Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Qupperneq 20

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Qupperneq 20
20 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 F R É T T I R Íslenskar ljósmæður hafa á síðustu árum byggt upp vandað rann- sóknarstarf á íslenskum vettvangi ásamt því að taka í sífellt meiri mæli þátt í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi. Þekkingargrunnur íslenskrar ljósmóðurfræði fer þannig vaxandi og byggir undir stoðir öflugrar barneignarþjónustu sem veitt er af ljósmæðrum. Ljósmæðra- blaðið vill að vanda koma á framfæri upplýsingum um þessi verkefni ljósmæðra, doktorsnemendur og rannsóknir sem birtar hafa verið af íslenskum ljósmæðrum á öðrum vettvangi en í Ljósmæðrablaðinu. Tvær íslenskar ljósmæður stunda um þessar mundir rannsóknanám á doktorsstigi, þær Ingibjörg Eiríksdóttir og Embla Ýr Guðmunds- dóttir. Valgerður Lísa Sigurðardóttir varði þann 5. júní síðastliðinn doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði sem ber heitið Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð: Framtíðarsýn barneignarþjónustu og bætist þar með í stækkandi hóp íslenskra doktora í ljósmóðurfræði (þær eru nú 7). Íslenskar ljósmæður taka einnig þátt í alþjóðlegu og innlendu rannsóknarsamstarfi, þar á meðal: - Barneign og Heilsa: Hildur Kristjánsdóttir og Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir. Gögn úr þessu verkefni hafa nýst í íslenskum doktorsrannsóknum Berglindar Hálfdánsdóttur, Sigfríðar Ingu Karlsdóttur og Valgerðar Lísu Sigurðardóttur - COST verkefnið Childbirth Cultures, Concerns, and Consequences: Dr. Helga Gottfreðsdóttir - MiMo módelið, umönnun í barneignarferlinu í norrænu samhengi á forsendum kvenna (Woman centred care): Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir - The Nordic Homebirth Study: Dr. Berglind Hálfdánsdóttir og Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir - International Variations Study: Dr. Berglind Hálfdánsdóttir - Verkefnastyrkur Rannís um framköllun fæðinga tímabilið 1997- 2018: Dr. Emma Marie Swift og Dr. Helga Gottfreðsdóttir - Verkefnastyrkur Rannís (styrknúmer 196218-051). Erlendar konur á Íslandi: útkoma á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu og samskipti þeirra við heilbrigðiskerfið: Dr. Helga Gottfreðs- dóttir, Dr. Emma Marie Swift, Embla Ýr Guðmundsdóttir og Edythe L. Mangindin. - COST verkefnið Perinatal Mental Health and Birth-Related Trauma: Maximising best practice and optimal outcomes (CA18211): Dr. Sigfríður Inga Karlsdóttir, Dr. Sigríður Sía Jónsdóttir og Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir (varafulltrúi) - Nordic Network of Academic Midwives (NorNAM): Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir og Dr. Helga Gottfreðsdóttir - Nordic welfare center rannsóknarsamstarfið Use of alcohol and other substances during pregnancy – in a Nordic perspective (samstarf að hefjast): Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir Að auki taka íslenskar ljósmæður þátt í rannsóknar- og þróunar- verkefnum í Twinning samstarfsverkefni íslensku og hollensku ljósmæðrafélaganna. Tilgangur verkefnisins er að styðja við leið- togahlutverk ljósmæðra og þekkingarmiðlun þeirra um eðlilegar fæðingar gegnum rafræna miðla í löndunum tveimur. Námskeiðslína og verkefni sem því tengist mun vera kennt í nýrri námskrá í ljós- móðurfræði. Frá síðasta vori hafa tvær ritrýndar greinar sem skrifaðar eru af íslenskum ljósmæðrum birst í Ljósmæðrablaðinu. Í það minnsta fimm ritrýndar greinar og bókarkaflar um rannsóknir íslenskra ljós- mæðra hafa birst á öðrum vettvangi á þessum tíma: Sigfríður Inga Karlsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir og félagar birtu í bókinni Empowering Decision-Making in Midwifery: A global Perspective bókarkaflann Decision-making around pain management during labour (ritstjórar Elaine Jefford og Julie Jomeen). Embla Ýr Guðmundsdóttir, Helga Gottfreðsdóttir og félagar birtu í tímaritinu Women and Birth í október 2019 greinina Midwifery students’ perspectives on how role models contribute to becom- ing a midwife: A qualitative study: https://www.sciencedirect.com/ science/article/pii/S1871519219302100?via%3Dihub Sigfríður Inga Karlsdóttir og félagar birtu í tímaritinu The Pract- icing Midwife í nóvember 2019 greinina Humanisation of child- birth; Re-envisaging labour pain – a humanistic approach: https://www.all4maternity.com/humanisation-of-childbirth-3-re-en- visaging-labour-pain-a-humanistic-approach/ Ólöf Ásta Ólafsdóttir og samstarfsaðilar birtu í febrúar 2020, grein úr verkefninu the Nordic Homebirth study, í tímaritinu Women and Birth: Being in charge in an encounter with extremes. A survey study on how women experience and work with labour pain in a Nordic home birthsetting https://www.sciencedirect.com/science/ article/pii/S1871519219308893 Berglind Hálfdánsdóttir og samstarfsaðilar hennar í International Variations Study rannsóknarsamstarfinu birtu í tímaritinu PLoS Medicine í maí 2020 greinina Variations in use of childbirth interventions in 13 high-income countries: A multinational cross-sectional study: https://journals.plos.org/plosmedicine/ article?id=10.1371/journal.pmed.1003103 Íslenskar ljósmæður hafa að vanda sótt ráðstefnur hérlendis og erlendis og kynnt þar rannsóknir sínar eftir föngum, meðal annars á Fræðadögum heilsugæslunnar og ráðstefnunni Fjölskyldan og barnið á vegum Landspítala sem haldin var haustið 2019. Vegna covid-19 faraldursins var Alþjóðlegri ráðstefnu ICM, alþjóðasamtaka ljósmæðra, sem halda átti í Balí nú í júní frestað til vorsins 2021. Ráðstefnu Ljósmæðrafélagsins sem halda átti í tengslum við 5. maí var að sama skapi frestað til haustsins 2020. Ljósmæðrablaðið hvetur íslenskar ljósmæður til að sækja innlendar og erlendar ráðstefnur þegar heimurinn opnast aftur og sækja sér þannig nýja þekkingu í ljósmóðurfræði. Til þess má nýta styrki sem í boði eru til starfsþró- unar innan BHM. Berglind Hálfdánsdóttir YFIRLIT YFIR ÍSLENSKAR LJÓSMÆÐRA- RANNSÓKNIR 2019-2020

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.