Fréttablaðið - 25.07.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 25.07.2020, Síða 4
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 UMBOÐSAÐILI KÓPAVOGUR Íbúar í nágrenni lóðar í Hvarfahverfi eru orðnir lang- þreyttir á aðgerðarleysi Kópavogs- bæjar varðandi húsgrunn, sem talið er að hætta stafi af. Málið á sér langa forsögu. Í lok árs 2015 var tillaga að nýju deiliskipu- lagi kynnt, þar sem til stóð að skipta lóðinni Brekkuhvarfi 20 í tvennt og koma fyrir öðru húsi á lóðinni. Magnús Alfreðsson, sem býr í Brekkuhvarfi 22, segir að þær fyrirætlanir hafi strax verið gagn- rýndar af eigendum nærliggjandi lóða. „Ég kom því strax á framfæri að málsetningar væru rangar en það hunsuðu starfsmenn bæjarins. Það var greinilegt að lóðin var ekki mæld upp og því var þetta eitt alls- herjar klúður,“ segir Magnús. Þrátt fyrir mótmælin var deili- skipulagið samþykkt og að endingu hófst eigandi lóðarinnar handa við að grafa húsgrunn undir nýtt hús. „Þá voru hafðar hraðar hendur og fékkst lögbann frá sýslumanni á framkvæmdirnar. Það lögbann stendur enn,“ segir Magnús. Tæp þrjú ár eru frá því að lög- bannið var sett, en í millitíðinni hafa Kópavogsbær og eigandi lóðar- innar tapað dómsmáli í héraði. Þar var deiliskipulagið úrskurðað ógilt. „Nágrannar mínir höfðuðu þetta mál og höfðu sigur, enda um borð- leggjandi mál að ræða. Þetta var vit- laust mælt frá byrjun og því passaði húsið ekki á lóðina,“ segir Magnús. Hann segist hafa vonast til þess að bærinn sæi að sér í kjölfarið og viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð. „Við vonuðumst að minnsta kosti til þess að bærinn myndi moka ofan í grunninn, eða að lág- marki girða hann af. Það hefur ekki verið gert og skýlir bærinn sér á bak við þá staðreynd að lögbannið sé enn í gildi. Það gildir þó aðeins á framkvæmdirnar og ætti að mínu mati ekki við, ef lóðinni verður komið í samt horf eða hún gerð hættuminni,“ segir Magnús. Kópavogsbær áfrýjaði niðurstöðu í héraði til Landsréttar, sem Magnús segir að hafi verið vonbrigði. „Það er að mínu mati útilokað að Lands- réttur komist að annarri niðurstöðu í málinu.“ Á meðan málið velkist um í dóms- kerfinu stendur enn gapandi sárið í lóðinni við Brekkuhvarf. „Þetta er stórhættulegt að mínu mati, sem og að verið er að skemma aðrar lóðir. Þarna er leiksvæði skammt frá og það er talsvert fall fyrir börn ofan í grunninn. Á öðrum árstímum er vatn í grunninum sem getur einn- ig verið hættulegt. Þá er byrjað að hrynja úr minni lóð og hellur farnar að gliðna,“ segir Magnús. Hann segist hafa verið í miklum samskiptum við Kópavogsbæ und- anfarin misseri og meðal annars átt fund með Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra, fyrir nokkrum vikum. „Mér var vel tekið á fundinum en fékk engin vilyrði fyrir því að eitt- hvað yrði gert í málinu. Að mínu mati er Kópavogsbær að nota vald sitt og skattpeninga til þess að beita íbúa of beldi,“ segir Magnús. bjornth@frettabladid.is Kópavogsbær ekkert aðhafst vegna hættulegs húsgrunns Íbúi við Brekkuhvarf í Kópavogi telur að bærinn fari fram með ofbeldi, varðandi hættulegan húsgrunn sem hefur staðið opinn í þrjú ár. Bærinn tapaði deiliskipulagsmáli í héraðsdómi en áfrýjaði til Lands- réttar. Íbúar í hverfinu eru langþreyttir á aðgerðarleysi bæjaryfirvalda og telja hættu stafa af grunninum. Húsgrunnurinn við Brekkuhvarf 20 hefur staðið opinn í tæp þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 30 1.700keppendur taka þátt í Rey Cup á Íslandi í ár. seldust af nef-tóbaki í ÁTVR milli janúar og júlímánaða. 3,5prósenta atvinnuleysi var í júní samkvæmt Hagstofunni. 78 atvinnuflugmenn út- skrifuðust úr Flugaka- demíu Íslands í vor. TÖLUR VIKUNNAR 19.07.2020 TIL 25.07.2020 14 tonn þúsund tonn af makríl hafa veiðst á yfir- standandi fisk- veiðiári. Þórdís Björk Þorfinns- dóttir, leikkona olli usla á sam- félagsmiðlum vegna ummæla um Kópasker og Raufarhöfn. Auk almennrar gagnrýni fékk hún fjölmargar morð- og nauðgunar- hótanir í einkaskilaboðum. Hún hyggst kæra athæfið til lögreglu. Kári Orrason, aðgerðasinni er ákærður fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu í and- dyri dóms- málaráðuneyt- isins í fyrra þar sem hann, ásamt félögum sínum í samtökunum No Borders, krafðist fundar með ráðherra um aðbúnað flótta- manna í landinu. Hann skrifaði opið bréf til Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á vef Fréttablaðsins á fimmtudaginn. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá Lögreglu- stjóranum á Suðurnesjum hefur ásamt öðrum fengið yfir sig kvartanir vegna eineltis frá starfs- mönnum Lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt heim- ildum fóru þeir yfirmenn sem kvartað var undan í veikinda- leyfi, tveimur dögum eftir að kvartað var til fagráðs, án þess að tilkynna lögreglustjóranum það. Málið er nú á borði dómsmála- ráðuneytisins. Þrjú í fréttum Morðhótanir, opið bréf og eineltismál Að mínu mati er Kópavogsbær að nota vald sitt og skattpen- inga til þess að beita íbúa ofbeldi. Magnús Alfreðsson 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.