Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Síða 29

Ljósmæðrablaðið - aug. 2020, Síða 29
29LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - ÁGÚST 2020 einnig breytt. Þaðan voru stólar fjarlægðir svo það væri ekki hægt að sitja of nálægt næsta manni auk þess sem fundarherbergi var nýtt sem kaffistofa svo allir hefðu nægt rými í hádegishléi. Erfiðasta breytingin innan heilsugæslunnar var þó hólfun ritara og læknaritara. Þar sem ekki var hægt að skipta þeim í teymi voru ritararnir lokaðir af inni á sínum skrifstofum. Þangað mátti enginn koma inn og þeir máttu ekki fara þaðan út nema til þess að fara á salerni. Þeir nýttu klósett í kjallara hússins sem fáir nota og borðuðu saman inni í sínum litlu vistarverum. Ritararnir lýstu því sjálfir sem þeim liði eins og fiskum í fiskabúri, því aðeins var hægt að ræða við þá og ,,horfa“ á þá í gegnum glerið sem skilur þá frá skjólstæðingunum. Álagið á þessum tíma var mikið. Það var erfitt að halda utan um mæðraskoðanir svona margra kvenna á hverjum degi og hræðslan að missa af einhverju, rugla einhverjum saman eða jafnvel gleyma einhverju var til staðar. Það var einnig erfitt að vera sú sem var heima, því sú vissi hvernig ástandið var á heilsugæslunni en fannst hún lítið geta hjálpað. Það bætti ekki úr skák þegar hluti af öðru teyminu var sett í sóttkví sem gerði það að verkum að í stað þess að skipta um hlutverk eftir eina viku þurfti sama ljósmóðirin að vera í húsi tvær vikur í röð og hin að vinna heima í tvær vikur. Helsta áskorunin er varðar covid-19 faraldurinn að mínu mati var að vera alltaf með allar upplýsingar á hreinu. Daglega komu tölvupóstar og tilkynningar á „workplace“ með nýjustu upplýsingum, ýmist frá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eða Landspítalanum. Dágóður tími fór því í að lesa nýjustu upplýsingar, greina hismið frá kjarnanum og leggja það helsta á minnið. Og þrátt fyrir að ófrískar konur hafi alla jafna margar spurningar á reiðum höndum urðu þær enn fleiri á þessum tíma. Þær veltu meðal annars fyrir sér hvort þær væru í meiri hættu en aðrir á að smitast, möguleikanum á smiti yfir til barnsins, hvort þær og makinn mættu halda áfram að mæta til vinnu og hvort þær ættu að taka börn sín úr leikskóla eða skóla á meðan það versta gengi yfir. Flestar höfðu þó mestar áhyggjur af því hvort maki mætti fara með þeim í sónarskoð- anir eða vera með þeim í fæðingu. Fæðingin var þó umtalsvert meira áhyggjuefni en sónarskoðunin. Þrátt fyrir áhyggjur, vonbrigði og erfiða tíma sýndi hver og ein kona þessu ástandi skilning. Það var ekki fyrr en 25. maí að allt starfsfólk heilsugæslunnar kom saman til vinnu. Teymisvinnunni var lokið og starfið að færast í eðlilegra horf. Við ljósmæðurnar höfðum þó fengið leyfi til þess að vera báðar í húsi um tveimur vikum áður þar sem okkur þótti álagið ekki boðlegt lengur. Sú sem tilheyrði heimateyminu mætti til vinnu án þess að ræða við annað starfsfólk og fór út úr húsi í hádegi til þess að nærast. Vann sína vinnu en hélt sig til hlés að öðru leyti. Við sáum ekki fram á að geta sinnt öllum okkar skjólstæðingum með einungis aðra ljósmóðurina í húsi. Og þvílíkur léttir sem það var. Covid-19 breytti mörgu og segja má að starfi heilsugæslunnar hafi verið kollvarpað á stuttum tíma. Faraldurinn kenndi okkur að sníða stakk eftir vexti, breyta því sem þurfti að breyta og vinna saman að settu markmiði. Við lærðum að hægt er að nýta símaviðtöl í ýmislegt og er ég sannfærð um að í framtíðinni sé hægt að nýta símann betur en áður. Minnka samskipti, draga úr umferð, einfalda lífið. Covid-19 hefur hins vegar sett mark sitt á meðgöngu skjólstæðinga okkar og aukið kvíða þeirra og áhyggjur. Faraldurinn hefur einnig haft áhrif á aðkomu feðra að meðgönguverndinni, sett þá til hliðar og í aukahlutverk. Aukahlutverk sem ég tel að þeir hafi ekki verið sáttir við að vera í. En nú horfir til betri vegar og vonandi kemur ekki til þess að við lendum í viðlíka aðstæðum aftur. Anna Guðný Hallgrímsdóttir Anna Guðný horfir á skjáinn og gefur upplýsingar og ráð. Við tökum á móti ýmis konar efni, rannsóknum og reynslusögum um áhrif faraldursins á okkar skjólstæðinga, hvernig við getum mætt breytingum og veitt góða heildræna þjónustu samkvæmt þörfum hvers og eins; ekki síst innflytjenda og þeirra sem eru minni máttar, á flótta eða eiga við andlega vanlíðan og fíkn að stríða. Upplifanir og hugleiðingar ljósmæðra um líf og starf á covid-19 tíma, skipta máli, hvaða lausnir hafa verið notaðar, helstu hindranir, breytingar á þjónustu og vinnuálagi. Umfjöllun um aðstæður, líðan mæðra, feðra og fjölskyldna þeirra er nauðsynleg, hvað við höfum lært, hvernig verður framhaldið og hvað eigum við að gera til að undirbúa okkur ef hríðin kemur aftur og aftur? Best er að senda efni og fyrirspurnir til ritstjóra á netfangið: olofol@hi.is ORÐSENDING TIL LJÓSMÆÐRA Ljósmæðrablaðið vill gjarnan fjalla áfram um og halda til haga heimildum um áhrif covid-19 faraldursins á líf barnshafandi kvenna og fjölskyldna þeirra, starf ljósmæðra og skipulag heilbrigðisþjónustu.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.