Fréttablaðið - 23.07.2020, Side 32

Fréttablaðið - 23.07.2020, Side 32
Gu ð m u n d u r I n g i Markússon er höf-undur skáldsögunn-ar Skuggabrúin en fyrir hana fékk hann á dögunum Nýrækt- arstyrk Miðstöðvar íslenskra bók- mennta. Skuggabrúin er ekki fyrsta sagan sem Guðmundur skrifar. „Þetta er þriðja alvarlega tilraunin og annað handritið sem ég lýk við,“ segir hann. „Hugmyndina fékk ég fyrir löngu en það tók tíma að finna réttu leiðina og læra að hlusta á sjálfan sig. Þar kemur margt til en það var ekki síst eftir lestur On Writing eftir Stephen King að ég öðlaðist trú á eigin rödd og aðferðum. Þá snerist þetta um að finna rútínu, sjálfsaga og tíma.“ Ísilögð veröld Spurður um söguþráðinn segir Guðmundur: „Sagan gerist í fjar- VIÐ FYLGJUM ÞEIM EFTIR UM ÍSILAGÐA VERÖLD ÞAR SEM BÆÐI ÖRLÖG ÞEIRRA OG ÖRLÖG HEIMSINS ERU UNDIR. Skáldsaga sem gerist í myrkum heimi Guðmundur Ingi Markússon fékk Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir skáldsöguna Skuggabrúin. Bók eftir Stephen King gaf honum trú á eigin rödd. „Hugmyndina fékk ég fyrir löngu en það tók tíma að finna réttu leiðina,“ segir Guðmundur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Í dag, fimmtudaginn 23. júlí, frá klukkan 16.00 –19.00, verður boðið upp á ókeypis viðburði við Hönnunarsafn Íslands og á gras- flöt á Garðatorgi. Kúluhúsasmiðja fer fram við Hönnunarsafnið en það er myndlistarkonan Jóhanna Ásgeirsdóttir sem leiðir smiðjuna. Kúluhúsið verður gert úr bambus og skreytt með blómum og öll fjöl- skyldan getur tekið þátt en smiðjan hefst klukkan 16.00. Klukkan 18.00 koma Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og félagar og leika swing-djass fyrir gesti Garðatorgs. Viðburðirnir eru liður í tilraun bæjarins til að efla ókeypis viðburðahald og skapa góðar sam- verustundir fyrir fjölskyldur, við- burðirnir fara fram utandyra ef veður leyfir. Sumarfjör á Garðatorgi Reykjavík Safarí menningar-gangan verðu r haldin í tólfta sinn í dag, fimmtudag, klukkan 20.00–22.00. Hún hefst í Borgarbókasafninu Grófinni. Leiðsagt er á ensku, pólsku, spænsku, filippeysku, arabísku, farsi, frönsku eða litháísku þar sem þátttakendur eru leiddir um helstu menningarstaði miðborgarinnar. Markmiðið er að veita nýjum hópum innsýn í það umfangsmikla og fjölbreytta menningar- og lista- starf sem fer fram á söfnunum og virkja borgarbúa til þátttöku. – kb Kvöldganga á átta tungumálum lægri framtíð, í myrkum heimi. Öll himintunglin hafa horfið, aðeins ein stjarna eftir á himninum. Aðal- persónurnar eru drengur og stúlka á unglingsaldri, æskuvinir. Þegar síðasta stjarnan hverfur verða þau viðskila og lenda í klóm skuggalegra afla. Við fylgjum þeim eftir um ísi- lagða veröld þar sem bæði örlög þeirra og örlög heimsins eru undir.“ Í umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið er Skuggabrúin sögð furðu- saga sem sé jafnt skrifuð fyrir full- orðna sem ungmenni. „Ég velti því lítið fyrir mér hverjum hún væri ætluð. Ég er hrifinn af höfundum sem skrifa á mörkum ungmenna- og fullorðinsbókmennta og þessi saga er einmitt þar. Það má jafnvel færa rök fyrir því að slíkar bækur séu sérstök bókmenntagrein,“ segir Guðmundur. Þakklátur fyrir stuðning Guðmundur er með meistaragráðu í trúarbragðafræðum og táknfræði. Hann er spurður hvort trú og tákn- fræði komi við sögu í bókinni. „Þar er lýst ákveðnum trúarbrögðum, sem eru í bakgrunni. Fórnin er líklega það trúarþema sem helst kemur fram ásamt heimsmynd- inni. Annars nálgast ég skrifin ekki mjög meðvitað eða úthugsað. Þegar ég geri fyrsta uppkastið dugar mér að vita í hvaða átt ég er að fara. Svo móta ég textann þegar ég endur- skrifa.“ Enn er ekki ljóst hjá hvaða bóka- forlagi sagan mun koma út. Spurður hvort Nýræktarstyrkurinn virki hvetjandi segir Guðmundur svo vera. „Þótt ég hafi fengið færa yfir- lesara meðan ég var að vinna verkið þá er maður einn við skrif borðið. Að fá utanaðkomandi og opinberan stuðning skiptir því miklu máli og eitthvað sem ég get ekki þakkað nógsamlega fyrir.“ Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari. Leiðsögumennirnir sýna þátttakendum menningarstaði. VERTU Í RÉTTA PAKKANUM Í SUMAR! 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.