Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020
Íslendingurinn
sem grunaður er
um að hafa orðið
sambýlismanni
móður sinnar að
bana á Torrevieja
á Spáni var leidd-
ur fyrir dómara í
gær og úrskurð-
aður í varðhald
þar til réttað verð-
ur í málinu. Dóm-
arinn hefur meinað lögreglunni að
gefa frekari upplýsingar um rann-
sóknina. Þetta sagði Beatriz Garcia,
upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Alic-
ante, í samtali við mbl.is.
Samkvæmt frétt spænska miðilsins
Informacion mun maðurinn hafa
komist inn á heimili móður sinnar.
Þar segir jafnframt að samkvæmt
lögreglu hafi vitnisburður móðurinn-
ar verið á þá leið að til stimpinga hafi
komið á milli mannanna. Samkvæmt
frétt Informacion fundust stungusár
á líkama mannsins sem lést. Í samtali
við Fréttablaðið í gær sagði móðirin
að Informacion hefði farið með rangt
mál. Atvik hefðu verið með þeim
hætti að sonur hennar hefði kastað
gaskút í gegnum rúðuna til að komast
inn á heimilið. Hann hefði svo lagt til
sambýlismanns hennar með hnífi.
Móðirin svaraði ekki skilaboðum
mbl.is í gær.
Settur í
varðhald
á Spáni
Til átaka kom á
Torrevieja.
Dómari meinar
lögreglu að tjá sig
Fiskneysla eykst gjarnan í kjölfar mikillar kjöt-
neyslu um jól og áramót og engin breyting virð-
ist vera á hefðinni í ár. „Við fáum ný hrogn dag-
lega og salan hefur verið óvenjumikil, en er í
takt við aukna hreyfingu,“ segir Geir Már Vil-
hjálmsson, fisksali í Fiskbúðinni Hafberg.
Hrognatíminn byrjar um 10. janúar og stend-
ur út febrúar. Geir Már segir að yngra fólkið
sæki líka í hrognin enda séu þau „sjúklega holl“.
Óvenjumikil sala tengd aukinni hreyfingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hrogn og lifur víða hefðbundinn hluti mataræðis á þorra
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönn-
um sem handteknir voru við komu
Norrænu til Seyðisfjarðar 1. ágúst
í fyrra var í dag framlengt um fjór-
ar vikur. Mennirnir eru ákærðir
fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.
Fram kom á vef RÚV í gær að
framhaldi aðalmeðferðar málsins
hefði verið frestað fram á fimmtu-
dag en vitni komust ekki frá Egils-
stöðum vegna veðurs.
Mennirnir, sem eru frá Rúmeníu
og Þýskalandi, eru ákærðir fyrir að
hafa smyglað tæpum 38 kílóum af
amfetamíni og fimm kílóum af
kókaíni til landsins frá Þýskalandi.
Í ákærunni segir að fíkniefnin sem
um ræðir séu sterk; þannig var
amfetamínið 70 prósent að meðal-
styrkleika og kókaínið tæp 82 pró-
sent.
Um er að ræða eitt mesta magn
fíkniefna sem yfirvöld hér landi
hafa lagt hald á í einu lagi.
Smyglarar
áfram í gæslu-
varðhaldi
Athygli vekur að á facebooksíðu Bjórskólans er tekið fram að þeir sem
eiga ónotuð gjafabréf í skólann frá 2019 geti fengið þau endurgreidd. Al-
mennt er miðað við að gjafabréf gildi í fjögur ár og því vakna spurningar
um þessa skilmála. Óli Rúnar Jónsson hjá Ölgerðinni segir að ónákvæmni
hafi gætt í orðavali á facebooksíðu Bjórskólans. Á heimasíðu hans hafi
verið talað um að eldri gjafabréf verði einnig endurgreidd og þau fyrirheit
standi að sjálfsögðu.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir í samtali við
Morgunblaðið að í verklagsreglum sem viðskiptaráðuneytið gaf út árið
2000 komi fram að gjafabréf skuli gilda í fjögur ár. „Við hjá Neytenda-
samtökunum myndum vilja hnykkja á þessu í lögum þannig að þetta yrðu
eins og hverjar aðrar fjárkröfur. Ef þú skuldar fyrirtæki ákveðna upphæð
er sú krafa gild í fjögur ár. Við viljum líta á gjafabréf sem fjárkröfu neyt-
enda á hendur fyrirtækjum,“ segir hann.
Hann segir aðspurður að umræða um gildistíma gjafabréfa og inn-
eignarnótur sé jafn árviss viðburður og janúarlægð. „Öll heiðvirð fyrir-
tæki sem er annt um viðskiptavini sína hliðra til og taka tillit til þeirra.
Enda vita þau að gott orðspor er gulls ígildi,“ segir Breki.
Gjafabréf gildi í fjögur ár
NEYTENDASAMTÖKIN VILJA FESTA REGLUR Í LÖG
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Meðalþekking Íslendinga á bjór hef-
ur vaxið heilmikið á þessum áratug
enda hafa þrjátíu þúsund manns út-
skrifast þarna,“ segir Óli Rúnar Jóns-
son, verkefnastjóri hjá Ölgerðinni.
Þau tímamót urðu um áramótin að
lokað var fyrir almenningsnámskeið í
Bjórskóla Ölgerðarinnar. Hér eftir
verður starfsemi Bjórskólans helguð
því að þjálfa fagfólk í veitingabrans-
anum á svokölluðum bjórþjóna-
námskeiðum.
„Tilgangurinn með skólanum var
að koma út í samfélagið ákveðinni
grundvallarþekkingu á bjór og við
teljum að á þessum tíma hafi vel tek-
ist til með það. Þó að fleira komi þar
til má sjá merki þessa á batnandi
bjórmenningu; hófstilltari drykkju á
kristilegri tíma en áður og fjölbreytt-
ara framboði af mismunandi gerðum
af bjór,“ segir hann.
Óli Rúnar segir að bjórþjóna-
námskeiðin hafi verið vinsæl meðal
metnaðarfyllri bara og veitingastaða.
„Enda verður starfsfólk í kjölfarið
betur í stakk búið til að framreiða
bjór í hámarksgæðum og leiðbeina
um val út frá mismunandi eigin-
leikum bjórtegunda.“
Hann segir að starfsemi Bjórskól-
ans hafi áður tekið breytingum. „Við
höfum boðið upp á alls konar nám.
Þetta hefur fengið að stækka og
minnka eftir vindáttum. Nú teljum
við mikilvægast að sinna barþjóna-
náminu eins vel og hægt er.“
Bjórskóli á tímamótum
Lokað fyrir námskeið fyrir almenning 30.000 nemendur
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Bjórskólinn Sveinn Waage og Stef-
án Pálsson uppfræða nemendur.
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is