Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 20
sérf lokki en af hverju eruð þið ekki
bara í sama skólanum?
Sigurgeir svarar spurningunni
með hlátri en Bríet hefur meira um
þetta að segja. „Það misfórst. Við
vorum svona að stefna á að vera
kannski á sama stað, en doktors-
námið sem mig langaði að fara í er
bara í boði í Oxford og Sigurgeiri
leist betur á það sem var í boði í
Cambridge.“
„Ja, en þeir vildu mig heldur ekki
í Oxford. Við skulum ekkert vera að
ritskoða það sko,“ segir Sigurgeir á
léttum nótum. „Nei, ég klúðraði
svolítið viðtalinu mínu í Oxford,
held ég, og komst ekki inn þar.“ Þá
hafi staðið eftir möguleikinn að fara
hvort í sína borgina.
„Það var fyrir bestu, því Cam-
bridge er sannkölluð Mekka erfða-
fræðinnar. Þar þróaði Fred Sanger
fyrst tæknina til að raðgreina DNA
og raðgreindi fyrstu lífveruna, þar
ákvörðuðu Watson og Crick bygg-
ingu DNA-sameindarinnar og
þar var stærsti hluti erfðamengis
mannsins raðgreindur, þegar það
var gert í fyrsta sinn upp úr alda-
mótum. Það er góðlátlegur rígur
milli Cambridge og , en þegar kemur
Sigurgeir og
Bríet stefndu á
doktorsnám í
sama háskóla,
en enduðu í Ox-
bridge-fjarbúð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Framhald af síðu 18
Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands
og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína
flugleið til Ísafjarðar þar sem Borea Adventures, Tjöruhúsið og fleiri
eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi.
Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig
að núna er rétti tíminn til að kynnast Ísafirði upp á nýtt.
+ Bókaðu á airicelandconnect.is
Flug og gisting frá
í eina nótt á mann
29.900 kr.
Flug og bíll frá
í einn sólarhring á mann
28.900 kr.
+ Ísafjörður
+ Rúnar Karlsson
Borea Adventures á Ísafirði.
2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð