Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 15.01.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 Gæðavörur í umhverfisvænum umbúðum Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hollt, bragðgott og þæginlegt Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust Sölustaðir: Hagkaup, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúr Kaju Akranes 40 ára Atli er Akureyringur, fædd- ur þar og uppalinn. Hann er með meira- próf og hefur unnið við akstur mestalla ævina. Maki: Eva María Þrastardóttir, f. 1987, heimavinn- andi. Börn: Hrönn Kristey, f. 2000, Einar Ólafur, f. 2007, Bára Sóley, f. 2003, og Kristel Ragnheiður, f. 2014. Foreldrar: Jóngeir Magnússon, f. 1946, d. 2017, sjómaður, og Guðrún Björnsdóttir, f. 1953, vann ýmis störf. Hún er búsett í Reykjavík. Jón Atli Jóngeirsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Leitaðu að öruggum farvegi fyrir atorku þína en mundu að enginn er annars bróðir í leik. Samstarfsmenn þínir leggja sig fram og eru allir af vilja gerðir til þess að aðstoða þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er engin þörf á að reyna að vera klár eða hugsa hlutina upp á nýtt. Þú ert að læra mjög mikilvæga hluti þó að þér finnist eins og þú sért villtur í völundarhúsi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Forðastu að gagnrýna samstarfs- fólk þitt í dag og sættu þig ekki við ósann- gjarna gagnrýni frá því heldur. Kynntu þér málin vel og fáðu aðstoð ef þú ert í minnsta vafa um eitthvað. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt gaman sé að sjá hlutina ganga upp í starfi máttu ekki gleyma þínum nán- ustu, sem einnig þurfa á tíma þínum að halda. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Notfærðu þér þann hæfileika þinn að vera fundvís á galla í málsmeðferð annarra. Það ríður á miklu að þú missir ekki sjálf- stjórnina. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það liggur vel fyrir þér að gera ein- hvers konar umbætur eða sinna viðgerðum í vinnunni í dag. Von þín um viðurkenningu og frama í starfi er nú orðin að veruleika. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekkert er dýrmætara en heilsan, svo þú skalt varast að ofbjóða þér til sálar eða líkama. Tíminn hefur unnið með þér, svo allt reynist þetta auðveldara en þú bjóst við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vitirðu ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga skaltu fara eftir því sem hjartað segir þér því það skrökvar aldrei. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það leikur allt í höndunum á þér en þér myndi vegna allt betur ef þú hugsaðir áður en þú framkvæmdir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ef þú segir hvað þú vilt einu sinni verður auðveldara að gera það aftur og aft- ur. Baðaðu þig í sviðsljósinu því þú átt það skilið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú átt auðvelt með að sannfæra viðmælendur þína og átt því að notfæra þér það til hins ítrasta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur tekist ákveðnar skyldur á herðar og verður að standa við þær. Hugs- aðu eitthvað jákvætt um morgundaginn. eldgosum og núna síðast mislinga- faraldrinum.“ Óskar var síðan skipaður forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá áramót- um 2019, en Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er með nærri 700 starfsmenn í vinnu og er með rekstrareiningar á um 20 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta hefur verið mjög gefandi ár og það eru jákvæðir straumar í heilsugæslunni. Við höfum tekið að okkur viðbótarverkefni með meiri geðheilbrigðisþjónustu, meira samstarfi við Landspítalann í bráðaþjónustu og erum einnig far- in að sjá um heilbrigðisþjónustu í fangelsum svo eitthvað sé nefnt. Það er því mikil uppbygging í gangi og stjórnunarstörf eru alltaf skemmtileg á uppbyggingartíma.“ Fyrir ári var Óskar einnig skip- aður varaformaður ráðgjafar- nefndar Landspítalans. „Það gefur möguleika að koma að stjórnun bæði Landspítalans og Heilsu- gæslunnar og sjá möguleikana á auknu samstarfi okkur öllum til góðs. Sjúklingurinn er alltaf í önd- gæslu höfuðborgarsvæðisins árið 2016 eftir stutt stopp sem forstöðumaður Heilsugæslunnar í Árbæ. Samhliða því starfi var Ósk- ar heimilislæknir í hlutastarfi. „Þessum stjórnunarstörfum hef- ur svo fylgt að vera umdæmis- læknir sóttvarna og hefur virki- lega reynt á þar, t.d. í heims- faraldri inflúensu, jarðskjálftum, Ó skar Sesar Reykdals- son er fæddur 15. jan- úar 1960 í heimahúsi á Lyngheiði 8 á Selfossi. Það var æskuheimili hans og bjó hann þar hjá for- eldrum sínum til 16 ára aldurs en þá flutti hann til Reykjavíkur í nám. Óskar gekk í grunnskólann á Selfossi, varð stúdent 1980 frá Menntaskólanum við Sund, lauk prófi í læknisfræði frá HÍ 1986, fór þá til Svíþjóðar og lærði heim- ilislækningar og tók þar sérfræði- próf árið 1993 og fór í framhalds- menntun í stoðkerfisfræðum 1995. „Ég hef verið með slík námskeið í gegnum árin fyrir ýmsa hópa. Ég kenndi líka í HÍ samskiptafræði í stoðkerfishlutanum innan lækna- deildar. Ég tók svo meistarapróf frá Bifröst 2011 í stjórnun heil- brigðisþjónustu og fékk þá viður- kenningu sem sérfræðingur í þeim málum. Ég er þá með tvær sér- greinar.“ Óskar vann ýmis störf sem ung- lingur á sumrin áður en hann fór alfarið í heilbrigðisgeirann, m.a. í fiski, hjá Vegagerðinni og síðan nokkur sumur sem lögregluþjónn á Akureyri og í Kópavogi. Eftir læknanámið fór hann á Fáskrúðs- fjörð og var þar í eitt og hálft ár áður en hann tók kandídats- tímabilið. Eftir að hann varð sér- fræðilæknir vann hann í Falun í Svíþjóð, en þar var hann við nám. Hann vann síðan í sjö ár í Högbo Bruk, en þar er sérhæfð verkja- meðferð stunduð. Hann kom svo heim aftur og flutti á Selfoss árið 1996 og byrj- aði sem læknir á heilsugæslunni en síðan sem yfirlæknir og fram- kvæmdastjóri lækninga á Heil- brigðisstofnun Suðurlands við sameininguna 2004. Árið 2011 flutti Óskar til Reykjavíkur og vann að hluta til sem sérfræðingur í Velferðarráðuneytinu og að hluta á HSU. Árin 2014-2016 var hann framkvæmdastjóri Rannsóknar- sviðs Landspítalans og síðan fram- kvæmdastjóri lækninga við Heilsu- vegi og mikilvægt er að hafa slíkt að leiðarljósi.“ Áhugamál Óskars eru mörg. „Ég hef gaman af því að ferðast og nýt þess mest að vera innan um fjölskylduna, með börnunum mín- um og barnabörnunum. Ég hef mjög gaman af því að vinna í garð- inum, hann er stór og skemmti- legur og þar er ég alltaf eitthvað að smíða og vinna. Ég hef af- skaplega gaman af að vera úti í náttúrunni að ganga, skoða og njóta. Ég fer í ræktina og svo er notalegt að lesa góðar bækur, leysa sudoku, spjalla við vini og kunningja og fara í bíó.“ Fjölskylda Eiginkona Óskars er Bryndís Guðjónsdóttir, f. 12.10. 1959, fram- haldsskólakennari. Foreldrar hennar eru hjónin Guðjón Kristinn Pálsson, f. 3.10. 1924, rafvirkja- meistari, búsettur í Hveragerði, og Sigríður Bjarnadóttir, f. 13.6. 1929, d. 6.4. 2002. Þau ráku saman Rafmagnsverkstæði Guðjóns Páls- sonar í Hveragerði. Óskar S. Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins – 60 ára Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Við Gullfoss Óskar og Bryndís ásamt syni sínum, Guðjóni Reykdal lyfjafræðingi, en dætur þeirra þrjár eru læknar. Sjúklingurinn alltaf í öndvegi Forstjórinn Óskar hefur gegnt starfi forstjóra heilsugæslunnar í rúmt ár. Dagmar Ósk Helgadóttir á 50 ára afmæli í dag. Hún er fædd og uppalin á Akranesi. Foreldrar afmælisbarnsins eru Helgi Jónsson frá Akranesi og Björg Karlsdóttir frá Norðfirði. Dagmar gekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi, þar var hún alla tíð mjög virk í tóm- stunda- og félagslífi. En fótbolta spilaði hún aldrei. Dagmar byrjaði í Fjölbrautaskóla Vesturlands en útskrifaðist síðan frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og lauk einnig meistaranámi frá Iðnskólanum í Reykjavík. Í FB kynntist hún núverandi eiginmanni sínum, Kristni Ásgeirssyni. Þau eiga saman Önnu Marín, f. 1994, BA í spænsku, og Axel Orra, f. 2001, nema í Flensborgarskóla. Fjölskyldan bjó í 13 ár í Skanderborg í Danmörku þar sem Dagmar var með sjálf- stæðan atvinnurekstur. Dagmar Ósk er mikill frumkvöðull, framtakssöm og sum- arfreyja hjá Icelandair. Árnaðaróskum og kveðjum sinnir hún á samfélagsmiðlum, smáskilaboðum og í símtölum. Hún er að heiman í dag. Kristinn Ásgeirsson Árnað heilla 50 ára 30 ára Guðrún býr í Kópavogi og er fædd þar og uppalin. Hún er með stúdentspróf úr Menntaskólanum í Kópavogi og er leið- beinandi á leikskól- anum Marbakka. Maki: Helgi Fannar Valgeirsson, f. 1988, matreiðslumaður og vinnur í fiskversl- uninni Hafinu. Börn: Valgeir Fannar, f. 2014, og Sóldís Jóna, f. 2017. Foreldrar: Jón Örnólfur Steindórsson, f. 1961, múrarameistari, og Ágústa Magn- ea Jónsdóttir, f. 1962, ritari í Álfhóls- skóla. Þau eru búsett í Kópavogi. Guðrún Þorgerður Jónsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.