Neytendablaðið - jun 2018, Qupperneq 22
22 Neytendablaðið // Júní 2018
Framleiðsla á pálmolíu hefur margfaldast á undanförnum ára-
tugum. Árið 1995 var heimsframleiðslan 15,2 milljónir tonna
en árið 2015 hafði hún fjórfaldast og var orðin 62,6 milljón
tonna. Vinsældir pálmolíunnar eru skiljanlegar. Hún er ódýr
í framleiðslu en pálmolíutréð skilar tíu sinnum meiri jurtaolíu
á hektara en soja, repja og sólblóm. Pálmolían er bragðlaus,
hún þránar hægt, þolir vel eldun og við stofuhita er hún í föstu
formi sem gerir hana ákjósanlegan kost í alls kyns tilbúinn
mat. Pálmolía er einnig mikið notuð í snyrtivöruframleiðslu og
hreinlætisvörur sem og í efnaiðnaði.
Neikvæð umhverfisáhrif
Framleiðslan á þessari vinsælu olíu tekur þó sinn toll því
umhverfisáhrifin eru mikil og neikvæð. Pálmolíuræktun fer
að langmestu leyti fram í Indónesíu og Malasíu þar sem stór
landsvæði hafa verið lögð undir pálmolíuplantekrur. Skógar
hafa verið höggnir og mólendi þurrkað upp með alvarlegum
afleiðingum fyrir dýralíf auk þess sem þessi breyting á vistkerf-
inu losar gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda. Á eyjunni
Borneo hefur órangútönum fækkað mikið eftir að náttúrulegum
heimkynnum þeirra hefur verið breytt í plantekrur. Hér í eina tíð
var eyjan þakin regnskógi og á eyðing þeirra sér vart hliðstæðu.
Athyglin hefur því eðlilega beinst að þeirri eyðileggingu sem
pálmolíuræktun hefur í för með sér og upplýstir neytendur hafa í
vaxandi mæli gert kröfu um ábyrgari ræktun og framleiðslu.
Stefnt að sjálfbærni
Árið 2004 voru sett á fót samtök sem kallast Roundtable on
Sustainable Palm Oil (RSPO). Þátttakendur eru framleiðendur,
seljendur, félagasamtök og aðrir sem hafa það sameiginlega
markmið að ýta undir sjálfbæra framleiðslu á pálmolíu. Horft
er til umhverfissjónarmiða og aðstæðna verkafólks á ökrunum.
Margar verslunarkeðjur nota nú einungis RSPO-merkta
pálmolíu í framleiðslu sína. Merkingin hefur þó verið gagnrýnd
fyrir að ganga of skammt og segjast dönsku neytendasamtökin
Tænk ekki geta mælt með henni. Hlif Yvy Linnetved frá WWF
náttúruverndarsamtökunum segir í viðtali við Tænk að vissulega
sé hægt að bæta merkinguna, og það sé reyndar í bígerð, en í dag
sé merkingin það skásta sem við höfum. Torben Chrintz, ráðgjafi
í umhverfismálum, telur að RSPO-framtakið hafi litla þýðingu
þar sem magnið af olíu sem er framleitt sé aðalvandamálið. „Ef
seljendur hafa raunverulega áhuga á að vernda umhverfið ættu
þeir að segja neytendum að kaupa minni olíu,“ segir hann.
– mest selda jurtaolía í heiminum en jafnframt sú umdeildasta
Pálmolía
Heimkynni Órangútana eru rengskógar Borneó og Súmötru.Vegna
ágangs mannsins eru órangútanar nú í útrýmingarhættu.
Pálmolían ekki holl
Pálmolían inniheldur 49% af mettaðri fitu, pálmkjarnaolía
heil 82% en rapsolía einungis 7%. Fæstir nota pálmolíu við
eldamennskuna heima við en hún er mjög mikið notuð í
unnar matvörur, svo sem kex, kökur, súkkulaði og ís.
RSPO merkingin