Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Þegar ég hitti
Guðrúnu Ögmunds-
dóttur í fyrsta sinn
faðmaði hún mig og
kyssti eins og við værum alda-
gamlar vinkonur. Þetta var í mat-
sal Alþingis og ég var tvístígandi
á fyrsta degi sem þingfréttaritari
Morgunblaðsins. Með faðmlagi
Gunnu hvarf allt óöryggi heims-
ins. Hún bjó til pláss, leyfði mér
að tilheyra, sem er einhver almik-
ilvægasta tilfinning manneskj-
unnar.
Svona var Gunna. Mætti til-
finningum okkar áður en við viss-
um af þeim sjálf. Það var eins og
hún skynjaði heiminn á annarri
bylgjulengd, þar sem orð voru allt
að því óþörf. Þetta reyndist
stundum dálítil kúnst fyrir ævi-
söguskrásetjara. „Ég meina jiii,
maður minn, þú getur rétt ímynd-
að þér.“ Hvað? spurði ég. Ímynd-
að mér hvað? Þá brosti hún og
bætti aðeins við myndina. Yfir
heitu súkkulaði á Mokka öðlaðist
ég smám saman betri innsýn í líf
og feril þessarar margbrotnu
manneskju, og kom afrakstur
samtala okkar út á bók á sextugs-
afmæli Gunnu fyrir rétt um ára-
tug.
Skilningur Gunnu á mannleg-
um tilfinningum átti sér margar
ólíkar rætur, sumt eflaust með-
fætt, kannski nesti úr fyrri lífum,
annað lært. Hún lærði á barns-
aldri að fullorðnar manneskjur
geta verið flóknar. Að í einni
manneskju mætti finna blíðu,
mannkærleika og ást, en líka
reiði, ótta og sársauka, sem gæti
jafnvel brotist út með ofbeldis-
fullum hætti. Hún lærði að skilja
afbrýðisemi og sorg, en einnig
heilunarmátt kærleika og ástar.
Hún hvatti samferðafólk sitt stöð-
ugt til að þvælast ekki um með
löngu liðinn sársauka í bakpoka.
En það var líka inngróið í Gunnu
að kerfin okkar þyrftu að virka til
að styðja við fólk. Hún var fé-
lagsráðgjafi, ekki aðeins að
mennt, heldur af lífi og sál, í leik
og starfi. Þetta tók hún með sér í
stjórnmál og það gerði hana að
einstökum stjórnmálamanni, ein-
um þeim merkilegasta í okkar
samtíð, þótt hefðbundnar frétta-
skýringar nái ekki alltaf utan um
það. Hún dró fólk upp úr skot-
gröfum og píndi það til samtals,
því aðeins þannig geta alvöru-
breytingar átt sér stað. Demants-
krati er orðið sem hún notaði til
að lýsa föður sínum, hún var það
sannarlega sjálf.
Sem tengiliður vistheimila átti
Gunna samskipti við eitt þúsund
einstaklinga sem allir höfðu sína
sögu að segja og oft ekki fallega.
Þetta var eitt viðkvæmasta upp-
gjörið sem íslenskt samfélag hef-
ur staðið frammi fyrir og allflestir
gengu sáttir frá borði. Gunna
vissi sem var að fjárhæðirnar
máttu sín lítils einar og sér. Hér
þyrfti hlustun, virðingu og viður-
kenningu og að skylda stjórn-
valda væri að tryggja að fólk gæti
gengið hnarreist frá borði, frem-
ur en niðurbrotið úr dómsal.
Þótt Gunna hefði endalaust
pláss fyrir fólk, þá var hún fljót að
spyrna við fótum ef hún skynjaði
óheiðarleika. Græðgi og sjálf-
lægni þoldi hún ekki, og kannski
einmitt þess vegna datt hún út af
þingi á því herrans ári 2007 þegar
þau gildi voru allsráðandi í sam-
félaginu. Að leiðarlokum var hún
aftur orðin borgarfulltrúi – í ná-
vígi við nærþjónustuna – þar sem
hennar stjórnmálaferill hófst á
vegum Kvennalistans.
Guðrún
Ögmundsdóttir
✝ Guðrún Ög-mundsdóttir
fæddist 19. október
1950. Hún lést 31.
desember 2019.
Útför Guðrúnar
fór fram 10. janúar
2020.
Eftir að Gunna
veiktist minnti hún
okkur stöðugt á að
þora að taka á móti
hamingjunni, ekki
síst hamingjunni í
hinu smáa: fyrsta
kaffibolla dagsins,
KK í útvarpinu,
sveskjugraut með
rjómablandi. Og ein-
mitt þannig minn-
umst við hennar,
með því að þora að vera ham-
ingjusöm. Íslenskt samfélag er
ekki fátækara núna eftir að hún
er gengin, það er ríkara því við
áttum hana.
Ég votta Gísla, Ögmundi, Ingi-
björgu, barnabörnunum og öðr-
um aðstandendum mína dýpstu
samúð.
Gunna, elsku vinkona mín,
takk fyrir búa til pláss fyrir mig,
takk fyrir allt sem þú gafst af þér.
Sjáumst í henni næstu veröld.
Halla Gunnarsdóttir.
Ég var svo lánsamur að kynn-
ast Guðrúnu Ögmundsdóttur fyr-
ir um áratug, þegar leiðir okkar
lágu saman við lausn á bótaupp-
gjöri ríkisins við þá sem máttu
þola illa meðferð sem börn á
stofnunum á vegum hins opin-
bera. Ég vissi fátt um Guðrúnu á
þeim tíma og lítt grunaði mig hví-
lík áhrif hún myndi hafa á mig
þegar fram liðu stundir. Ég býst
við að flestir sem kynntust henni
geti sagt það sama. Samstarf okk-
ar stóð á níunda ár og lauk í raun
aldrei að fullu, því eftir að hún
hætti formlega störfum leitaði ég
oft til hennar til að fá ráð og
stundum bara til þess að fá dóm-
greind hennar og visku að láni.
Verkefnið sem okkur hafði verið
falið var svo vaxið að það tók
stundum bæði hugann og sálina í
gíslingu. Því var ómetanlegt að
hafa slíkan einstakling til sam-
starfs og ráða. Ég vissi í upphafi
ekki hvert samstarf okkar myndi
leiða, enda var um að ræða verk-
efni sem átti sér engin fordæmi í
íslenskri sögu. Guðrún var ráðin
sem tengiliður þeirra sem áttu
um sárt að binda og var verkefni
hennar að veita þeim aðstoð við
framsetningu bótakrafna í
orðanna hljóðan. Þetta er þó að-
eins brot af starfi hennar því hún
leysti verkefni sem voru langt
umfram það sem lagalegar starfs-
skyldur hennar gerðu ráð fyrir,
enda leit hún svo á að skyldur
hennar við þá sem í hlut áttu
væru miklu víðtækari en svo.
Þetta flókna verkefni leystist á
endanum farsællega og í þeirri
lausn lék Guðrún aðalhlutverkið.
Fljótlega varð mér ljóst að hún
væri eini rétti einstaklingurinn í
starfið, því hún var vakandi yfir
því mikilvægasta af öllu; að allir
hefðu eyra sem hlýddi á þá, gaf
ómetanleg ráð og veitti öllum þá
reisn og virðingu sem þeir áttu
skilda. Það var nefnilega sérstak-
ur hæfileiki hennar að koma fram
við alla, hvaða stétt sem þeir til-
heyrðu eða í hvaða stöðu sem þeir
voru, af sömu virðingu og oft sá
maður fólk vaxa við það eitt að
tala við hana. Það var jafnan mjög
sérstakt að vera með Guðrúnu,
húmorinn engu líkur og hún hafði
lag á að sjá margar hliðar á mál-
unum og ekki síst þær grátbros-
legu. Eftir að hafa lokið fundum
gengum við stundum frá dóms-
málaráðuneytinu og niður Banka-
strætið. Þessi stutta ganga tók
samt gjarnan um klukkustund,
því á leiðinni hitti Guðrún ótrú-
legan fjölda fólks sem vildi eiga
við hana orð og stundum að því er
virtist aðeins fá faðmlag og hlýju
frá henni, því þrátt fyrir að vera
hvorki stór né mikil vexti átti hún
svo stóran faðm að hann rúmaði
alla. Hún átti líka rödd sem hún
var tilbúin að lána þeim sem litla
eða enga áttu og tala fyrir þeirra
hönd og þvílík rödd það var sem
hún léði þeim. Eftir kynni af
henni stendur fyrst og fremst eft-
ir orðið þakklæti. Þakka þér elsku
vinkona mín fyrir það sem þú
gerðir fyrir mig. Þakka þér þegar
þú hringdir í mig á föstudögum til
að gæta þess að ég tæki starfið
ekki með mér heim yfir helgina,
þakka þér fyrir að fá að kynnast
þér og umfram allt þakka þér fyr-
ir allt það sem þú gerðir fyrir aðra
og hvernig þú lagðir þig alla fram
um að bæta líf þeirra sem ekki
gátu sjálfir. Hvíldu í friði eftir
ótrúlegt ferðalag þitt.
Halldór Þormar
Halldórsson.
Það var mikill kraftur í þessari
góðu konu þegar hún kom inn í líf
mitt í gegnum Vistheimilasam-
tökin með símtali sem varði í
meira en klukkustund. Þrátt fyrir
að ég væri öll til baka - full van-
trausts og efasemda um raun-
verulega góðmennsku hennar -
reyndist hún mér með eindæmum
úrræðagóð enda forvitin og þol-
inmóð kona sem lá ekki á liði sínu
að aðstoða fólk eins og mig með
því að benda á leiðir til að afla alls
konar gagna fyrir bótanefnd og
finna ásættanleg úrræði á þeirri
erfiðu göngu sem það var að
standa upp eftir áralanga þögn og
leita réttlætis um þann nöturlega
aðbúnað sem okkur vistheimila-
börnum var boðið upp á þegar við
vorum börn og unglingar í
hremmingum, vistuð á stofnunum
og heimilum á Íslandi.
Fyrir mér varð hún eins og
góður vinur eða gömul frænka.
Hún hringdi í mig mörgum sinn-
um til að ræða viðkvæm tilfinn-
ingamál og eins leitaði hún stund-
um ráða hjá mér um hvernig best
væri að haga hlutunum því hún
hafði þá alvarlegu skyldu á herð-
unum að vera klettur fyrir ólíkar
þarfir og óskir hvers og eins.
Kynferðislegt ofbeldi kom mest
til tals millum okkar og var hún
mjög skilningsrík og opinhuga,
fannst eiginlega sorglegast hvað
langtímaafleiðingar slíks ofbeldis
voru afdrifaríkar fyrir líf mitt og
óafturkræfar. Hún var Vistheim-
ilasamtökunum mikill stuðning-
ur, eins og góð móðir með unga-
hópinn sinn, þar sem við höfðum
öll mismunandi persónuleika,
reynslu, sögu og bakgrunn. Og
þrátt fyrir að geta ekki hjálpað
okkur öllum á þann hátt sem hún
kannski helst hefði kosið fór hún
ekki í manngreinarálit og gagn-
vart mér fann ég aðeins hlýju og
umhyggju fyrir að mér myndi
farnast sem best í lífinu.
Ég vil þakka henni fyrir að láta
mér finnast ég vera sérstök kona,
að segja mér að ég væri hugrökk
og að saga mín væri ljós í myrkr-
inu. Það þótti mér vænt um. Hún
gaf mér bæði styrk og trú á fram-
tíðina þegar ég var full efasemda
yfir að það væri aldrei hægt að
bæta mér þann miska sem ég
varð fyrir sem barn og unglingur.
Ég veit að þetta var erfitt starf
sem hún tók að sér og hún reyndi
að gera sitt besta þótt það tækist
ekki alltaf enda við vistheimila-
börnin bæði með misjafna og
ólíka reynslu mörg hver og bagg-
ar fortíðarinnar oft þungir að
burðast með og sligandi.
Megi algóður guð launa henni
fyrir hennar góðu verk. Ég mun
aldrei gleyma hennar ljúfu en
ákveðnu persónu þegar hún
reyndi að velta við mosavöxnum
steinum með misjafnlega góðum
árangri enda á brattann að sækja
í mörgum tilfellum og samfélagið
að vakna um hvað raunverulega
átti sér stað fyrir okkur vistheim-
ilabörn.
Ég kveð Guðrúnu með virð-
ingu.
Andi hennar lifir í verkum
hennar og í minningum mínum.
Hellen Linda Drake.
Það er alltaf sorg að kveðja
góðan vin. Guðrún Ögmundsdótt-
ir var einstaklega vinmörg, fram-
takssöm, rösk, skjót að greina
lausnir, ná sáttum og skila af sér
ánægðum skjólstæðingum, svo
vingarður hennar varð svo víður
að vandi er að fella í skörðin.
Guðrúnu kynntist ég strax sem
samstarfskonu á Kvennadeild
Landspítala, og enn nánar er við
Þuríður og hún vorum skipuð í
opinbera úrskurðarnefnd skv. 28.
gr. laga no. 25/1975. Samstarf
okkar þar stóð á þriðja áratug og
þrátt fyrir mikið annríki hennar á
mörgum vígstöðvum tókst okkur
alltaf að afgreiða öll erindi á ör-
skotsstund og náðum alltaf sátt
þótt oft væru flókin og viðkvæm
trúnaðarmál lögð fyrir nefndina.
Þar nutum við djúpstæðrar þekk-
ingar Guðrúnar á flóknum fé-
lagslegum aðstæðum.
Það fer ekki hjá því að svo
langvinn samvinna myndi vina-
tengsl og þannig kynntumst við
einnig fjölskyldu hennar, þó sér-
staklega Gísla, sem ávallt stóð
sem klettur við hlið hennar og sér
nú á bak ástvini og besta félaga.
Hjá honum, Ingibjörgu og Ög-
mundi er hugur okkar á þessum
tímamótum, þegar við kveðjum
Guðrúnu, okkar góðu vinkonu.
Við biðjum Hann sem öllu ræður
að blessa minningu Guðrúnar og
styðja Gísla og fjölskyldu við
þessi kaflaskil í lífi þeirra. Megi
sá kraftur sem einkenndi Guð-
rúnu verða þeim styrkur um
komandi ár.
Þuríður Árnadóttir,
Arnar Hauksson.
Það var enginn ósnortinn af því
að kynnast Guðrúnu Ögmunds-
dóttur því þar var á ferð einstök
kona. Það er erfitt að lýsa Gunnu;
hún var lítil og nett en um leið
stór á allan þann hátt sem maður
finnur í samskiptum, lífi og starfi.
Hún var orkumikil og snögg en
gaf sér samt alltaf tíma fyrir alla,
sá alltaf heildina og stóru línurn-
ar um leið og hún hugaði að
minnstu atriðum. Þessir hæfileik-
ar gerðu henni kleift að eiga auð-
velt með að lesa póltíkina, verk-
efnin og samfélagið. Gunna sá
fólk og það skipti hana máli þann-
ig að öllum í kringum hana fannst
eins og akkúrat þeir væru henni
mikilvægir, enda nálgaðist hún
alla sem jafninga, sama hver átti í
hlut. Við Gunna vorum staddar
saman fyrir nokkrum árum á Ír-
landi í vinnuferð þar sem við
gengum mikið á milli staða og
skoðuðum, hún var þarna ítrekað
stoppuð og spurð til vegar. Við
samferðafólk hennar hlógum
mikið að þessu en Gunna bara
brosti og sagðist oft lenda í þessu
hér og þar um heiminn og í raun
var þetta enn ein staðfestingin á
því hvað hún smellpassaði alls
staðar inn.
Það var ómetanlegt lán fyrir
mig að kynnast Gunnu og hún
reyndist mér bæði mikilvægur
pólitískur ráðgjafi og kær vin-
kona. Við tókum öðru hvoru einn
kaffi eða hádegismat og töluðum
alveg stanslaust í hringi um alls
konar hluti, persónulega og póli-
tík, og í lok samtals vorum við
komnar með línu í fjölmörg mál
og skildum hvor aðra alveg, þótt
ég efi að nokkur annar hefði hald-
ið þræði hefði hann hlustað á sam-
talið. Þessar minningar þykir mér
óendanlega vænt um og einnig
hve afgerandi Gunna var í sínum
skoðunum og hve óhrædd hún var
að láta þær skoðanir í ljós. Þá var
sama hvort hún var hrifin af ein-
hverju eða vildi benda á það sem
betur mætti fara hjá okkur ein-
staklingum eða bara í hugarfari
þjóðarinnar. Allt sagt af heiðar-
leika og vissunni um að það væri
alltaf best að segja sannleikann.
„Taka allt upp á borðið,“ eins og
hún sagði stundum þegar við vor-
um að ræða flókin samskipti í ein-
um af þeim hópum þar sem okkar
leiðir lágu saman.
Gunna lét sannarlega hjartað
ráða för í lífi og starfi. Mannrétt-
indi voru henni hjartfólgin en líka
að fólk vandaði til verka í stjórn-
sýslu og pólitík og gerði hlutina
faglega og vel. Fyrir konu eins og
mig, sem hef verið örfá ár í stjórn-
málum, var ómetanlegt að eiga
Gunnu og fyrir það verð ég æv-
inlega þakklát. Gunna elskaði
fólkið sitt og talaði mikið um Gilla
og Ingibjörgu, Ögmund og hans
fjölskyldu og hve lánsöm hún
væri, ég samhryggist þeim inni-
lega á þessum erfiðu tímum.
Heiða Björg Hilmisdóttir,
varaformaður Samfylking-
arinnar og borgarfulltrúi.
Árið hófst með þeirri harma-
fregn að Guðrún Ögmundsdóttir,
ein ötulasta baráttumanneskja
fyrir mannréttindum sem Ísland
hefur alið, hefði kvatt okkur
hinsta sinn. Að hennar stóra ljós,
hennar mikli logi væri nú slokkn-
aður. En í sorg og söknuði má
senn finna þakklæti. Þakklæti
fyrir að hafa fengið að vera henni
samferða um stund. Það er til-
finningin sem við, starfsfólk og
stjórn UNICEF á Íslandi, ætlum
að taka með okkur inn í framtíð-
ina.
Gunna, eins og hún var iðulega
kölluð, var stór hluti af starfsemi
UNICEF á Íslandi og ræktaði
hún það hlutverk sitt sem stjórn-
armaður og síðar stjórnarformað-
ur samtakanna um árabil af slík-
um eldmóði, drifkraft, hlýju og
manngæsku að hún kveikti sama
loga innra með öllum sem að mál-
efninu komu með henni. Það var
eins með réttindi og velferð barna
og annað sem hún tók sér fyrir
hendur. Allt gerði hún af alúð,
einurð og krafti.
Við hjá UNICEF á Íslandi er-
um þakklát fyrir að hafa fengið að
njóta krafta hennar Gunnu og á
hún stóran þátt í þeim árangri
sem samtökin hafa náð og sýn
hennar mun lifa áfram í verkum
okkar.
Við eigum henni margt að
þakka eins og ótalmargir Íslend-
ingar. UNICEF á Íslandi sendir
fjölskyldu og ástvinum Gunnu
hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Fyrir hönd starfsfólks og
stjórnar UNICEF á Íslandi,
Bergsteinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVANHILDUR ERLA J. LEVY,
Haðalandi 17,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 31. desember, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
16. janúar klukkan 15.
Gunnlaugur Guðmundsson
Garðar Gunnlaugsson
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson
Anna Júlíusdóttir
Hildur Gunnlaugsdóttir Arnar Sölvason
Áslaug Gunnlaugsdóttir Ágúst Sæmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástvinur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐJÓN TRAUSTASON
vélvirkjameistari,
frá Vestmannaeyjum,
andaðist 4. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 13. janúar
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Ljósið.
Sigríður Sverrisdóttir
Sigríður H. Guðjónsdóttir Ágúst Ólason
Trausti Guðjónsson Lísa María Karlsdóttir
Erlendur R. Guðjónsson Guðfinna B. Sigvaldadóttir
Elsa Gunnarsdóttir Jakob Kristjánsson
afabörn og langafabörn
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og ammý okkar,
KRISTÍN J. ÁRMANN,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði 28. desember.
Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju
17. janúar klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Blindrafélagið.
Valdís Erla Ármann Guðbjörn Ólafsson
Júlíus Jens Ármann
Kristín Björk Guðbjörnsd.
Ólafur Þór Guðbjörnsson Halla María Helgadóttir
Valdimar Björn Guðbjörns. Soffía Dögg Garðarsdóttir
Knútur Rafn Ármann Helena Hermundardóttir
Einar Helgi Ármann Steinunn Magnadóttir
Júlíus Rafn Ármann Tinna Ósk Þórarinsdóttir
og barnabarnabörn