns og tjaldað í garðinum,“ segir hinn fimm- tugi Sindri Freysson. Hann kveðst svo klókur að skipta sér ekkert af undir- búningi veislunnar en vinna þó þau verk sem honum eru falin. „Ég veit ósköp lítið nema að ég ætla að mæta,“ segir hann. Sindri stefnir norður á ættaróðalið Haga í Aðaldal eftir helgi. „Þangað fer ég til að hlaða batteríin og skrifa, enda liggja ræturnar þar og frá þeim streymir góð orka. Svo er stutt þaðan í náttúru- perlur eins og Mývatn og Hljóðakletta.“ Þegar Sindri var barn var nafnið hans sjaldgæft. „Ég held ég hafi verið sjötti eða sjöundi Sindrinn á landinu og fólk hváði þegar ég sagði til nafns. Nú heita margir Sindri. Pabbi vill meina að það skýrist af því að ég hafi unnið samkeppnir í smá- sagnagerð þegar ég var ungur og komið nafninu á kortið. Ég er ekki jafn sann- færður. Föðurafi Sindra var heillaður af goða- fræðinni og skírði öll börn sín eftir per- sónum í henni, að  sögn Sindra,  þau eru Dagur, Hringur,  Hugi, Völundur, Snær, Freyr, Heiður og Fríður. „Þegar ég var krakki lét ókunnugt fólk mig þylja nöfnin upp eins og það væri sirk- usatriði en þau hafa flotið greiðlega inn í íslenska málvitund og nafnaheim en ég þurfti í gegnum mannanafnanefnd þegar ég valdi nöfn á börnin mín þrjú og rótburstaði hana í öll skiptin. Snæ- rós var fyrst, í dag bera nokkrar stúlkur það nafn en enginn hefur enn tekið upp nöfn sona minna. Seimur er að verða átján ára og Skær er nýorðinn tólf ára. Sumir héldu fyrst að Sindri Freysson væri bara skáldanafn, fannst það ekta dulnefni. En í dag hefur nafnið fest sig nægjanlega í sessi til að ég geti sleppt áhyggjum af því.“ Sindri er með tvær bækur í smíðum. Hann segir hugmyndir stöðugt poppa upp, galdurinn sé að fanga þær áður en klukkan ýti þeim út. „Það dugar ekki að ætla að muna eitthvað daginn eftir,“ útskýrir hann og segir næturnar drýgstar til skrifta. „Stundum er talað um A- og B-manneskjur en ég er C- manneskja sem geng til náða þegar annað fólk er að fara á fætur. Móðir mín og systir eru svona líka. Okkar tími er nóttin. Það er gríðarlegur kraftur í nótt- inni.“ Önnur áhugamál en skriftir? „Ég hlusta á tónlist, horfi á kvikmyndir og fer í veiði í laxá þegar tækifæri gefast. Það fellur undir núvitund í dag að standa úti í streymandi á í endalausri náttúrufegurð.“ gun@frettabladid.is Ætlar að mæta í afmælið  Sindri Freysson rithöfundur er fimmtugur. Þegar hann fæddist voru fáir Sindrar í landinu. Faðir hans rakti fjölgun þeirra til velgengni sonarins í smásagnakeppnum. „Sumir héldu fyrst að Sindri Freysson væri bara skáldanafn, fannst það ekta dulnefni,“ segir afmælisbarnið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR Stundum er talað um A og B manneskjur en ég er C mann- eskja sem geng til náða þegar annað fólk er að fara á fætur. 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.