Morgunblaðið - 11.01.2020, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
✝ Berglind RósaJósepsdóttir,
Begga Jobba,
fæddist 28. janúar
1986. Hún lést 30.
desember 2019 á
krabbameinsdeild
Landspítalans, 33
ára að aldri.
Foreldrar Berg-
lindar eru Anna
Guðrún Aðalsteins-
dóttir matráður, f.
13. júlí 1956, og Jósep Magnús-
son vélstjóri, f. 13. maí 1955.
Systkini Berglindar eru:
1) Aðalsteinn Jósepsson, um-
sjónarmaður íþróttamannvirkja
hjá Grundarfjarðarbæ, f. 12.
desember 1978. Maki: Heiðrún
Hallgrímsdóttir. Börn: Anna
Bryndís, f. 25. ágúst 2009, og
Hallgrímur Örn, fæddur 16.
mars 2011.
2) Guðrún Jóna Jósepsdóttir,
fjármála- og skrifstofustjóri hjá
Fjölbrautaskóla Snæfellinga, f.
björnsson, vélstjóri, f. 16.
desember 1963, og Sigr. Fjóla
Jóhannsdóttir, 25. október
1965, heimavinnandi húsmóðir.
Synir Berglindar og Sigur-
björns eru Hans Bjarni, f. 5. maí
2011, og Magni Rúnar, f. 11. júlí
2014. Begga og Sigurbjörn
gengu í hjónaband 28. desem-
ber 2019.
Berglind ólst upp í Grundar-
firði og gekk þar í grunnskóla,
sótti framhaldsnám við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi og útskrifaðist sem
klæðskeri frá Tækniskólanum í
Reykjavík. Berglind bjó nánast
alla tíð í Grundarfirði þar sem
flestir úr fjölskyldu hennar eru
búsettir. Hún vann ýmis störf,
lengst af á veitingahúsinu Kaffi
59, átti staðinn og rak ásamt
móður sinni undir það síðasta.
Berglind tók virkan þátt í fé-
lagslífi Grundarfjarðar, naut
þess að stunda skíði, jaðarsport
og útivist hvers konar með fjöl-
skyldu sinni og vinum, ferðaðist
mikið með fjölskyldu sinni og
hafði áhuga á ýmsu handverki
og saumaskap.
Útför Berglindar fer fram
frá Grundarfjarðarkirkju í dag,
11. janúar 2020, klukkan 13.
19. maí 1981. Maki:
Tómas Freyr Krist-
jánsson. Börn:
Kristján Freyr, f.
20. maí 2005, Ellen
Alexandra, f. 16.
júlí 2013, og Breki
Berg, f. 17. septem-
ber 2019.
3) Magnús
Jósepsson smiður,
f. 9. október 1982.
Maki: Dagný Ósk
Guðlaugsdóttir. Börn: Jósep
Dagur, f. 30. október 2008, Ró-
bert Torfi, f. 2. ágúst 2011, og
Kristín María, f. 22. júlí 2015.
4) Júlíus Arnar Jósepsson sjó-
maður, f. 19. júní 1984.
5) Arndís Jenný Jósepsdóttir
nuddari, f. 2. júlí 1992. Börn:
Hrafntinna Valdís, f. 10. apríl
2019.
Eiginmaður Berglindar er
Sigurbjörn Z. Hansson vélstjóri,
f. 9. júní 1984. Foreldrar Sigur-
björns eru Hans Bjarni Sigur-
Það er mér nánast óbærilegt að
setjast niður og setja niður á blað
einhver orð um elsku systur mína.
Það eru ekki til orð sem ná utan
um það hvernig mér líður. Þetta
er svo sárt. Það er hola inni í mér,
hola sem kemur til með að vera.
Það mun enginn feta í fótspor
Beggu systur minnar. Hún var
yngri systir mín og gat allt. Begga
bjó yfir dásamlegum eiginleika að
redda alltaf öllu og öllum. Hún óð í
öll verk og leysti þau vel af hendi.
Ég man ekki eftir neinu sem
Begga gat ekki. Á dánarbeðinum
grét ég utan í henni og spurði,
hvað á ég að gera núna en áfram
stappaði hún í mig stálinu og sagði
mér að ég gæti allt sem ég ætlaði
mér! Hún reyndi að undirbúa okk-
ur vel, það er ótrúlegt töfra-
raunsæi sem hún fékk þegar ljóst
var í hvað stefndi. Setti okkur öll-
um fyrir verkefni, hver og einn
átti að passa hinn og þennan, þá
sem henni voru kærastir. Á til-
finningaþrungnum og erfiðum
fundi á Þorláksmessu með lækn-
inum hennar sagði hann að til-
gangur lífsins væri að elska og
vera elskaður. Það verður sko
ekki tekið af henni systur minni,
hún elskaði mikið og var svo sann-
arlega mikið elskuð. Harmur
hennar var þó óbærilegur, til-
hugsunin um strákana sína móð-
urlausa var svo sársaukafull að
engin orð fá því lýst. Harmur yfir
því að fá ekki að taka þátt í fram-
tíðinni, að sjá þá vaxa og dafna.
Það gustaði af Beggu, hún
læddist svo sannarlega ekki með
veggjum. Mikið mun ég sakna
hnyttinna tilsvara Beggu minnar.
Hún hafði skoðun á svo mörgu og
sagði sína meiningu. Ég leitaði oft
til hennar varðandi börnin, barna-
uppeldið og bara daginn og veginn
og gat alltaf treyst því að fá heið-
arlegt svar.
Óheiðarlegt og ósanngjarnt
fólk átti ekki upp á pallborðið hjá
henni Beggu og fannst henni lítið
til svoleiðis fávita koma. Það var
oft hressilegt að heyra skoðanir
hennar á svoleiðis fávitum.
Ég kann ekki að lifa í heimi án
Beggu. Sársaukinn að hugsa til
þess sem hún og strákarnir þrír
(þessi stóri líka) fá ekki að upplifa.
Við þurfum að lifa áfram og lífið
heldur víst áfram en það er svo
miklu tómlegra án Beggu.
Það er erfitt að sætta sig við að
þú skulir vera farin. Það verður
erfitt að lifa með holunni og þetta
mun alltaf vera sárt. Vonandi
verður það bærilega sárt fljótlega.
Það er það ekki núna.
Sjáumst í næsta stríði.
Þín elskandi systir,
Guðrún (Rúna).
Það er þyngra en tárum taki að
þurfa að setjast niður og skrifa
niður þessi orð. Elskuleg mág-
kona mín fallin frá langt fyrir ald-
ur fram. Beggu kynntist ég þegar
við Rúna fórum að stinga saman
nefjum seint á síðustu öld. Þá var
hún 12 ára gömul, kraftmikil ung
stúlka sem fór sínar eigin leiðir.
Svo sá maður hana þroskast og
dafna og verða að þeirri konu og
móður sem hún svo varð. Alltaf
var stutt í brosið hjá Beggu enda
hafði hún gaman af lífinu. Þegar
við Rúna eignuðumst okkar fyrsta
barn var Begga frænka mætt um
leið til að knúsa þetta fyrsta systk-
inabarn sitt. Hún og Kristján
Freyr áttu fallegt samband alla tíð
og var hún gott mótvægi við móð-
ur hans í uppeldinu sem hún tók
smá þátt í. Begga var líka rögg-
söm og dugleg og gekk ákveðið til
verks þegar eitthvað þurfti að
gera. Stundum var orðið „brussa“
jafnvel notað í slíkum tilfellum en
hvað er ein og ein málningarsletta
eða brotinn diskur á milli vina. Í
seinni tíð, er Begga og Sigurbjörn
maður hennar, hófu búskap og
eignuðust börn var gaman að sjá
hana dafna í móðurhlutverkinu.
Ekki munaði hana um að hengja
drengina tvo á sig (með þar til
gerðum græjum pöntuðum af ver-
aldarvefnum) og halda í göngutúr.
Lausnamiðuð var hún og oft leit-
aði ég til hennar með fataleppa
sem þurfti að betrumbæta og
laga. Eitt skipti er ég eignaðist
forláta buxur, sem mér þótti með
heldur grunna vasa sem varla
héldu stóru snjalltæki mínu, leit-
aði ég til Beggu með betrumbæt-
ur. Það var ekki mikið tiltökumál
að græja nýjan, dýpri og teygjan-
legri vasa sem hentaði fullkom-
lega. Þetta var bara lítið dæmi um
útsjónarsemi og velvild hennar.
Mikið hvað ég á eftir að sakna
þessarar fallegu mágkonu minnar
um ókomna tíð en ansi stórt skarð
er nú í stórfjölskyldunni eftir frá-
fall hennar. Við sem eftir lifum
höfum ekkert nema fallegar minn-
ingar af samverustundum liðinna
tíma. Hvort sem það voru ferðalög
um Vestfirði, rúntur um auðnir
Melrakkasléttu, samverustundir í
Bárðardal eða bara kaffibolli á
Hellnafelli 2. Það var afskaplega
gaman að ferðast með þeim
Beggu og Sigurbirni enda voru
ferðalög og útilegur hvers konar
stór hluti af þeirra lífi. Elsku Sig-
urbjörn, Hans Bjarni og Magni
Rúnar. Mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til ykkar fallegu feðga og
eins og þið vitið þá eru dyrnar allt-
af opnar hjá okkur fyrir neðan
Hellnafellið.
Lífið er núna!
Tómas Freyr Kristjánsson.
Elsku Begga. Það er erfitt að
setjast niður og skrifa minningar-
orð um þig því ég trúi því ekki enn
að þú sért farin. Það sem er mér
efst í huga er þakklæti. Þakklæti
fyrir að fá að kynnast þér og fyrir
allar skemmtilegu samverustund-
irnar með þér.
Við höfum þekkt hvor aðra síð-
an við vorum saman á leikskóla.
Alla tíð varst þú stelpan sem
var alltaf brosandi og breyttir
leiðinlegum stundum í skemmti-
legar. Dökkhærða stelpuskottan í
kjólnum, stígvélunum og með fal-
legu spékoppana.
Við umgengumst hvor aðra
ekki mikið á yngri árum en síð-
ustu 10 ár höfum við eytt mörgum
stundum saman. Í saumaklúbb-
um, skíðaferðum, sumarbústaða-
ferðum, útilegum, matarboðum og
í útlöndum. Þessar samveru-
stundir eru mér svo mikils virði í
dag.
Alls staðar sem þú varst nálæg
var gaman. Bros þitt og hlýja var
alltaf til staðar. Þú varst með svo
einstaklega fallegt bros. Þú varst
alltaf hrein og bein og varst
óhrædd við að segja þínar skoð-
anir. Þú framkvæmdir það sem
þér datt í hug og hikaðir ekki við
það.
Þú varst dásamleg mamma og
gerðir allt fyrir prinsana þína. Og
það hvernig þið Sigurbjörn tókust
á við veikindin var aðdáunarvert.
Alltaf var gleðin til staðar og þið
ætluðuð að tækla þetta “skíta job“
eins og þú orðaðir það og halda
svo áfram á ykkar braut. Því mið-
ur hafði skíta jobbið betur og
missirinn er gríðarlegur. Fyrir lít-
ið samfélag eins og Grundarfjörð
er missir sem þessi mikill. Ung
kona, móðir, eiginkona, dóttir,
systir, mágkona og vinkona í
blóma lífsins, sem alltaf var boðin
og búin til að aðstoða aðra og lét
sitt ekki eftir liggja, er fallin frá.
Þú varst mjög hæfileikarík og
fengu margir að njóta þeirra hæfi-
leika. T.d. með góðu bakkelsi, mat,
saumaskap og fleiru. Einnig
tókstu góðar ljósmyndir. Þú munt
svo sannarlega skilja eftir stórt
skarð í hjörtum fjölskyldu og vina,
en þú verður alltaf í huga okkar
hvert sem við förum.
Ferðafélagið Lúsmýið verður
ekki eins án þín en við munum
halda áfram að ferðast og þú verð-
ur að sjálfsögðu með okkur í anda.
Takk fyrir allar samverustund-
irnar, elsku vinkona, minning þín
lifir að eilífu.
Ég vil að lokum senda innilegar
samúðarkveðjur til Sigurbjarnar,
Hansa, Magna, Önnu, Jobba,
Steina, Rúnu, Magga, Júlla, Arn-
dísar og fjölskyldu. Megi guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Þín vinkona,
Ingibjörg Eyrún.
Elsku Begga mín.
Þú, með fallega brosið þitt,
djúpa spékoppa og smitandi hlát-
ur, ert komin í aðra vídd þar sem
þú ert ljós sem skín skært og aldr-
ei deyr.
Þegar ég kynntist Rúnu, systur
þinni, gerði ég mér ekki grein fyrir
því hvað ég myndi tengjast fjöl-
skyldunni ykkar sterkum bönd-
um.
Það er í gegnum gleðistundir,
sorgarstundir og hversdagsleika
Rúnu og Tomma sem ég deili
minningum með þér og nú um þig.
Með þér, í gegnum Rúnu, hef ég
fylgst með gleðistundum þínum,
hversdagsleika þínum, baráttu
þinni og nú síðast ósigri þínum.
Á stundu sem þessari stendur
tíminn í stað, hjartað grætur og yf-
ir dimmir. Með tíð og tíma mun á
sinn hátt birta til á ný og fólkið þitt
mun ylja sér yfir minningum um
þig og sjá þig í strákunum þínum
tveimur.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali og jökul ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Takk fyrir samveruna elskuleg
og þangað til við hittumst næst
vona ég að þú hafir það gott, elsku
Begga mín.
Kærleikskveðja til þín,
Ellen.
Ég man alltaf eftir því þegar
pabbi lýsti nýjasta afkvæmi vina
sinna, þeirra Önnu og Jobba.
Hann hafði bara aldrei séð stærra
barn, „það var svo mikið af því,“
útskýrði hann forviða. Og það var
rétt, allt frá byrjun var mjög mikið
af Beggu. Hún fyllti út í herbergi
með nærveru sinni, maður heyrði í
henni á milli húsa, hláturinn henn-
ar hafði þann eiginleika að það
klingdi ekki aðeins í hlustunum á
fólki heldur innri líffærunum öll-
um.
Begga var skynug og það var
ekki til í henni meðvirkni. Hún
rauk beint í að segja hlutina ber-
um orðum. Það var oft skemmti-
legt en líka erfitt þegar það beind-
ist að manni sjálfum, fúlt að láta
litlu systur Rúnu vinkonu ber-
strípa mann algerlega þegar mað-
ur var í óðaönn að klæða sig í keis-
araleg föt unglingsáranna.
Á dansleik á Kaffi 59 fyrir all-
mörgum árum uppgötvaði ég að
þyngdarafl Beggu hafði dregið að
sér vörpulegan fylgihnött. Þetta
var erfið staða fyrir Sigurbjörn,
sögulega eru aðkomumenn sem
gera sér dælt við heimastúlkur
lamdir í klessu. Því óð hann um
danssalinn óárennilegur á að líta
með útþanda bringu en reyndi um
leið að vera sjarmerandi og missa
viðfangið ekki úr augsýn. Í dyr-
unum stóð Jobbi og bannaði allt
kjaftæði en Anna vann við barinn
og leyfði náttúrlega allt. Og á öll-
um borðum sátu svo bræður og
systur hinnar eftirsóttu snótar og
fylgdust grannt með framvindu
mála.
Þótt örugglega séu til auðveld-
ari fjölskylduinnvígslur stóðst Sig-
urbjörn prófið með glans, fékk
prinsessunnar og þar með inn-
göngu í konungsríki Jobbanna,
skemmtilegustu og bestu fjöl-
skyldu landsins. Þetta var mikill
samruni og stækkaði svo enn við
fæðingu tveggja myndarlegra
drengja.
Nú er Begga farin og um leið
hefur heimurinn minnkað. Þrátt
fyrir allt of stutta ævi er skarðið
sem hún skilur eftir sig vægast
sagt stórt. Meiriháttar manneskj-
ur stækka nefnilega fólkið í kring-
um sig, gera meira úr umhverfi
sínu. Hláturinn hennar Beggu
gleymist engum og hann mun
örugglega óma um ókomna hríð í
fjallahring Grundarfjarðar, sem er
stórbrotinn eins og Begga sjálf
var. Smitandi kærleikurinn sem af
henni stafaði býr áfram í fólkinu
hennar og okkur öllum sem feng-
um að vera henni samferða. Það er
okkar að hlúa að honum og rækta
og halda minningu elsku Beggu
þannig á lofti.
Elsku fjölskylda, vinir okkar,
innilegar samúðarkveðjur.
Þórhildur Ólafsdóttir
og fjölskylda.
Berglind Rósa
Jósepsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
JÓN VALUR JENSSON
guðfræðingur, ættfræðingur,
ljóðskáld, bloggari og aðgerðasinni,
Framnesvegi 58, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 5. janúar.
Útför hans fer fram frá Dómkirkju Krists konungs í Landakoti
fimmtudaginn 16. janúar klukkan 15.
Katrín María Elínborgard.
Þorlákur Jónsson Lam Huyen
Ísak Jónsson
Sóley Kristín Jónsdóttir
Andri Krishna Menonsson Rita Jørgensen
Chinyere Elínborg Uzo
Elsa María Bachadóttir
Kolbrún Jensdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir, mágur, stjúpfaðir og afi,
VILHJÁLMUR HÚNFJÖRÐ
VILHJÁLMSSON,
lést að morgni nýársdags.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 15. janúar klukkan 13.
Innilegt þakklæti til starfsfólks krabbameinsdeildar
Landspítalans og Heru.
Elma Björk Diego
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Thelma Sigurðardóttir
Guðbjörg Húnfjörð
Emilía Húnfjörð
Bassi Vilhjálmsson
Sigurbjörg Lárusdóttir
Kristín Diego Baldur Óskarsson
Brynhildur Diego Haukur Smári
Aldís Ósk Diego
og barnabörn
Ástkær kona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
LILJA SIGURÐARDÓTTIR,
áður til heimilis í Klapparhlíð 18,
Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
Mosfellsbæ, 7. janúar.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju fimmtudaginn 16. janúar
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Aðstandendur færa starfsfólki hjúkrunarheimilisins bestu þakkir.
Trausti Brekkan Hjaltason
Birgir Ægir Kristjánsson Hlín Albertsdóttir
Hermann Páll Traustason Karin Eva Hermannsdóttir
Sigurður Trausti Traustason Kolbrún Ýr Einarsdóttir
Tómas Pétur Einarsson Corrine Einarsson
barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
FRIÐRIK JÓHANN STEFÁNSSON,
Sléttuvegi 31,
lést á Hrafnistu, Reykjavík miðvikudaginn
8. janúar.
Erla, Valur, Örn, Metta Kristín
og Björgvin Friðriksbörn
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
Háaleitisbraut 121, Reykjavík,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu miðviku-
daginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
17. janúar klukkan 11.
Hugheilar þakkir til starfsfólks L7 LHS Fossvogi, Vífilsstaða og
Vitatorgs, Hrafnistu, fyrir ástúðlega og góða umönnun.
Þóra Eyland Elíasdóttir Stefán Guðbjartsson
Ólafur Magnússon Katrín I. Valentínusdóttir
Elfur Magnúsdóttir Sæmundur Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn