Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 10
ENSKI BOLTINN Það er stundum sagt að sagan endurtaki sig, en slíkt má svo sannarlega segja um niður- stöðuna í tveimur efstu deildum ensku knattspyrnunnar á keppnis- tímabilinu sem er að ljúka. Þannig er að sömu lið báru sigur úr býtum í efstu og næstefstu deild árið 1990 og gerðu það að þessu sinni. Leeds United fór upp úr B-deild- inni og Liverpool varð enskur meist- ari, vorið 1990. Liverpool þurfti svo að bíða  í 30 ár eftir því að vinna enska meistaratitilinn á nýjan leik og Leeds United hefur  síðan þá flakkað á milli deilda. Leeds United hafði verið utan efstu deildar í 16 ár, þegar Marcelo Bielsa kom liðinu loksins aftur upp í efstu deild, en honum tókst það í annarri atrennu. Eftir góðan tíma undir stjórn David O'Leary, frá haustinu 1998 til sumarsins 2002, þar sem Leeds Un- ited hafnaði aldrei fyrir neðan fimm efstu sæti deildarinnar og komst í undanúrslit í Evrópukeppni félags- liða vorið 2000 og svo í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu ári síðar, fór að halla undan fæti fjárhagslega. Fram undan voru erfiðir tímar. Peter Ridsdale, stjórnarformaður Leeds United, hafði skuldsett félag- ið mikið og treyst á að fá greiðslur fyrir sjónvarpsrétt og fyrir þátt- töku í Meistaradeildinni, til þess að greiða þær skuldir. Þegar ljóst var að félagið væri að fara inn í annað tímabil í röð utan Meistaradeildar- innar sumarið 2002, þurfti félagið að selja sína stærstu bita. Ridsdale lenti í deilum við O'Leary út af sölunni á Rio Fer- dinand til Manchester United, sem varð til þess að knattspyrnustjór- Löng bið á enda hjá tveimur liðum Sama sviðsmynd var í ensku knattspyrnunni fyrir 30 árum og er núna. Liverpool var þá á toppi veraldarinnar,líkt og um þessar mundir, og Leeds United var að fikra sig upp í fremstu röð að nýju. Stuðningsmenn liðanna svífa um á bleiku skýi þessa stundina. John Barnes og Peter Beardsley voru lykilleikmenn Liverpool. Leikmenn Leeds United hylla stjóra sinn Marcelo Bielsa sem er í guðatölu. Það var afar glatt á hjalla hjá leikmönnum og forráðamönn- um Liverpool þegar bikarinn fyrir enska meistaratitilinn fór á loft fyrr í þessari viku. MYND/GETTY Sumarfrí 27. júlí - 3. ágúst Skrifstofur Orkustofnunar verða lokaðar frá mánudeginum 27. júlí til og með mánudagsins 3. ágúst næstkomandi vegna sumarleyfa starfsmanna. inn var látinn taka pokann sinn. Skömmu síðar hurfu fleiri lykilleik- menn á braut, en Jonathan Wood- gate var meðal annars seldur til Real Madrid. Næstu misserin héldu verð- mætustu leikmenn liðsins áfram að yfirgefa herbúðir þess og vorið 2004 féll liðið úr efstu deild. Haustið 2004 voru fjárhagsvand- ræði Leeds United orðin svo mikil að félagið neyddist til þess að selja bæði heimavöll sinn, Elland Road, sem og æfingasvæði sitt. Vorið 2007 var svo félagið sett undir óháða fjár- málastjórn og af þeim sökum voru 10 stig dregin af félaginu, sem geir- negldi það að liðið féll niður í C- deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Dennis Wise, sem var knattspyrnu- stjóri liðsins, var ekki í öfundsverðri stöðu þar sem hann var að safna liði skömmu fyrir mót sumarið 2007 og félagið var í raun í tætlum. Undir stjórn Wise og aðstoðar- manns hans, Gus Poyet, byrjaði Leeds United  leiktíðina 2007 til 2008 með 15 stig í mínus, en tókst samt sem áður að komast í umspil um að komast upp um deild. Þar tókst þeim ekki að koma liðinu yfir línuna og þegar tímabilinu lauk fór Wise til Newcastle United og Poyet til Tottenham Hotspur. Kallað var á Leeds-goðsögnina Gary McCall ister sem kom liðinu sömuleiðis í umspil vorið 2009, en tapaði fyrir Don- caster Rovers í úrslitaleik um sæti í B-deildinni. Vorið 2010 fór svo Leeds United upp í B-deildina með Simon Grayson í brúnni. Grayson, Neil Redfearn, Neil Warnock, Brian McDermott, Dave Hockaday, Darko Milanič, Uwe Rösler, Steve Evans, Garry Monk, Thomas Christiansen og Paul Heckingbottom, fengu allir tækifæri til þess að spreyta sig á því að koma Leeds United aftur í deild þeirra bestu. Það var svo hinn litríki Argentínumaður sem kom sér á háan stall hjá stuðningsmönnum Leeds United, með því að binda enda á 16 ára eyðimerkurgöngu liðsins. Skömmu fyrir fjármálahrun, það er í byrjun árs 2007, keyptu banda- rísku fjársýslumennirnir George Gillet og Tom Hicks meirihlutann í Liverpool, en stuðningsmönnum félagsins hrýs hugur þegar nöfn þessara mætu manna ber á góma. Eftir að hafa lent í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar árið 2009, þrátt fyrir stöðugar deilur eigendanna við  Rafael  Benitez,  knattspyrnu- stjóra liðsins, var liðið nálægt því  að  vera tekið  til gjaldþrota- skipta haustið 2010.  Liverpool lenti í sjöunda sæti deildarinnar 23 stigum á eftir Chels- ea, sem varð enskur meistari vorið 2010 og nokkrum mánuðum síðar var félagið á hengiflugi vegna skuld- setningar Gillet og Hicks. Banda- ríski auðmaðurinn John W. Henry og fjárfestahópur í kringum hann kom eins og riddari á hesti og skar samlanda sína úr snörunni. Tíu árum síðar er Liverpool hand- hafi titilsins í Meistaradeild Evrópu, heimsmeistaratitilsins og enska meistaratitilsins. Þá er Liverpool ansi verðmætt félag  eins og sakir standa og fjármál félagins standa á traustum fótum. Jürgen Klopp hefur skuldbundið  sig  til þess að stýra skútunni næstu fjögur árin og allt er í blóma. Á næsta keppnis- tímabili mun Þjóðverjinn etja kappi við  sérvitringinn Bielsa, sem Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manc- hester City, hefur lýst sem besta þjálfara heims. Hér heima hafa fjölmargir stuðn- ingsmenn Leeds United komið fram úr skúmaskotum. Blómaskeið Leeds United á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar bjó til nokkuð stóran stuðningsmannahóp liðsins hér á landi. hjorvarolafsson@frettabladid.is Liverpool var að rjúfa 30 ára bið sína eftir enska meistaratitlinum og Leeds United endurheimti sæti sitt í efstu deild eftir 16 ára bið. Opin fræðsla fyrir alla sem nýlega hafa greinst með krabbamein fer fram í Ljósinu, Langholtsvegi 43, næstu mánudaga milli 10:30 - 12:00: 6. júlí: Líðan, virkni og stuðningur 13. júlí: Þreyta - Orkusparandi aðferðir 20. júlí: Sjálfstyrkur, sjálfsmynd 27. júlí: Slökun 10. ágúst: Streita og bjargráð 17. ágúst: Fjölskyldan og samskipti 24. ágúst: Markmiðasetning 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.