Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 17
NÚNA ERUM VIÐ ORÐNAR FJÓRIR PRÓFESSORAR VIÐ DEILDINA, ÞÁ ALLT Í EINU SJÁ STELPUR, EÐA ÉG VONA AÐ STELPUR SJÁI, AÐ ÞETTA SÉ LEIÐ SEM ER FÆR OG AÐGENGILEG. ÉG LÍT EKKI Á HLUTLEYSI SEM EFTIRSÓKNARVERÐ- AN KOST. HLUTLÆGNI, ÞAÐ ER AÐ SEGJA AÐ TAKA GÖGNIN SEM LIGGJA FYRIR OG META ÞAU, ÞAÐ ER EITTHVAÐ SEM SKIPTIR MIG MÁLI. Silja Bára lítur á það sem sitt hlutverk að berja fullkomn- unaráráttuna úr ungum konum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR spádómur, en ekki líkindi. Þannig að maður reynir bara að halda sig við gögnin,“ segir hún og áréttar að þó að gögnin séu mjög afgerandi núna, séu þau ekki spádómur. „Kosningarnar eru ekki fyrr en eftir þrjá mánuði og það er ýmislegt sem getur breyst, og það getur breyst mjög hratt.“ Kallað eftir breytingum Einn helsti þátturinn sem kemur til með að hafa áhrif á kosning- arnar er efnahagsmál, en vegna COV ID -19 heimsfa ra ldu r sins hefur samdráttur verið í efnahag Bandaríkjanna og töluvert er um atvinnuleysi. „Áður en að kórónaveirufarald- urinn gekk yfir, þá voru efnahags- málin þannig í Bandaríkjunum að það voru bara sterkar líkur á því að hann myndi ná endurkjöri,“ segir Silja um Trump. „Það eru enn þá stuðnings- menn Repúblikana sem að telja að fólk muni muna, þegar kemur að kosningum, að ástandið hafi verið gott og muni verðlauna það, sem er alveg möguleiki, en reynslan og mynstrið í kosningum hingað til styður ekki þá ályktun.“ Annað atriði sem mun ef laust hafa áhrif er ákall samfélagsins, þá sérstaklega Black Lives Mat- ter- hreyfingin sem braust út eftir að George Floyd lést eftir að lög- reglumaður kraup á hálsi hans við handtöku í maí. Í kjölfarið hefur fólk víðs vegar í Bandaríkjunum vakið athygli á kerf isbundinni mismunun gegn svörtum og barist fyrir breytingum í samfélaginu. Sú barátta gæti leitt af sér betri kosn- ingaþátttöku, sem Silja segir vera lykilatriði þegar kemur að niður- stöðum kosninga. „Mér fannst rosalega áhrifamikið þegar bróðir George Floyd mætti til Minneapolis og ávarpaði mót- mælendahóp sem var í eyðilegg- ingarfasa, það var að rífa og brjóta og bramla, og hann segir; „Ekki gera þetta, ekki eyðileggja. Skráið ykkur frekar til að kjósa. Mætið á kjörstað til að breyta einhverju til framtíðar.“ Að geta tekið persónulegan harmleik og sett hann í það sam- hengi að hann sýni kerfislægar aðstæður sem að þarf að breyta með tækjum valdsins.“ Ýmislegt breyst síðan síðast Aðspurð um hvað skilji þessar kosn- ingar frá kosningunum árið 2016 segir Silja að vissulega spili kóróna- veirufaraldurinn og Black Lives Matter-hreyfingin inn í myndina, en ýmislegt annað sé sömuleiðis að baki. „Árið 2016 erum við auðvitað að koma út úr því að fyrsti svarti maðurinn hafi verið forseti Banda- ríkjanna og það er kona í framboði, þannig að þú ert með bakslag, rétt eins og þegar kona varð forseti hér, þá varð þetta svona: „Já, já nú þarf ekki að vera kvenforseti aftur í 30 ár,“ svona þannig stemning.“ Einnig hafi kerfislægar breytingar orðið í Bandaríkjunum á þessum tíma og því hafi margir upplifað að hvítum hafi verið gert erfiðara upp- dráttar í samfélaginu. „Það skapast spenna milli kynþátta, að einhverju leyti, sem Trump síðan nýtir sér. Hann dregur fram þennan hóp. Síðan virkjast líka einhver ákveðinn hópur sem nær að stilla Clinton upp sem óvini.“ Þar sem Biden hefur ekki komið jafn oft opinberlega fram og hann gerði fyrir faraldurinn, hefur Trump aftur á móti ekki fengið eins mörg tækifæri til þess að mála Biden sem ákveðinn óvin. „Það dregur úr krafti Trumps í raun og veru, að Biden sé ekki út um allt. Biden er mjög óheppinn í orða- lagi, þannig að það er mjög heppi- legt að hann sé ekki mikið að spinna út um allar trissur,“ segir Silja, en hún segir Trump þrífast á því að hæðast að öðrum og sú aðferð virki á ákveðinn hóp sem valdatákn. „Núna er Biden ekki að gefa honum nein skotfæri og það auð- vitað vekur líka spurningar um stefnu Trumps, ef hann hefur ekk- ert fram að færa annað en að pota í andstæðinga, þá gæti það vakið spurningar um hvort þetta sé veikt framboð.“ Hefði viljað sjá kynslóðaskipti Þrátt fyrir að Silja Bára sé ekki aðdáandi Trumps þá segist hún ekki hafa talið að Biden væri besti kosturinn til þessa gegn Trump, heldur hafi hann frekar verið ákveð- in lending. „Ég var ekkert sérstaklega hrifin af Biden sem frambjóðanda, mér fannst hann ekki heillandi árið 2008 og ekkert frekar núna. Hann er náttúrulega með rosalega langa sögu í stjórnmálum, margt sem er hægt að setja spurningarmerki við, en hann hefur líka reynt að sýna fram á að hann hafi breyst.“ „Maður hefði verið til í að sjá aðeins meiri kynslóðabreytingu, að hugsa lengra til framtíðar og ein- hvern sem gæti haft áhrif á flokkinn til lengri tíma eftir valdatímann,“ segir hún, en bætir þó við að það verði áhugavert að sjá hvern Biden tekur með sér sem varaforseta, sjálfur hefur hann gefið út að það verði kona og hafa nöfn nokkurra stjórnmálakvenna verið nefnd sem mögulegra kandídata. Margir telja að Biden muni velja svarta konu með sér og hafa þar konur á borð við Kamölu Harris, Val Demings og Stacey Abrams verið nefndar á nafn. Þá hefur það einnig vakið athygli að Biden hafi staðfest að hann komi til með að taka konu með sér, þar sem þó nokkrir telja að Biden gæti látist meðan hann situr í embætti, ef hann á annað borð sigr- ar kosningarnar. Þannig gæti það atvikast að Bandaríkjunum verði í fyrsta sinn stjórnað af konu. Það mun einnig bæta upp fyrir aldur Biden, ef hann tekur með sér manneskju sem táknar ákveðna framtíð. „Obama stillti þessu auð- vitað öfugt upp, verandi ungur og segja ég ætla að taka reynsluna með mér og hafa Biden í eyranu; „Þið getið treyst mér af því að hérna er karlinn úr kerfinu sem að kann þetta allt saman.“ En þá er Biden að segja öfugt, að hann sé með fram- tíðina við hliðina á sér,“ segir Silja. Gæti neitað að virða úrslit Líkt og áður hefur komið fram stendur Biden betur heldur en Trump eins og staðan er í dag, en Trump vakti athygli fyrr í vikunni þegar hann neitaði að svara því hvort hann kæmi til með að virða úrslit kosninganna, þar sem hann telur skoðanakannanir vera fals- aðar og er viss um að hann muni sigra. Ef Biden sigrar og Trump neitar að virða úrslitin, verður það í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna sem það gerist. „Hann hefur auðvitað sýnt vilja til þess að brjóta alls konar fordæmi og ganga gegn því sem er svona við- tekin venja og það sem fólk hefur talið vera jafnvel gildandi lög, þó þau séu ekki skrifuð. Ef þetta verður raunin þá erum við bara að tala um átök. Þá erum við komin á einhvern mjög skrýtinn stað,“ segir Silja, um hvað myndi gerast ef það færi svo að Trump afneitaði úrslitunum. Erfitt verk fyrir höndum Óháð því hvor sigrar er ljóst að það verður áfram klofningur innan Bandaríkjanna. „Ef Trump vinnur aftur þá erum við að horfa á lengri tíma af leiðingar innanlands og utan, það er þessi herta innf lytj- endalöggjöf, til dæmis, sem að getur komið gríðarlega illa niður á vís- indastarfi í Bandaríkjunum og það getur komið illa niður á landbúnaði í Bandaríkjunum,“ segir Silja og bætir við að ef Bandaríkin dragast aftur úr í vísindastarfi þá væru þau að missa forystu sína að mörgu leyti. „Ef þau síðan halda áfram að draga sig út úr alþjóðastofnunum þá eru þau líka að missa mjúka valdið sem að er þar, og þar með tækifæri til þess að hafa áhrif. Þannig að þú ert að tala um ríki sem er bara að fara í svipaðan einangrunarfasa og Bandaríkin gerðu eftir fyrri heims- styrjöldina.“ Sigri Biden aftur á móti, telur Silja að hægt verði að vinda ofan af úrsögnum ríkisstjórnarinnar og bæta samskipti við alþjóðastofnan- ir og önnur ríki. Þá muni Biden vera reiðubúinn til þess að taka á kröfum um samfélagslegar breytingar, eitt- hvað sem mun ekki gerast ef Trump verður áfram forseti. Á móti kemur að Trump er þegar farinn að ýja að því að hann muni ekki virða úrslit- in, sem gæti orðið til frekari átaka. „Svo er auðvitað stórt verkefni að koma hagkerfinu aftur í gang. Eins og í f lestum löndum þá hefur þessi faraldur sýnt bresti ríkja og í Banda- ríkjunum er það auðvitað brestur að þegar það er ekki velferðarkerfi og fólk á á hættu að missa heimili sín eftir tveggja mánaða atvinnuleysi, að þá er eitthvað töluvert mikið að.“ Því er um gríðarlega mikilvægt verkefni að ræða, hvort sem Trump eða Biden sigrar. Aðspurð um sína skoðun á framtíð Bandaríkjanna og hvort mögulegt sé að lagfæra þann klofning sem hefur átt sér , segir hún að Bandaríkjamenn gætu verið að sjá fram á mjög slæmt ástand. „Síðan er bara spurning hvort Bandaríkin þurfi bara að skipta sér upp og vera bara tvö ólík ríki.“ H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17L A U G A R D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.