Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 19

Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 19
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR ÖRN HARALDSSON, Strikinu 10, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi miðvikudaginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 17. janúar klukkan 13. Svava Axelsdóttir Helga Grímsdóttir Sebastien Paquin Harpa Grímsdóttir Garðar Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 ✝ Steindór Sverr-isson fæddist á Selfossi 8. júní 1959. Hann lést á heimili sínu 7. janúar 2020. Foreldrar hans voru Sverrir Stein- dórsson rafvirkja- meistari, f. 1. apríl 1938, d. 4. nóv- ember 2005, og Bára Steindórsdótt- ir, f. 7. desember 1938, d. 6. júní 2006. Systkini Steindórs eru: Guð- björg Dóra, kennari, maki Magn- ús Bergsson; Ríkharður, kenn- ari, maki Claudia Haoses. Eiginkona Steindórs er Hjör- dís Ásgeirsdóttir bókari, f. 17. september 1964. Þau gengu í hjónaband 17. ágúst 2002. For- eldrar Hjördísar eru Ásgeir L. Guðnason rafvirkjameistari og Þyri Axelsdóttir. Börn Hjördísar og Steindórs eru: Bára Stein- dórsdóttir, f. 11. nóvember 1991, hennar sonur er Mikael Aron, f. 6. september 2015; Sverrir Stein- dórsson, f. 29. apríl 2004. Fyrir átti Hjördís Andreu Skúladóttur við- skiptafræðing, f. 1. nóvember 1988, sem Steindór ól upp. Hennar maki er Sveinn Ingi Sveinbjörnsson vél- virki, f. 23. júní 1987. Börn þeirra eru Skarphéð- inn Ingi, f. 14. ágúst 2014, Stein- dór Einar, f. 21. júlí 2017, og Sveinbjörg Þyri, f. 21. febrúar 2019. Steindór byrjaði ungur að vinna hjá Steypuiðjunni á Sel- fossi, fór síðan til sjós og starfaði sem matsveinn lengst af. Hann hóf störf hjá Set ehf. árið 2004 og vann þar uns hann lét af störfum vegna veikinda. Útför Steindórs fer fram frá Selfosskirkju í dag, 15. janúar 2020, klukkan 13.30. Margs er að minnast og margs er að sakna, elsku ástin mín. Nú skilur leiðir eftir 30 ár, fyrst í sam- búð og síðar í hjónabandi. Við hóf- um sambúð árið 1989 og ég kom með Andreu okkar í farteskinu. Þú leist strax á hana sem þína eigin dóttur og elskaðir hana jafnt á við hin börnin þín sem síðar komu, þau Báru og Sverri. Þú stundaðir sjómennsku þar til Sverrir fæddist en komst þá í land. Þú ætlaðir ekki að missa af einu augnabliki, tókst langt fæðingar- orlof og varst meira og minna með hann í fanginu fyrstu vikurnar, naust hverrar mínútu enda voruð þið nátengdir feðgarnir. Þrátt fyrir langa fjarveru oft á tíðum tókstu fullan þátt í uppeldi dætranna og oft varð ég að telja þig af því að vekja þær um miðjar nætur þegar þú komst heim af sjónum því þú varst svo spenntur að hitta þær. Þú varst einstaklega barngóður og barnabörnin sóttu í að vera í návist þinni. Við vorum dugleg að ferðast jafnt utanlands sem innan, fórum í veiði m.a. í Ljótapoll og vötnin í kring en síðar varstu heltekinn af laxveiði. Við fórum í útilegur vítt og breitt, á fótboltamót hér og þar og unglingalandsmót, nú síðast á Hornafirði í sumar. Það var jafn- framt síðasta ferðin sem farin var. Frábær ferð, ekki síst fyrir þær sakir að tveir af afastrákunum þínum, þeir Skarphéðinn Ingi og nafni þinn Steindór Einar, gistu hjá okkur. Þú hefðir reyndar kos- ið að Mikael Aron hefði verið líka því þið voruð svo miklir vinir. Margar góðar minningar eig- um við úr ferðum til Spánar, Flór- ída og fjölmargra borga, ýmist með börnin eða án. Minningar sem aldrei gleymast. Þú hafðir brennandi áhuga á fótbolta og misstir helst ekki af leikjum meistaraflokkanna á Sel- fossi né útsendingum á leikjum hjá Manchester United. Þú fórst á nokkra leiki en eftirminnilegust er ferðin þegar við fórum með Sverri á leik MANU og Swansea og sáum m.a. Gylfa skora. Fjölskyldan skipti þig öllu máli og var ætíð í fyrirrúmi. Þú varst hlýr og góður eiginmaður og faðir, hafðir einstaklega góða nærveru, varst fyndinn og skemmtilegur, yfirvegaður, hjálpsamur og alltaf boðinn og búinn að rétta fram hjálparhönd. Æðruleysi þitt og styrkur var ótrúlegur og þú miðl- aðir honum óspart til okkar hinna. Missir okkar er mikill og þín er sárt saknað. Takk, ástin mín, fyrir allt, ekki síst fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig og börnin og styðja okkur í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Þín Hjördís. Elsku pabbi. Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir að hafa verið til staðar fyrir mig í einu og öllu, alveg frá því ég var ungbarn. Ég hef alltaf getað leitað til þín varðandi allt og ekk- ert. Takk fyrir öll símtölin, sem voru nánast daglega, og takk fyr- ir allt spjallið um hversdagslega hluti tengda mér og minni fjöl- skyldu. Þú hefur alltaf staðið við bakið á mér og látið mig þig varða. Ég er svo heppin að hafa fengið að alast upp með þér og upp úr standa minningar um öll ferðalög- in innan lands og utan. Á hverju sumri fórum við í langar útilegur með tjaldvagninn og í sumar- bústaði. Við fórum oft að veiða eða dorga og svo spiluðum við uno, gúrku, forseta, o.fl. Ég er svo glöð að við skyldum fara í fjölskyldu- ferð til Tenerife 2018 því ég veit hvað þú elskaðir að búa til skemmtilegar minningar með okkur. Fjölskyldan skipti þig miklu máli og þú gafst þér alltaf tíma fyrir okkur börnin þín. Þú studdir okkur í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Þú elskaðir að verja tíma með barnabörnunum og gafst Skarphéðni hjól og kenndir honum að hjóla án hjálpardekkja. Þið fóruð saman í hjólatúra og oft- ast dró hann þig á skate-park eða róló. Mér hefur alltaf fundist svo gott að tala við þig enda ertu já- kvæður að eðlisfari, hreinskilinn og gefur góð ráð án þess að dæma. Þú hefur ávallt litið á björtu hlið- ina og þér er treystandi fyrir öllu. Ég hef undantekningarlaust get- að stólað á þig og hjálpsamari menn eru vandfundnir. Ég veit hvað þér fannst erfitt að vera svona veikur þegar við byrjuðum á húsbyggingunni og þú nefndir oft hvað það væri sárt að geta ekki hjálpað okkur. En öll pössunin er nú aldeilis hjálp, pabbi minn, og þú varst svo sannarlega á heima- velli í þeim málum, enda börnin hænd að þér fram á síðasta dag. Þú spjallaðir við þau, last fyrir þau, horfðir á vídeó með þeim og sagðir þeim sögur. Þau fundu allt- af fyrir öryggi og væntumþykju hjá þér. Ég gleymi aldrei svipnum á þér þegar þú sást börnin mín í fyrsta skipti nýfædd. Brosið var fast á öllu andlitinu á þér og spennan og gleðin sem fylgdi nær- veru þinni var ótrúleg. Ég heyri þig ennþá raula „diddiriddiriddí“ og horfa stoltur á ungana þína ný- fædda. Þú hefur alltaf verið húmoristi og náðir að slá mörgu upp í grín. Jafnvel þegar við vissum að þú ættir einungis nokkrar vikur eftir ólifaðar náðir þú að hlæja og slá á létta strengi. Þú hefur kennt mér að njóta augnabliksins og það ætla ég svo sannarlega að gera fyrir þig, elsku pabbi. Þú þekktir okkur svo vel og eldaðir alltaf uppáhaldsmatinn minn ef þú vissir að ég væri vænt- anleg. Þú vaknaðir með börnun- um mínum þegar ég gisti hjá ykk- ur og leyfðir mér að sofa út. Þú passaðir fyrir mig nánast daglega þegar við bjuggum á Selfossi svo ég kæmist í hesthúsið. Þú varst alltaf tilbúinn að skutla mér hvert á land sem er, á hvaða tíma sem er. Þú stappaðir í mig stálinu þeg- ar á þurfti að halda. Þú huggaðir mig þegar ég var sorgmædd. Þú hlustaðir þegar ég þurfti að tala. Þú varst alltaf til staðar. Alltaf. Ég gæfi svo mikið fyrir að hafa þig áfram í mínu lífi. Þín dóttir, Andrea. Elsku pabbi minn. Hetjan mín. Þú barðist eins og hetja allt til síðasta dags, þvílík hetja sem þú varst. Ég gæfi allt fyrir að hafa þig enn þá hjá okkur, en því fæ ég víst ekki breytt svo minningarnar um þig verða að lifa í hjarta mínu að eilífu. Allar útilegurnar, utanlands- ferðirnar, veiðiferðirnar og allur prakkaraskapurinn. Gleðin sem fylgdi þér hvar sem þú varst, hrókur alls fagnaðar hvert sem þú fórst. Þú hafðir svör við öllu og alltaf til í að rétta fram hjálparhönd. Síðustu árin höfum við eytt dásamlegum tíma saman, þvílík forréttindi sem það voru að eyða öllum þessum tíma í Álfhólunum með þér. Kaffibollarnir voru ófáir og spjallið um allt og ekkert, sem er svo dýrmæt minning. Elsku pabbi, þú varst besta föðurímynd sem ég hefði getað hugsað mér fyrir bæði mig sjálfa og ekki síður Mikael Aron, hann leit svo mikið upp til þín. Hann vildi alltaf fá að vera og gera eins og afi. Tengingin ykkar á milli var ólýsanleg, vináttan ykkar var sú allra fallegasta. Hann talaði um það eftir að hafa knúsað þig í síð- asta sinn að þér hafi alltaf þótt svo gott að knúsa hann. Sem fór svo að litla gullið okkar vildi fá að sofna við hlið þér, í miðjunni sinni. Þú stóðst þétt við bakið á mér í öllum mínum ákvörðunum. Stapp- aðir í mig stálinu þegar þess þurfti. Gafst mér alltaf tækifæri á að vera ég sjálf, sama hvaða kjánaskap ég tók upp á. Þú sem alltaf hafðir trú á mér í öllu sem ég tók mér fyrir hendur, stóðst alltaf með mér. Elsku pabbi, takk fyrir allt. Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Að lifa einn dag í einu, njóta hvers andartaks fyrir sig, viðurkenna mótlæti sem friðarveg, með því að taka syndugum heimi eins og hann er, eins og Jesús gerði en ekki eins og ég vil hafa hann og treysta því að þú munir færa allt á réttan veg ef ég gef mig undir vilja þinn svo að ég megi vera hæfilega hamingjusamur í þessu lífi og yfirmáta hamingjusamur með þér þegar að eilífðinni kemur. Amen. (Reinhold Niebuhr) Þín Bára. Kæri bróðir, minn trausti vin- ur. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért farinn og aðeins minningin um þig eftir. Fyrstu minningar eru frá Birkivöllunum, ég sennilega um 5 ára, þú um 11. Þú að kenna mér að tefla, við að leika með bílabraut á jólum. Ég man þegar þú spurðir mig þá með hvaða liði ég héldi í enska boltanum. Ég átti ekki lið og vildi halda með sama liði og þú, Man. United, en það leist þér ekki á og sagðir mér að halda bara með Arsenal. Og þar með var það ákveðið. Stundum fékk ég að spila fótbolta með þér og vinum þínum á Eikatúni. Þú nenntir nú samt ekki alltaf að hafa mig í eftirdragi, smákrakka og vælukjóa, en mér fannst svo gaman að vera með stóra bróður. Fótboltann áttum við svo saman síðustu árin. Horfð- um á enska og fylgdumst með Sel- fossi spila og landsliðinu. Seinna fluttum við upp að Íra- fossi. Þá varstu orðinn unglingur. Þóttir baldinn, varst prakkari og töffari. Fluttum aftur á Selfoss um ári síðar á Laufhagann. Þar ól- umst við upp þar til þú fluttir að heiman og stóðst á eigin fótum. Þaðan eru margar minningar og þar fórum við að ná meira saman. Svo liðu árin. Við unnum saman um stund í Steypuiðjunni og Set. Þú reddaðir mér þar sumarvinnu. Síðar fékk ég að reyna sjó- mennsku með þér. Ég entist stutt, 3 mánuði, þú um 30 ár. Þú byrj- aðir á sjó um 16 ára aldur. Varst kokkur mesta tímann þar. Það var alltaf gott í matarveislu hjá þér. Flest fórst þér vel úr hendi, bróð- ir. Þegar við vorum á þrítugsaldri fórum við saman á Costa del Sol. Okkar fjörugasti tími saman. Þú hrókur alls fagnaðar, fyndinn og endalaust fjörugur. Uppátækin þín þar fá mig enn til að brosa. Í sumar vorum við aftur saman er- lendis með eiginkonum. Það var yndislegur tími sem við Claudia erum þakklát fyrir að hafa átt með ykkur Hjördísi. Þú giftist og eignaðist börn. Fórst að vinna í landi. Lífið gekk sinn vanagang þar til þú greindist með krabbamein. Læknar töldu að þú hefðir 1 til 2 ár. Þau urðu 11, það erum við öll mjög þakklát fyr- ir sem og þú. Tíminn varð allt í einu svo miklu verðmætari, hver samverustund ómetanleg. Jafnvel orðin sem fóru á milli höfðu meira vægi en áður. Þetta voru lær- dómsrík ár, þú kenndir mér hvað skiptir máli, bróðir. Það var aðdáunarvert hvernig þú lifðir lífinu eftir þetta áfall. Þú hengdir ekki haus frekar en fyrri daginn. Hélst bara áfram af sama æðruleysi og einkenndi þig alltaf, staðráðinn í að nýta tímann sem best. Og það gerðir þú eins og annað sem þú ætlaðir þér. Skap- aðir minningar handa okkur hin- um. Þú hlífðir okkur oft og tíðum, hjálpsamur allt til enda. Kvartaðir ekki þótt þér liði illa, ef ég spurði þig um líðan og þú svaraðir, o mér líður einhvern veginn, þá vissi ég að það var slæmt, bróðir. Svona er þetta bara, sagðir þú. Elsku Steindór, ég mun alltaf minnast þín fyrir æðruleysi þitt, hugrekki, og þess jafnaðargeðs sem þú hafðir. Alltaf varstu sterk- ur, líka á dánarstund. Ég er stoltur að geta kallað mig bróður þinn. Þakklátur fyrir tímann sem við áttum saman og allt sem þú gerðir fyrir mig. Það verður tómlegt án þín. Ríkharður. Elsku bróðir. Það var drungi yfir landinu daginn sem þú kvadd- ir, vindurinn gnauðaði og bylurinn buldi á gluggum. Það var sorg í huga okkar sem sátum hjá þér. Þinn tími var á enda runninn, því gátum við ekki breytt. En þær eru systur sorgin og gleðin og það sem þú gafst okkur og skilur eftir þig er og verður áfram gleði okkar. Ég var á öðru ári þegar þú fæddist, lítill sólargeisli, ljós yfir- litum og ávallt glaður. Strax sem lítill patti varstu duglegur að bjarga þér og vorkenndir þér aldrei nema þegar þú varst þriggja ára, grátandi, einmana og kviðslitinn inni á sjúkrahúsi og mömmu bannað að heimsækja þig. Aðrar minningar um þig tengjast gleði enda oftast líf og fjör í kringum þig. Í haust dróstu eitt sinn fram myndaalbúm og sýndir mér. Æskuár okkar lifnuðu við. Fjör- ugir leikir, skemmtilegt fólk, tunnubátasmíði og jólin sem við fengum skautana. Við vorum sam- mála um að það hefði verið besta jólagjöf allra tíma. Þú elskaðir alltaf útiveruna og sem gutti lékstu þér úti frá morgni til kvölds. Ekkert truflaði, enginn hafði áhyggjur af því þótt við krakkarnir hyrfum tímunum saman, færum í tunnubátaferð, langar gönguferðir með vinunum upp að fjalli, í berjamó út yfir á eða í nærliggjandi sveitir að skoða dýrin. Í litla þorpinu okkar hafði fólk ekki áhyggjur nútímans. Við ræddum líka um fjölmörg skemmtileg fjölskylduferðalög og hvernig okkur systkinum var kennt að þekkja og meta náttúr- una og líðandi stund. Stundum var sungið, varðeldur kveiktur eða farið í gönguferðir en fyrst og fremst verið saman. Þetta tókstu allt með þér inn í fullorðinsárin og með Hjöddu þinni og krökkunum flakkaðir þú um landið, veiddir og naust stundarinnar. Þú vildir sem oftast hafa fólkið þitt í kringum þig. Þú varst dug- legur að hóa því saman við hin ýmsu tækifæri, hvort sem um var að ræða þín frábæru matarboð eða bara til að bjóða einhverju okkar að koma og horfa með þér á fótbolta eða handbolta í sjónvarp- inu. Svo varstu hjálpsamur fram í fingurgóma, fannst gaman að gleðja aðra. Þú varst ávallt fyrst- ur til að bjóða fram hjálp ef ein- hver þurfti, jafnvel framkvæmdir án orðalenginga. Eitt sinn mætt- irðu heim til mín með málningar- rúllu. Ég lá veik og þú vissir að ég hafði ætlað að mála. Þegar ég vaknaði var verkinu lokið. Jafnaðargeð þitt, æðruleysi, kjarkur og hversu auðvelt þú áttir með að njóta þess sem lífið bauð þér í stað þess að festast í erfið- leikunum var þín gæfa. Þess vegna áttir þú góð ár eftir að ólæknandi krabbi festi rætur í lík- ama þínum fyrir rúmum áratug. Þetta hefðir þú þó ekki getað nema vegna þess að við hlið þér stóð þín sterka og góða Hjödda, kletturinn í lífi þínu, konan sem þér þótt svo vænt um, börnin ykk- ar þrjú og seinna barnabörnin fjögur. Þið voruð samheldin fjöl- skylda og þau öll stolt þitt og gleði. Einnig var styrkur í vináttu ykkar bræðra, hugurinn sem þið báruð hvor til annars ómetanleg- ur fyrir báða. Kæri bróðir, að leiðarlokum þakka ég þér samfylgdina, við sjáumst þegar minn tími kemur. Dóra. Fallinn er nú frá elskulegur tengdasonur okkar hjóna, Steindór Sverrisson, eftir erfiða glímu við ill- vígan sjúkdóm. Baráttan stóð með stuttum hléum milli sigra og ósigra með tilheyrandi læknisaðgerðum og uppskurðum. Alla þessa raun stóðst Steindór með styrk og æðruleysi, miðlaði fjölskyldu og vinum af bjartsýni og von. Bauð til fagnaðar og ferðalaga með stórfjöl- skyldu og vinum, bæði innan lands og utan. Sorgin og missirinn mild- ast við þessar björtu minningar. Guð blessi góðan dreng. Far þú í friði. Ásgeir L. Guðnason og Þyri Axelsdóttir. Steindór Sverrisson  Fleiri minningargreinar um Steindór Sverrisson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elsku eiginkona mín og besti vinur, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG HRAFNSDÓTTIR, náms- og starfsráðgjafi, lést á Akureyri 10. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju 23. janúar klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Kristján Jósteinsson Sindri Kristjánsson Rannveig Magnúsdóttir Orri Kristjánsson Jónína Björt Gunnarsdóttir og ömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.