Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 12

Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 AFP. Moskva. | Stríðsherrann Khalifa Haftar yfirgaf í gærmorgun viðræð- ur, sem fram fóru í Moskvu, án þess að undirrita samkomulag um varan- legt vopnahlé milli sín og Fayez al- Sarrajs, forsætisráðherra ríkis- stjórnarinnar í Trípólí, sem nýtur viðurkenningar Sameinuðu þjóð- anna. Haftar ræður nú yfir megninu af Líbíu eftir nær samfelldar sókn- araðgerðir undanfarna níu mánuði. Rússar, sem hafa stutt við bakið á Haftar, sögðu að hann hefði þó sam- þykkt eftir viðræðurnar að hann myndi heiðra núgildandi vopnahlé, sem samþykkt var í flýti um helgina, en það þykir standa höllum fæti. Þá tilkynntu stjórnvöld í Þýskalandi að þau hefðu boðið bæði Haftar og Farraj til við- ræðna í Berlín næstkomandi sunnudag ásamt ellefu öðrum ríkj- um, þar á meðal Bandaríkjunum, Rússlandi, Tyrklandi og Kína. Ákvörðun Haftars um að yfirgefa viðræðurnar í Moskvu þótti nokkurt áfall, en vonir höfðu staðið til að hægt yrði að binda enda á stríðs- rekstur síðustu ára með samkomu- lagi. Sergei Lavrov, utanríkisráð- herra Rússlands, hét því að hann myndi áfram reyna að miðla málum milli stríðandi fylkinga, þó að við- ræðurnar nú hefðu runnið út í sand- inn. Hótar Haftar „kennslustund“ Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseti, sem stutt hefur við bak- ið á Farraj og stjórnvöldum í Trípólí, brást hins vegar reiður við tíðindum gærdagsins. Sagði Erdogan að Tyrkir myndu ekki hika við að veita „uppreisnarseggnum Haftar verð- skuldaða kennslustund“, ef hann léti ekki af árásum sínum á „bræður“ Tyrkja í Líbíu. Tyrknesk stjórnvöld samþykktu í upphafi janúar að senda herlið til stuðnings Trípólí-stjórn- inni, en tyrknesku hermennirnir eiga einungis að sinna ráðgjöf og þjálfun. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði í gær að þau ríki sem tækju þátt í ráðstefnunni í Berl- ín yrðu beðin að íhuga friðarsam- komulag sem gæti tryggt að hvor- ugur aðilinn í borgarastríði Líbýu gæti haldið átökum áfram. Þar á meðal myndu öll ríki á ráðstefnunni samþykkja að hætta að veita deiluað- ilum hernaðaraðstoð, sem aftur gæti ýtt undir varanlegt vopnahlé. Hafnaði tillögu um vopnahlé  Þjóðverjar bjóða deiluaðilum til alþjóðlegra viðræðna í Berlín um Líbíu  Rússar segja Haftar hafa samþykkt að virða vopnahléið sem nú er í gildi Khalifa Haftar Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að ríkis- stjórnin væri að íhuga svokallaða hópfjármögnun svo hægt yrði að láta klukkuna í turni breska þinghússins, sem í almennu tali gengur undir nafninu Big Ben, hljóma kl. 23.00 að kvöldi 31. jan- úar næstkomandi, en þá mun Bret- land formlega yfirgefa Evrópusam- bandið. Viðgerðir standa nú yfir á Big Ben og hefur því verið áætlað að slík hringing myndi kosta um hálfa milljón sterlingspunda í auk- inn viðgerðarkostnað. Huga að söfnun til að hringja inn Brexit Boris Johnson BRETLAND Þessi vallafía í ástralska fylkinu Nýja Suður-Wales gæddi sér á gul- rótum og öðrum mat sem þjóð- garðaeftirlit fylkisins dreifði um nokkur af þeim svæðum sem verst hafa orðið úti í gróðureldunum í Ástralíu, en þeir hafa haft mikil og vond áhrif á dýralíf þar. Nokkur von vaknaði í gær um framhaldið, þar sem veðurspáin gerir ráð fyrir úrhellisrigningu frá og með deginum í dag og fram yfir helgina. Þá hefur kólnandi veður- far einnig veitt slökkviliði aukin tækifæri til þess að hemja eldana. Sarah Scully, veðurfræðingur á veðurstofu Ástralíu, sagðist vonast til að úrkoman myndi vera næg til þess að annaðhvort halda eldunum í skefjum eða jafnvel slökkva í sum- um þeirra. Fjöldi eldanna er þó enn mældur í tugum og þykir lítil von til þess að takast muni að ráða niðurlögum þeirra allra á komandi vikum. AFP Gróðureldarnir í Ástralíu valda enn umtalsverðum usla Rigningar- spá tekið fagnandi Gæðavörur frá Ítalíu Ferskleiki og gæði Rana ferskt pasta – Suðutími 2 mínútur Pastasósurnar frá Cirio Auðveldar í notkun. Hitaðu sósuna við lágan hita í 2-3 mínútur á meðan pastað sýður og hrærðu svo saman við fulleldað pasta. Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.