Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íslandsbanki hf. hefur óskað eftir
samstarfi við Reykjavíkurborg um
deiliskipulagsbreytingu á lóðinni
Kirkjusandur 2. Á lóðinni stendur
bygging sem áður hýsti aðal-
stöðvar bankans. Byggingin er
talin ónothæf vegna rakaskemmda
og verður rifin. Bankinn flutti
starfsemi sína úr húsinu 2017. Með
niðurrifi hússins verður til verð-
mætt byggingarland við sundin
blá.
Fram kemur í umsókninni að Ís-
landsbanki vill að skoðað verði að
kaupa hugmyndir af nokkrum arki-
tektastofum um hönnun lóðarinnar
og tengsl hennar við nærliggjandi
umhverfi og atvinnusögu svæðisins.
Málinu var vísað til meðferðar
hjá verkefnisstjóra skipulagsfull-
trúa Reykjavíkurborgar.
Húsinu ekki viðbjargandi
Fram kemur í erindi Íslands-
banka, undirrituðu af Jónasi Þór
Jónassyni hjá Íslandssjóðum, að
bankinn hafi látið framkvæma
þrjár umfangsmiklar rannsóknir á
ástandi fasteignarinnar Kirkju-
sandur 2. Niðurstöður þeirra allra
séu á þann veg að byggingunni sé
ekki viðbjargandi og hún sé bein-
línis hættuleg heilsu manna. Fast-
eignin standi tóm, hún sé ónothæf
og þarfnist niðurrifs. „Eignatjón er
því orðið verulegt fyrir eiganda og
hleypur á milljörðum króna,“ segir
í erindi Jónasar til skipulagsfull-
trúa. Ljóst sé að núverandi deili-
skipulag fyrir lóðina, þar sem gert
er ráð fyrir bankabyggingunni á
miðri lóð, samrýmist hvorki mark-
miðum eiganda fasteignarinnar né
Reykjavíkurborgar um borgar-
skipulag.
Sem fyrr segir óskar bankinn
eftir samstarfi við Reykjavíkur-
borg um nýtt deiliskipulag. Vísað
er til tengslalóðarinnar við nær-
liggjandi umhverfi og atvinnusögu
svæðisins.
Er væntanlega verið að vísa til
þess að á Kirkjusandi var um ára-
raðir rekin útgerð og fiskvinnsla.
Ýmsar byggingar og mannvirki
risu í kringum fiskvinnsluna á
svæðinu, þar á meðal þurrkhús,
geymsluhús, vélaskúrar, þvottahús
og verbúðir. Þessar byggingar hafa
allar verið rifnar. Auk þess settu
víðáttumikil stakkstæði svip á
svæðið, þar sem saltfiskur var
þurrkaður.
Íslandsbankabyggingin var upp-
haflega frystihús, sem reist var á
árunum 1955-1962 af hlutafélög-
unum Júpíter og Mars. Byggingin
á Kirkjusandi er 7.719 fermetrar
að stærð.
Á aðliggjandi lóð á Kirkjusandi,
sem jafnan hefur verið kennd við
Strætó, hefur staðið yfir mikil upp-
bygging á undanförnum árum. Að
þeirri uppbyggingu hafa staðið
Reykjavíkurborg og Íslandssjóðir,
en þeir eru í eigu Íslandsbanka.
Þarna er að rísa íbúðarbyggð auk
atvinnuhúsnæðis. Deiliskipulag
gerir ráð fyrir 300 íbúðum og
skrifstofubyggingum. Síðar er
stefnt að því að hótel verði byggt á
lóðinni.
Byggð rís í stað bankabyggingar
Íslandsbanki undir-
býr niðurrif bygg-
ingar á Kirkjusandi
sem dæmd var ónýt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kirkjusandur Fyrrverandi aðalstöðvar Íslandsbanka verða rifnar enda húsið ónýtt. Fjölmörg hús á svæðinu hafa verið rifin til að rýma fyrir nýrri byggð.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Ný lög um samskiptaráðgjafa
íþrótta- og æskulýðsstarfs byggjast
á tillögum starfshóps mennta- og
menningarmálaráðherra um að-
gerðir gegn kynferðislegri áreitni
og ofbeldishegðun í íþrótta- og
æskulýðsstarfi. Lögin heimila ráð-
herra að fela þriðja aðila að sinna
hlutverki samskiptaráðgjafa og á
þeim grundvelli var ráðist í útboð á
þjónustunni. Þrír aðilar sóttust eft-
ir því að annast ráðgjöfina og að
loknu formlegu mati var Domus
Mentis – Geðheilsustöð talin
hæfust. Í gær var því skrifað undir
samstarfssamning ráðuneytisins og
Domus Mentis.
Samskiptaráðgjafanum er m.a.
ætlað að leiðbeina einstaklingum
sem til hans leita vegna atvika eða
misgerða sem orðið hafa í skipu-
lögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi
sem varða t.d. einelti, ofbeldi eða
kynbundna og kynferðislega
áreitni.
Samskiptaráðgjafi íþrótta og æskulýðs
Morgunblaðið/Eggert
Íþróttastarf Samskiptaráðgjafi mun
starfa með íþrótta- og æskulýðsfélögum.