Morgunblaðið - 15.01.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.01.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Gústaf A. Skúlason spyr hvortþetta bréf gæti fylgt um- sögn um hæli á Íslandi:    Það versta varþegar börnin stækkuðu og komu með spurningar um skotgötin á veggjunum eða þegar þau vöknuðu við sprengjur um miðja nótt og ég reyndi að róa þau. Allt var svo ofan í okkur. Fólk féll fyrir byssukúl- um við útidyrnar, sífellt fleiri vinir mínir lentu í þessu. Hús þeirra voru eyðilögð í sprengju- ódæðum, kveikt var í bílum þeirra. Ráðist á börn þeirra, þeim nauðgað og þau rænd.    Eldri sonur minn byrjaði dag-inn á því að ganga úr skugga um hvar morð voru framin og hvar var sprengt um nóttina til að vera öruggur um að enginn sem hann þekkti hefði lent í neinu svakalegu. Hvers- dagsleikinn breyttist. Við þorð- um ekki lengur að fara út á kvöldin eða hleypa krökkunum út að leika sér. Eftir skamman tíma snerust allar umræður um öryggi, hvernig við gætum reynt að verja börnin. Trúarhús okkar voru eyðilögð. Þegar við hitt- umst á trúarlegum hátíðum sögðum við brandara til að reyna að halda hættunni í burtu eða sögðum beint hvert við ann- að að „ef það springur núna, þá deyjum við alla vega nálægt Guði“.    En það óeðlilega við þettabréf er að það er frásögn fjölskyldu sem býr í Svíþjóð og hafði flúið ofbeldið í Malmö til Stokkhólms og vaknaði klukkan eitt í fyrrinótt við sprengju- ódæðið á Östermalm í Stokk- hólmi. Gústaf A. Skúlason Er þetta svona? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hin tíðu óveður við landið hafa haft ýmsar afleiðingar. Þar á meðal hefur heimkomu hins nýja dráttarbáts Magna verið frestað og bíður hann af sér veðrið í Rotterdam í Hollandi. Hinn nýi dráttarbátur var smíð- aður í Víetnam. Magni lagði af stað til Íslands 19. október og kom til Rotter- dam tveimur mánuðum seinna, eða 18. desember. Hann hafði þá lagt að baki tæplega 10.000 sjómílna sigl- ingu. Gekk siglingin vel að öllu leyti. Áætlað var að Magni myndi leggja í hann til Íslands strax eftir áramótin og yrði þá í Reykjavík fyrir miðjan janúar. Af því hefur ekki getað orðið vegna ótíðarinnar, að sögn Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögumanns Faxaflóahafna. Áhöfn á vegum skipa- smíðastöðvarinnar Damen Shipyards í Hollandi siglir bátnum heim. „Hol- lendingarnir töluðu um það í gær að það væri allavega vika í brottför,“ segir Gísli Jóhann. Það hefði komið sér vel ef nýi Magni hefði verið til staðar á dög- unum þegar flutningaskipið Franc- isca losnaði frá bryggju í Hafnarfirði og rak stjórnlaust að landfyllingu. Magni „gamli“ var fenginn til að draga skipið aftur að bryggjunni. „Verkefnið í Hafnarfirði var í sjálfu sér átakalítið, það þurfti ekki svo mikið afl. Það var siglingin sem var erfið til Hafnarfjarðar, vont sjólag og mikil alda, og því var varðskipið Týr fengið til að reyna að skýla Magna á leiðinni. Nýi Magni hefði að öllum lík- indum farið betur í þessu sjólagi, enda stærra skip,“ segir Gísli Jóhann. sisi@mbl.is Óveðrið tefur heimför nýja Magna Ljósmynd/Damen Shipyards Nýi Magni Mjög öflugur bátur. Rósa Ingólfsdóttir, þula, auglýsingateikn- ari og handverkskona með meiru, lést í gær- morgun á hjúkrunar- heimilinu Hömrum í Mosfellsbæ. Hún fæddist 5. ágúst 1947 og var því 72 ára göm- ul þegar hún féll frá. Hún barðist við park- insonsjúkdóm síðustu ellefu árin. Rósa varð helst þekkt fyrir störf sín hjá Ríkisútvarpinu, en hún starfaði þar í þrjá- tíu ár, bæði sem auglýsingateikn- ari og þula. Hún var fyrsti auglýs- ingateiknari Ríkisútvarpsins. Bar virðingu fyrir handverki Í viðtali við Morgunblaðið árið 2010 lýsti Rósa störfum sínum fyr- ir Ríkisútvarpið. „Ég sá um alla sjónvarpsgrafík, var fréttateiknari, þula, dag- skrárgerðarmaður á Rás 2, skemmtikraftur og húsmóðir. Ég settist við hliðina á þjóðinni og mér þykir vænt um þessa þjóð. Þetta var gríðarleg vinna og ég veit ekki hvernig ég komst í gegn- um þetta,“ sagði Rósa þá. Hún lagði mikinn metnað í að heiðra íslenskt handverk og ís- lenskar listgreinar, að sögn dóttur hennar, Klöru Egil- son. „Hún bar gíf- urlega mikla virð- ingu fyrir hand- verki.“ Rósa kom á fót handverksfyrirtæk- inu Íði í lok tíunda áratugarins, en Rósa lærði í Mynd- listar- og hand- íðaskólanum og fór að því loknu í leik- listarnám. Árið 1992 kom ævisaga Rósu út, bókin Rósumál. Jónína Léosdóttir, blaðamaður og rithöfundur, ritaði söguna. Bókinni var lýst sem hisp- urslausri frásögn þar sem Rósa dró ekkert undan. Rósa lætur eftir sig tvær dætur og fjögur barnabörn. Dætur Rósu eru Klara Egilson, en faðir hennar er Geir Rögn- valdsson, og Heiðveig Riber- Madsen, en faðir hennar er Þráinn Hafsteinsson. Synir Klöru eru þeir Ingólfur Máni Hermannsson og Guð- mundur Galdur Egilson. Börn Heiðveigar eru þau Thor og Freyja Riber-Madsen. Rósa giftist aldrei. Andlát Rósa Ingólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.