Fréttablaðið - 25.07.2020, Síða 47
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður, sonur og bróðir,
Ingi Björn Bogason
Hraunbæ 182,
lést á líknardeildinni í Kópavogi,
þriðjudaginn 14. júlí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju,
miðvikudaginn 29. júlí, kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið og Kraft.
Magdalena V. Michelsen
Steinunn Jónsdóttir Bogi Baldursson
María Erla Bogadóttir Hjalti Kolbeinsson
Jón Baldur Bogason Haukur Heiðar Steingrímsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Gíslason
rafvirkjameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir,
Reykjavík, föstudaginn 17. júlí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju,
miðvikudaginn 29. júlí, kl. 13.
Hólmfríður Bjarnadóttir Norbert Birnböck
Gísli Bjarnason Margrét L. Laxdal
Heimir Bjarnason Sædís Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona, móðir, amma,
langamma og tengdamóðir,
Magnea Kolbrún
Sigurðardóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
í Garðabæ, þann 22. júlí sl.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ, fimmtudaginn 30. júlí nk. kl. 13.
Bjarni Pétursson
Guðrún Bjarnadóttir Melchior Lippisch
Pétur Bjarnason Brynja Ástráðsdóttir
Sigurður Bjarnason Dröfn Guðmundsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Silfurtúni, Búðardal,
sem lést 17. júlí sl., verður
jarðsungin frá Hjarðarholtskirkju
í Dölum, 27. júlí 2020, kl. 14.00.
Sigurður Ólafsson Guðlaug Kristinsdóttir
Pálmi Ólafsson Guðrún E. Magnúsdóttir
Steinunn Lilja Ólafsdóttir Erling Þ. Kristinsson
Páll Reynir Ólafsson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar og amma,
Hrafnhildur
Valdimarsdóttir
Seljugerði 12, Reykjavík,
lést mánudaginn 13. júlí.
Útförin hefur farið fram
í kyrrþey, að ósk hennar.
Jón Ragnarsson
Valdimar Jónsson
Júlíana Jónsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi,
Lars B. Ch. Holm
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut, þann 11. júní síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey, að ósk
hins látna.
Ingibjörg Unnur Holm
Anna-Bettina
Nathalie
Arthur
Þór Hjálmar
Kolbrún
Svandís Unnur
Heiðdís Mjöll
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristbjörg Haraldsdóttir
(Dodda frá Sandhólum),
lést á Droplaugarstöðum, 22. júlí.
Jarðsett verður frá Bústaðakirkju,
fimmtudaginn 30. júlí, kl. 13.00.
Gréta, Unnur, Birna og Jenný Sigfúsdætur
og fjölskyldur.
Minningarathöfn um elskulega
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Inger Jacobsen
Grænumörk 2, Selfossi,
sem lést 28. mars síðastliðinn, fer fram í
Selfosskirkju, þriðjudaginn 28. júlí.
Athöfnin hefst kl. 14.
Åse Jörgensen, Frank Jörgensen
Birthe Hansen, Åge Hansen
og afkomendur.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Emmu Kolbeinsdóttur
Eyvík, Grímsnesi,
sem lést föstudaginn 3. júlí.
Sigrún Reynisdóttir Þórarinn Magnússon
Kolbeinn Reynisson Guðrún Bergmann
Guðmundur K. Pétursson Sólveig Wium
Reynir Viðar Pétursson Duan Buakrathok
Lilja Nótt Þórarinsdóttir Ólafur Gauti Guðmundsson
Magnús Þórarinsson Hallgerður Lind Kristjánsd.
Steinunn Erla Kolbeinsd. Einar Þorgeirsson
Smári Bergmann Kolbeinss. Íris Gunnarsdóttir
Bjarki Kolbeinsson Karen Daðadóttir
og barnabarnabörn.
Landsliðið í líffræði ásamt leiðbeinendum. Viktor Logi, Þórhallur Halldórsson, Kjartan Kristjánsson, Ólafur Patrick Ólafsson,
María Guðjónsdóttir, Katla Rut Kluvers, Arnór Bjarki Svarfdal og Sigríður Rut Franzdóttir. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Hann er átján ára gamall og lauk öðru ári í MR síðasta vor. Viktor Logi Þóris-son er yngstur í landsliði Íslands í líffræði, sem mun þreyta ólympíu-
keppni í ágúst. Hún fer fram á netinu en
ekki í Japan, eins og fyrirhugað var áður
en heimsfaraldurinn reið yfir. Yfir 70
þjóðir taka þátt.
„Fyrst var lagt próf fyrir alla framhalds-
skólanema í landinu, síðan var úrslita-
keppni og fjórir úr henni komust áfram.
Ég varð reyndar í fimmta sæti en einn
þeirra sem var á topp fjögur listanum
komst líka í stærðfræðiliðið og valdi það.
Þá komst ég inn,“ lýsir Viktor og heldur
áfram. „Úrslitakeppnin var haldin síð-
asta skóladag fyrir COVID-hlé og stuttu
seinna var ferðinni til Japans aflýst, þar
sem ólympíukeppnin hafði verið fyrir-
huguð í Nagasaki 4. júlí.“ Hann segir þá
niðurstöðu ekki hafa komið á óvart, en
viðurkennir að vonbrigðin hafi verið
mikil.
Viktor var líka í hópi í MR sem ætlaði
til Suður-Afríku í tveggja vikna ferð. „Við
ætluðum að vera í Kruger þjóðgarðinum
í viku og svo að snorkla. En þeirri ferð
er frestað fram á næsta ár. Það kom fljótt
í ljós að ólympíukeppnin yrði á netinu
11. og 12. ágúst. Ég held að við verðum
öll spurð út úr sömu bók, hún er dálítill
doðrantur.
Viktor kveðst vera grúskari og hafa
haft áhuga á líffræði síðan í grunnskóla.
„Það er örugglega náttúrufræðikennar-
anum mínum í Lindaskóla að kenna,
eða þakka.“ Hann kveðst oftast vera í
Öskju, náttúrufræðihúsi HÍ, við undir-
búning keppninnar, nú og stundum séu
tímar með leiðbeinendum. „Liðinu finnst
þægilegra að læra saman og geta spjallað
um efnið, en þetta er samt einstaklings-
keppni.“
Viktor er jákvæður og kveðst hlakka
til að takast á við keppnina. „Ég er ári
yngri en hinir og get farið aftur á næsta
ári, þannig að ég horfi á þetta skipti sem
undirbúning. Leikarnir verða í Portúgal
næst. Ef við hefðum verið í Nagasaki
núna 4. júlí hefðum við lent í rosalegum
flóðum. Það var gott að sleppa við þau.“
gun@frettabladid.is
Missti af ferð til Japans
Í stað ævintýraferðar til Suður-Afríku og þaðan til Japans á Ólympíuleika í líffræði,
lærir Viktor Logi Þórisson nú fyrir keppni sem fer fram á netinu – vegna COVID.
Viktori Loga datt aldrei í hug að bakka út úr keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0