Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Opið verður laugardag frá kl. 12 til 16 og sunnudag frá kl. 13 til 16
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Lokadagar útsölunnar
Verslunin hættir
30-70% afsláttur af allri vöru
Teheran. AFP. | Írönsk flugmálayfir-
völd höfnuðu því í gær að úkraínskri
farþegaþotu, sem fórst skammt frá
Teheran á miðvikudag, hefði verið
grandað með flugskeyti.
„Það er eitt sem er öruggt, þessi
flugvél varð ekki fyrir flugskeyti,“
sagði Ali Abedzadeh flugmálastjóri
á blaðamannafundi í Teheran.
Fram hefur komið að leyniþjón-
ustur Breta og Kanadamanna telja
að fyrir mistök hafi írönsk eldflaug
grandað farþegaþotunni. Justin
Trudeau, forsætisráðherra Kanada,
og Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, segja allt benda til þess
að þotan sem hrapaði hafi verið
skotin niður með írönsku flugskeyti.
Þeir segja brýnt að ítarleg rannsókn
fari fram á málinu.
Abedzadeh sagði að ásakanir í
garð Írana ættu ekki við rök að
styðjast og ekki væri hægt að full-
yrða neitt með vissu fyrr en rann-
sókn á flugritunum væri lokið.
Yfirlýsingar Breta og Kanada-
manna komu fram í kjölfar birtingar
myndskeiðs sem á að sýna að far-
þegaþotan hafi verið skotin niður.
Myndskeiðið, sem New York Times
segist hafa sannreynt, sýnir hrað-
skreiðan hlut skjótast upp í himininn
áður en blossi myndast og skömmu
síðar heyrist sprenging.
„Við höfum séð nokkur mynd-
skeið. Við staðfestum að flugvélin
var logandi í 60 til 70 sekúndur,“
segir Abedzadeh. „En að hún hafi
verið hæfð af einhverju gengur ekki
upp vísindalega séð,“ bætti hann við.
Ali Abedzadeh sagði til skýringar að
á sama tíma og úkraínska þotan var í
átta þúsund feta hæð hefðu nokkrar
aðrar flugvélar, bæði innlendar og
erlendar, flogið í svipaðri hæð á
sömu slóðum og því gengi einfald-
lega ekki upp að hún hefði verið
hæfð með flugskeyti.
Upplýsingar um flug sýna að ein-
hver flugumferð var um Mehrabad-
flugvöllinn, sem er 35 km norðaust-
ur af Imam Khomeini-alþjóðaflug-
vellinum þaðan sem Boeing-þota
úkraínska flugfélagsins var að koma.
Íranski flugmálastjórinn, sagði að
fulltrúum Bandaríkjanna, Kanada,
Frakka, Úkraínumanna og Svía
hefði verið boðið að fylgjast með
rannsókn málsins til að sýna fram á
að Íranar hefðu engu að leyna. Áður
hafði íranska utanríkisráðuneytið
tilkynnt að fulltrúum Boeing-flug-
vélaframleiðendanna, hefði verið
boðið að taka þátt í rannsókninni.
Hreyflar flugvélarinnar voru að
hluta til framleiddir í Frakklandi og
hafa Frakkar boðið fram þarlenda
sérfræðinga til að rannsaka upplýs-
ingar sem flugriti vélarinnar skráði.
Vadym Prystaiko, utanríkisráð-
herra Úkraínu, sagði í gær að
bandarískir embættismenn hefðu
látið úkraínskum stjórnvöldum í té
„mikilvægar upplýsingar“ um slysið.
Þá sagði utanríkisráðuneyti Írans
að kanadísk sendinefnd væri á leið
til Írans „til að sjá um málefni kan-
adískra fórnarlamba.“ Íran og Kan-
ada slitu stjórnmálasambandi árið
2012.
Hafna kenningu
um flugskeyti
Íranar segja kenningu um að flugvél
hafi verið skotin niður ekki ganga upp
AFP
Íran Farþegaflugvélin sem hrapaði var frá Úkraínu og voru 176 um borð.
3 km
Imam Khomeini
alþjóðaflugvöllurinn
Heimild: FlightRadar24/stjórnvöld í Úkraínu/fréttir fjölmiðla
Heimild korts: openstreetmap.org
Flugtak
6.12 að
staðartíma
Enginn komst lífs af þegar flugvél skall til jarðar skömmu eftir flugtak í Teheran 8. janúar
Úkraínsk farþegaflugvél fórst í Íran
6.15
Skráningu flug-
upplýsinga lýkur
Brak úr flugvél
Ukraine International
Airlines PS-752
Boeing 737-800,
tekin í notkun 2016
176 farþegar og
áhöfn um borð:
82 Íranar
63 Kanadamenn
11 Úkraínumenn
Vestrænir leiðtogar og sérfræðingar segja að
ýmsar upplýsingar bendi til flugskeytaárásar
10 Svíar
4 Afganar
3 Þjóðverjar
3 Bretar