Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 34

Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020 Ég er æskuvinur Sigmars yngsta sonar Vilhjálms og Gerðar og var ég því oft gestkomandi á heimili þeirra hjóna og kynntist þeim vel. Í fyrstu skiptin sem ég kom inn á heimilið fylgdi því einhvers konar lotning, að fá að koma inn fyrir dyrnar hjá þessum afreks- manni sem Vilhjálmur var. En það var bara fyrsta skiptið, svo varð það hversdagslegt. Vil- hjálmur var einhver umburðar- lyndasti fjölskyldufaðir Egils- staða, held ég. Hvernig hann hneykslaðist aldrei á vitleysunni í okkur drengjunum, hvernig hann hló oft með okkur og reyndi að kenna og leiðbeina frekar en að vera reiður og refs- andi eins og alveg eins gat tíðk- ast á þeim tíma. Ég man vel eftir mörgum stundum með Vilhjálmi þegar við horfðum á íþróttir með hon- um og því fylgdu oft fróðlegar sögur. Einnig þegar hann fylgd- ist með okkur tefla og ræða mál- in og kom með leiðréttandi, fræðandi og jafnvel þreytandi innskot. Stundum þegar við strákarnir spjölluðum í efri stof- unni eða upp í herbergi mátti heyra leiðréttandi hnuss í Vil- hjálmi neðan úr neðri stofunni eða innan úr vinnustofu ef hjal okkar var orðið of ábyrgðar- laust. Fyrir þessu hnussi bárum við virðingu, en þau eru einu ávirðingarnar sem ég man eftir að Vilhjálmur hafi veitt okkur drengjunum. Þegar ég lít til baka þá veit ég að Villi talaði vel um fólk og aldr- ei í bakið á neinum og sá aldrei ástæðu til að mikla sig af neinu, þótt ærin væri ástæðan. Vil- hjálms verður lengi minnst sem eins helsta afreksmanns íþrótta í Íslandssögunni, og einnig í mín- um huga sem afreksmanns á svo margan annan hátt. Gerði og aðstandendum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Hvíldu í friði Vilhjálmur. Einar Ben Þorsteinsson. Kveðja frá Íþrótta- og ól- ympíusambandi Íslands Það er með söknuði sem við kveðjum Vilhjálm Einarsson, heiðursfélaga ÍSÍ. Hans verður minnst sem eins fræknasta íþróttamanns Íslands, fyrr og síðar. Vilhjálmur var fyrstur Ís- lendinga til að vinna til verð- launa á Ólympíuleikum er hann vann silfurverðlaun á leikunum í Melbourne árið 1956 og setti þar ólympíumet sem hann átti í tvær klukkustundir. Enginn annar Ís- lendingur hefur sett ólympíu- Vilhjálmur Einarsson ✝ VilhjálmurEinarsson fæddist 5. júní 1934. Hann lést 28. desember 2019. Útför Vilhjálms fór fram 10. janúar 2020. met, hvorki fyrr né síðar. Vilhjálmur var fimm sinnum kjörinn íþróttamað- ur ársins og er sá Íslendingur sem hefur oftast hlotið þá nafnbót og hann var einnig fyrstur allra útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Af- rek hans verða ekki öll tíunduð hér en engum dylst að Vilhjálmur var framúrskarandi íþróttamaður og mikilvæg fyrirmynd fyrir íþróttafólk á öllum aldri. Það er með ólíkindum að Íslandsmet sem Vilhjálmur setti árið 1960 standi enn og það vekur bæði undrun og aðdáun að ganga fram hjá vel heppnuðu listaverki við Vilhjálmsvöll á Egilsstöðum sem sýnir lengd silfurstökksins frá Ólympíuleikunum í Melbourne. Með því listaverki og öðrum heimildum sem gert hafa stökk- inu og afrekum Vilhjálms góð skil, mun silfurstökk Vilhjálms halda áfram að veita íþróttafólki framtíðarinnar innblástur. Vilhjálmur var einnig farsæll skólastjórnandi og lagði sitt af mörkum til menntunar- og upp- eldismála í landinu. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu árið 2006 fyrir framlag sitt í þágu íþrótta- og uppeldismála. Vilhjálmur var í góðu sam- bandi við skrifstofu ÍSÍ og hann var duglegur að mæta á viðburði sem heiðursfélagar ÍSÍ taka þátt í. Hann sýndi starfi sambandsins og hreyfingarinnar allrar áhuga og naut þess að hitta unga sem aldna félaga í hreyfingunni við hátíðleg tækifæri, rifja upp gamla tíma og gefa góð ráð. Hans var saknað á hófi íþrótta- manns ársins í desember síðast- liðinn þar sem hann lét sig yfir- leitt ekki vanta. Má segja að það hafi verið táknrænt að andlát hans bar að sama kvöld og sú há- tíð fór fram, í ljósi þess að hann hafði hlotið titilinn íþróttamaður ársins oftar en nokkur annar. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ sendir innilegar samúðarkveðjur til Gerðar, eiginkonu Vilhjálms, og fjölskyldunnar allrar. Minningin um Vilhjálm Einarsson – silfurmanninn – mun lifa. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ. Mig langar að minnast Vil- hjálms Einarssonar frjáls- íþróttamanns og skólameistara sem lést 28. desember sl. 85 ára að aldri. Vilhjálmur var einn af okkar merkustu íþróttamönn- um. Afrek hans á Ólympíuleik- unum í Melbourne í Ástralíu árið 1956 skapaði honum stöðu sem þjóðhetju í augum Íslendinga og þeirri stöðu hefur hann haldið síðan. Stökk hans þar upp á 16,26 m var ólympíumet og skil- aði honum silfurverðlaunum á leikunum. Hann vann einnig bronsverðlaun á Evrópumótinu í Stokkhólmi árið 1958. Þýðing þess fyrir ungt lýðveldi á þessum tíma að eiga afreksfólk í íþrótt- um á heimsmælikvarða var mikil og áhrif Vilhjálms og annarra íþróttamanna voru mikil og veittu þjóðinni sjálfstraust og andagift. Þýðing þessa er án vafa meiri en margir hafa gert sér grein fyrir. Vilhjálmur náði snemma að skapa viðmið sem ís- lenskt afreksfólk hefur horft til allar götur síðan. Vilhjálmur var fimm sinnum valinn íþróttamað- ur ársins, árin 1956, 1957, 1958, 1960 og 1961. Árið 2006 var Vil- hjálmur sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt í þágu íþrótta og uppeldismála. Hann var fyrsti íþróttamaðurinn sem var út- nefndur í heiðurshöll ÍSÍ á 100 ára afmæli sambandsins árið 2012. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sögu Ólympíuleikanna. Ég var alin upp við afrek Vil- hjálms og því var það sannur heiður að hitta hann við kjör á Íþróttamanni ársins árið 2018. Vilhjálmur var einnig mikill brautryðjandi í fræðslu- og æskulýðsmálum hér á landi. Hann sýndi það svo ekki verður um villst hversu mikilvægt það er að sameina íþróttaiðkun og menntun og má segja að hann hafi verið fyrirmynd hvað þetta varðar. Vilhjálmur sinnti kennslustörfum frá 1957 áður en hann var skipaður skólastjóri Héraðsskólans í Reykholti frá 1965-1979. Frá 1979-2001 var hann fyrsti skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, þar sem hann bjó með eiginkonu sinni til dánardags. Þótt margt sé hægt að rita um afrek Vil- hjálms er mest um vert að minn- ast manneskjunnar sem hann hafði að geyma. Afrek hans stigu honum ekki til höfuðs heldur veitti hann fjölskyldu sinni og samferðafólki hvatningu, sýndi umburðarlyndi og auðmýkt í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Með Vilhjálmi er genginn einn merkasti Íslendingur samtím- ans. Eftirlifandi eiginkonu Vil- hjálms, Gerði Unndórsdóttur, og sonum þeirra hjóna sendi ég hugheilar samúðarkveðjur og megi minning um góðan mann lifa. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra. Frændi Vilhjálms Einars- sonar Valgeir Guðjónsson yrkir: „Það sem þú gerir, það sem þú ert, þín verður minnst fyrir það sem er gert.“ Þessar ljóðlínur koma mér í hug þegar kvaddur er stórmerkur brautryðjandi og ein af allra skærustu íþrótta- stjörnum Íslendinga fyrr og síðar. Hann fór ekki alltaf hefð- bundnar leiðir; ruddi braut nýrra kennsluhátta, var einn af virtustu skólamönnum landsins og listrænn heiðursmaður. Þegar við eldumst og horfum til baka veltum við fyrir okkur hvað það er sem hefur haft áhrif á líf okkar. Auðvitað er það fjöl- margt. Enda eiga margar upplif- anir gildi í sjóði minninganna. Eftir hið glæsta þrístökk í Melbourne hét Vilhjálmur ís- lenskri æsku því að gera eitt- hvað fyrir hana. Og á sjöunda áratugnum rak hann um tíu ára skeið sumaríþróttaskóla fyrir drengi og stúlkur ásamt félaga sínum Höskuldi Goða Karlssyni. Ég var einn þeirra heppnu sem fengu að fara í skólann. Það ríkti eftirvænting og spenna hjá okk- ur nokkrum ungum drengjum frá Hvolsvelli þegar við lögðum land undir fót á leið á íþrótta- skólann. Vilhjálmur og Höskuld- ur tóku á móti okkur af áhuga og hlýju, þarna var jákvæður agi og skipulag. Þetta var lífsreynsla og manndómsvígsla fyrir ungan sveitamann. Þarna var á fimmta tug ungra drengja víðsvegar að af landinu. Í íþróttaskólanum hófst dagurinn á fánahyllingu og að kveldi var fánakveðja. Þátt- takendur fengu sérstaka bún- inga. Við urðum menn að meiri þegar komið var í búningana. Hvers konar íþróttir kenndar, leikgleðin og margs konar fræðsla í fyrirrúmi, hlutverka- leikurinn í algleymingi, skipt var í lið; landslið annars vegar og pressan hins vegar, og þvílík stund og eftirvænting að komast í annað hvort liðið. Helgi Dan. kom í heimsókn og við fengum að taka vítaspyrnu og hann stóð í markinu. Gríðarleg taugaspenna og sumir skoruðu, aðrir skutu yf- ir eða framhjá en oftast varði landsliðsmarkvörðurinn. Þetta var svona svolítið eins og lífið sjálft er boltinn fer ekki alltaf rakleiðis í netið. Eftir kvöldsund var kvöldhressing. Gerður og Guðný, eiginkonur þeirra félaga, stýrðu okkur í eldhúsverkum. Sameiginleg þakkarkveðja var eftir matinn. Þá var komið að kvöldvökunni, þar var kvik- myndasýning en við sáum um skemmtiatriði. Vilhjálmur greip gítarinn og við sungum: „Góðir og glaðir drengir þeir gera sér allt að leik.“ Hvílík stemning! Í gegnum hátalarakerfi skólans var lesin kvöldsaga og sumir þurftu svolítið að sjúga upp í nef- ið á koddanum áður en sofnað var. Íþróttaskólinn var nýlunda og þarna urðu til afreksmenn eins og Ásgeir Sigurvinsson og Einar Vilhjálmsson svo dæmi séu tekin og margir góðir leiðtogar á ýms- um sviðum. Ég rifja þessar minningar upp nú þegar leiðir skilur. Þegar ég horfði á útnefningu íþrótta- manns ársins var ég ákveðinn í að hringja í Vilhjálm daginn eftir til að tjá honum enn og aftur þakklæti mitt. Nú er það of seint en minningin lifir hjá mér og mörgum öðrum drengjum – sem eru löngu orðnir karlar. Gerði Unndórsdóttur og fjöl- skyldu votta ég mína dýpstu samúð og þakklæti. Ísólfur Gylfi Pálmason. Kveðja frá Samtökum íþróttafréttamanna Það var eiginlega ljóðrænt að Vilhjálmur skyldi kveðja sama kvöld og Íþróttamaður ársins var krýndur. Þá útnefningu hlaut Vilhjálmur fyrstur og oft- ast allra eða fimm sinnum. Það er í raun afreki hans á Ólympíu- leikunum í Melbourne að þakka að Samtök íþróttafréttamanna sem voru stofnuð sama ár, 1956 komu á kjörinu um Íþróttamann ársins. Það var okkur íþrótta- fréttamönnum mikill heiður að Vilhjálmur skyldi svo nánast alltaf mæta á hófið og vera áfram sú fyrirmynd sem hann var öðru íþróttafólki. Sjálfur fór ég tvær ferðir austur á Egilsstaði til að vinna sjónvarpsefni um Vilhjálm á síð- ustu árum. Í seinna skiptið árið 2016 fyrir þáttinn Íþróttaafrek Íslendinga þar sem mörg af helstu íþróttaafrekum Íslend- inga voru rifjuð upp. Þar rifjaði Vilhjálmur enn einu sinni upp sitt frægasta afrek, silfrið í Melbourne 60 árum fyrr. Í bæði skiptin sem ég sótti Vilhjálm og Gerði heim fékk ég höfðinglega móttökur. Villi kveikti upp í arn- inum og Gerður bauð upp á vöfflur. Sjálfur sagðist Vilhjálmur þó vera miklu stoltari af störfum sínum sem skólastjóri en af íþróttaafrekum sínum. Hlutverk okkar íþróttafréttamanna verð- ur þó að halda glæstum íþrótta- afrekum Vilhjálms áfram á lofti. Samtök íþróttafréttamanna færa aðstandendum hans inni- legar samúðarkveðjur. F.h. Samtaka íþróttafrétta- manna, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson. Látinn er kær vinur til margra ára. Það er alltaf sökn- uður þegar vinir hverfa á braut. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við kynntumst í Reykholti 1967 þegar við hjónin komum í Reykholt og maðurinn minn Snorri Þór ætlaði að verða kenn- ari þar. Seinna kom svo í ljós að ég átti líka að kenna. Þetta var góður tími á meðan hann var í Reykholti og margt gert sér til gamans. Það var farið í Húsafell, Munaðarnes og meira að segja fórum við austur til Egilsstaða með Gerði, Vilhjálmi og sonum þeirra og lentum í ýmsum ævin- týrum, sáum t.d. hafís fyrir landi í Hrútafirði, þetta var sumarið 1968, og margt fleira. Þegar austur var komið fórum við t.d. í Mjóafjörð, sem er eftirminni- legt. Einnig komu þau vestur á Súgandafjörð með okkur að heimsækja tengdaforeldra mína og var það líka góð ferð. Eftir að þau hjón fluttu úr Reykholti og austur komu þau nokkrum sinn- um og voru hjá okkur í nokkra daga hverju sinni. Einnig fór ég fyrir nokkrum árum austur til þess að heimsækja Gerði og Vil- hjálm og áttum við góða helgi saman. Vilhjálmur hafði gott lag á unglingum og gat fengið þá til að gera það sem hann taldi að væri þeim fyrir bestu. Hann hafði góða skipulagsgáfu. Það var töluverður húsnæðisskortur í Reykholti á fyrstu árum hans sem skólastjóra þar. Málið var leyst með því að skipuleggja alla hluti í þaula áður en nemendur komu í skólann. Það var stunduð svokölluð skiptikennsla. Það var bryddað upp á ýmsum nýjungum eins t.d. hópvinnu nemenda, þó var þess gætt að þeir skiluðu öllu því námi sem til var ætlast. Einnig var drengjum boðið upp á bifvélavirkjun. Tómstundir not- uðu nemendur til íþróttaiðkunar, myndmenntar, ljósmyndagerðar og að dansa. Þeim var leiðbeint í öllum þessum greinum. Það var haldið upp á afmæli þeirra nem- enda sem áttu afmæli á meðan skólinn starfaði. Það voru ýmsar veislur og skemmtanir eins og gengur í skólum. Vilhjálmur var góður málari og notaði bæði olíu- og vatnsliti og var duglegur að mála í frí- stundum sínum. Ég er svo hepp- in að eiga nokkrar myndir eftir hann. Einnig var hann tónelskur í besta lagi og gítarinn aldrei langt undan. Undarlegt að þessi mikli íþróttamaður skyldi falla frá sama dag og kjör íþróttamanns ársins fór fram, en þann titil hlaut hann fimm sinnum. Við höfum átt margar góðar samverustundir í gegnum tíðina. Starfsdagur hans hefur verið langur. Synirnir sex allir upp- komnir og hinir vænstu menn. Barnabörnin og langafabörnin voru honum mikils virði og hann hefur verið duglegur að taka þátt í lífi þeirra. Að leiðarlokum vil ég þakka Vilhjálmi samfylgdina í lífinu. Gerði og fjölskyldunni allri sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning mæts manns, sem verður sárt saknað. Sigríður Bjarnadóttir. Brautskráning frá Bifröst 1. maí 1964. Hópur ungs fólks hélt út í lífið eftir athöfn í hátíðarsal skólans þar sem skólastjórinn sr. Guðmundur Sveinsson hafði flutt okkur áhrifamikla hug- vekju, hvatt okkur til dáða og óskað velfarnaðar. Kennararnir auðvitað ánægðir eins og við – sumarið og sólin fram undan og áreiðanlega góð tilhugsun hjá þeim að hafa komið okkur til nokkurs þroska. Þessi góði hóp- ur kennara hefur síðan án efa fylgst með okkur að nokkru í lífsins ólgusjó, og við að sjálf- sögðu með þeim. En nú eru tímamót. Einn af öðrum hafa þeir kvatt þennan heim þessir ágætu menn, kenn- ararnir sem sumir hverjir voru tiltölulega lítið eldri en við, sá síðasti úr hópnum, Vilhjálmur okkar Einarsson, nú í lok desem- ber. Táknrænt fyrir hann að taka þrístökk sitt úr þessum heimi sama kvöld og valinn var íþróttamaður ársins, verðskuld- aður titill frábærra íþrótta- manna þjóðar okkar, titill sem engum hafði hlotnast eins oft og Vilhjálmi. Þegar við hófum nám okkar í Bifröst, haustið 1962, voru ekki nema tæp sex ár síðan hann vann eitt alstærsta afrek ís- lenskrar íþróttasögu í Melbo- urne, og við að sjálfsögðu afar stolt af því að slíkur afreksmað- ur skyldi vera með okkur í úti- vist og tómstundastörfum í Norðurárdalnum fagra. Villi, eins og við kölluðum hann gjarn- an, var áhugasamur um okkar hag, vildi styrkja okkur líkam- lega í hressandi útivist og íþrótt- um, ásamt því að leiðbeina okkur í klúbbastarfi og félagsstörfum. Ég minnist þess m.a. að hafa þótt merkilegt að taka þátt í þrí- stökkskeppni sem hann stóð fyr- ir, og reyndi að leiðbeina okkur eins og aðstæður leyfðu. Árang- ur minn ekki til þess að gorta af, náði ef ég man rétt að stökkva heilum fjórum og hálfum metra styttra en hann náði lengst, hefði líklega þurft fimm- jafnvel sex- stökk til þess að ná jöfnuði við hann. En nú er hann horfinn á braut þessi góði kennari okkar, sem ég segi að hafi eins og við farið frá Bifröst með frábært veganesti. Vilhjálmur farsæll skólastjórn- andi, m.a. í Reykholti og á Egils- stöðum, við á ýmsum hillum í margbrotnum hillusamstæðum íslensks þjóðlífs, öll með það markmið að gera okkar besta, þó svo að ekkert okkar hafi náð 16,70. Fyrir hönd skólasystkina minna frá Bifröst 1962-1964 sendi ég Gerði, strákunum þeirra öllum og stórfjölskyld- unni einlægar samhryggðar- kveðjur. Við minnumst Vil- hjálms Einarssonar með þakklæti og virðingu, eins og kennaranna okkar allra sem horfnir eru á braut. Óli H. Þórðarson. Við andlát Vilhjálms Einars- sonar, kærs æfinga- og keppn- isfélaga og vinar til um sex ára- tuga, rifjast upp ljúfar endurminningar. Kynni okkar hófust austur í Laugardal árið 1957, ég þá nemandi við Héraðs- skólann en hann nýráðinn kenn- ari. Það var mikið lán fyrir mig nýbyrjaðan að æfa frjálsar íþróttir að njóta leiðsagnar slíks afreksmanns sem Vilhjálmur var og ekki lá hann á liði sínu við að segja nýliðum og öðrum til og gefa góð ráð. Segja má að stað- urinn Laugarvatn hafi verið und- irlagður af íþróttum af öllu tagi og við lá að menn færu hoppandi á milli húsa, annaðhvort á öðrum fæti eða báðum. Árin liðu og ég gekk í félag leiðbeinandans Vil- hjálms, ÍR, og æfðum við Vil- hjálmur meira og minna saman þegar því varð við komið á vet- urna í litla ÍR-húsinu við Tún- götu (nú í Árbæ) eða á gamla Melavellinum. Á þessum árum var Guðmundur Þórarinsson þjálfari ÍR en síðar kom til sög- unnar Ungverjinn Simonyi Ga- bor. Kom hann með ýmsar nýj- ungar sem reyndust okkur vel. Margs er að minnast frá þess- um árum, bæði frá æfingum og HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.