Fréttablaðið - 25.07.2020, Side 12

Fréttablaðið - 25.07.2020, Side 12
VIÐ MUNUM REYNA Á JAFNVÆGI, SAMHÆFINGU, ÖNDUN OG ALLS KONAR JÓGASTÖÐUR OG PRÓFA AÐ HUGLEIÐA AÐEINS. MARAÞON Veglegt sérblað Fréttablaðsins um maraþon kemur út föstudaginn 31. júlí nk. Í sérblaðinu Maraþon er tilvalið fyrir hin ýmsu góðgerðarfélög að kynna sig og benda hlaupurum um leið á frábært málefni til að styrkja. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi fréttablaðsins. sími 5505654 / jonivar@frettabladid.is Eyjan er svo stórkostleg. Ég elska Viðey og er rosalega spennt og það verður gaman að kynna þetta,“ segir jógakennar­inn og leiðsögukonan Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, sem ætlar að leiða fjölskyldujóga úti í Viðey klukkan 13.30 á sunnu­ daginn. Hún segir eyjuna sannarlega fall­ egan stað til að hugleiða og stunda jóga í fersku sjávarlofti, og næsta víst að þar talar hún ekki alveg út í bláinn. „Ég er búin að vinna lengi í Viðey, skal ég segja þér. Þetta er örugglega sjötta eða sjöunda sum­ arið mitt þar.“ Kristín hefur á þessum árum boðið bæði upp á sérstakar jóga­ göngur og svo fjölskyldujógað sem hefur notið stöðugra vinsælda frá byrjun. „Við ákváðum að prófa Hverjum róandi gongið glymur Jógakennarinn Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir veit hvar innri frið er að finna í Viðey, sem sé fallegur staður til hugleiðslu. Þar leiðir hún fjölskyldujóga á sunnudag en siglingin þangað, ein og sér, getur fært fólk nær innri ró. Arnbjörg Kristín leggur áherslu á að blanda saman skemmtun og jógaæfingum fyrir alla. MYND/DANÍEL STARRASON Arnbjörg segir Viðey henta vel til hugleiðslu og jógaiðkunar. Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is fjölskyldujógað einn Barnadaginn og það gekk svo vel að við ákváðum bara að hafa þetta árlegt.“ Hátt til lofts Fjölskyldujógað stendur hins vegar eitt og sér í ár þar sem Barnadagur­ inn hefur, eins og margir fjölmennir viðburðir, mátt víkja fyrir COVID­ 19. „Hann verður ekki núna af því hann er svo fjölmennur, þannig að við ákváðum að hafa bara svona fjölskyldujógaviðburð í staðinn. Þetta er aðeins nettara form, en það góða við Viðey er að það er hægt að mæta og dreifa vel úr sér á túninu þarna. Þannig að þetta ætti að henta þeim vel sem eru að passa sig og eru viðkvæmir,“ segir Arnbjörg um eyjuna sem kjörlendi fyrir tveggja metra regluna. „Þarna er nóg af lofti og hægt að passa fjar­ lægðirnar afskaplega vel.“ Bara gaman „Þetta er fyrir allan aldur þannig að þetta verður skemmtilegt umfram allt,“ segir Arnbjörg um fjölskyldu­ jógað, þar sem hún leggur áherslu á blanda saman skemmtun og æfing­ um í passlegum hlutföllum. „Við munum reyna á jafnvægi, samhæfingu, öndun og alls konar jógastöður og prófa að hugleiða aðeins. Við gerum líka nokkur jóga­ dýr, vegna þess að börn hafa mjög gaman af dýrum og við sprellum aðeins í leiðinni.“ Arnbjörg segir að í jóga sé mikið verið að hreyfa líkamann og það hafi hún oft gert í leik með börnum. „Þannig að ég ætla að fara í einn tvo leiki með öllum og gera þetta skemmtilegt. Ég er með góða leiki í handraðanum til þess að skapa bara yndislega, skemmtilega stemningu. Þetta er ekkert allt of alvarlegt og svo setjumst við niður og æfum okkur að vera alveg kyrr í eina mín­ útu. Gerum litla hugleiðslu.“ Börnin leyna á sér Arnbjörg hefur mikla reynslu af því að kenna börnum frá þriggja ára og unglingum jóga, og segir aðspurð að börn geti verið ótrúlega liðug. „Þau sitja bara alveg strax í lótus og geta gert ýmislegt sem ég get ekki. Vegna þess að líkami þeirra býður bara upp á það. Það er ekki komin streita í kroppinn enn þá, en svo eldumst við og byrjum að hafa áhyggjur. Þá hættum við að hreyfa okkur eins mikið, eða ekki eins náttúrlega, og byrjum að vera meira í hausnum og í kyrrstöðuvinnu og þá stirðnum við. En það er rosalega gott að heim­ sækja innra barnið í sjálfum sér og frelsa aðeins líkamann og hugann. Frá norminu.“ Arnbjörg segir jóga svo sannar­ lega vera fjölskyldusport og segir tilvalið fyrir alla fjölskylduna að mæta út í Viðey. „Ég lærði fjöl­ skyldujóga úti í Bandaríkjunum og þá er maður að skoða allan aldur og á hvaða aldri er hægt að gera jóga með tilliti til ákveðins hreyfi­ þroska, hvað henti viðkomandi og svo framvegis. Róandi gong Arnbjörg slær róandi taktinn fyrir hugleiðsluna úti í Viðey. „Gongið er fyrst og fremst ætlað til að kenna hugarró,“ segir Arnbjörg og bætir við að hvort sem er setið eða legið þá „verði til svona ákveðin innri stilla,“ þegar hugurinn einbeiti sér að hljóðinu sem frá gonginu kemur. „Við erum frekar þjálfaðri í að dreifa huganum og hugsa um margt í einu, en í jóga er markmiðið að þjálfa hugann upp með reglulegri ástundun hugleiðslu og gongið hjálpar okkur að setja athyglina BÚMM! á einn stað. Á hljóðið. Og hljóðið kemur vitundinni í svona einingarástand þar sem eru engar áhyggjur. Það er gott að heimsækja þann stað,“ segir Arnbjörg og hlær. Siglt á róandi mið Þeim sem hyggjast skella sér í jógað á sunnudaginn er bent á að gott getur verið að taka með sér teppi fyrir slökunina og að klæða sig eftir veðri, svo ytri aðstæður trufli ekki um of slökunina undir heillandi tónum gongsins í guðsgrænni nátt­ úrunni. Siglingin er að sögn Arnbjargar slakandi ferðalag í sjálfu sér. „Ég myndi segja að bara siglingin út í Viðey sé yndisleg. Fólk er auðvitað að fara til útlanda í svona vellíðun­ arferðir til að fá fjarlægð á normið, smá yfirsýn og tíma til að kúpla út og endurmeta stöðuna aðeins. Að fara út í Viðey er algerlega þannig upplifun, nema miklu styttra. Þegar þú kemur út í Viðey og horfir yfir borgina færðu aðra sýn á hlutina og staðinn sem þú býrð á. Þegar maður getur horft svona , þá kemst einhvern veginn ró í mann. Bara með því að taka sjálfan sig úr hefðbundnu umhverfi, úr erlinum, úr umferðinni til dæmis og vinnu­ staðnum. Það er öllum rosalega gott að sjá þetta utan frá og fá kannski ein­ hverja aðra sýn á lífið.“ Fjölskyldujóga í Viðey Jógastundin í Viðey hefst klukkan 13.30 sunnudaginn 26. júlí. Siglt verður frá Skarfabakka kl. 13.15 og heim aftur samkvæmt áætlunarsiglingu þegar fólki hentar. Veitingasala í Viðeyjarstofu er opin og fólki er bent á að þar er hægt að njóta matar og drykkjar fyrir eða eftir jóga. Í eyjunni eru einnig útigrill sem öllum er frjálst að nota, en aðeins þarf að koma með mat og kol. Gjald í ferjuna fram og til baka eru 1.650 krónur fyrir fullorðna, 1.500 fyrir eldri borgara og nem- endur og 825 fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.