Morgunblaðið - 15.01.2020, Page 25

Morgunblaðið - 15.01.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 BORÐAPANTANIR 483 4700 | www.hverrestaurant.is OPIÐ 11:30–22:00 ALLA DAGA KOMDU VIÐ Í HVER Við tökum vel á móti þér. Girnilegur matseðill með réttum úr fersku, úrvals hráefni úr héraðinu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SEGÐU MÉR FYNDNA SKRÍTLU, HANN STOPPAR ÞIG EF ÉG HEF HEYRT HANA ÁÐUR.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar mér líður aðeins svona með þér. VERST AÐ KRÚTTHEIT ERU EKKI SMITANDI HVÍ SEGIRÐU ÞA… HEI! HANN MUN ALDREI ÞEKKJA ÞIG EFTIR AÐ SKEGGIÐ HEFUR SVIÐNAÐ AF ÞÉR! EKKI MÖGULEIKI!! ÉG MUN HITTA ÞIG FYRIR Í HELVÍTI, HRÓLFUR! „SÍMINN MINN SPRAKK. SEM BETUR FER VAR ÉG EKKI AÐ TALA Í HANN ÞEGAR ÞAÐ GERÐIST.” Börn Óskars og Bryndísar eru 1) Margrét Dís Óskarsdóttir, f. 10.4. 1981, sérfræðingur í barna- lækningum, með sérgrein í tauga- lækningum og stjórnun og starfar við Landspítalann. Eiginmaður er Jón Örn Friðriksson, doktor og sérfræðingur í þvagfæra- skurðlækningum á Landspítal- anum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þau eiga þrjú börn; 2) Sigríður Erla Óskarsdóttir, f. 28.9. 1983, sérfræðingur í augnlækningum, er í doktorsnámi í glákusjúkdómum og er yfirlæknir á Háskólasjúkra- húsinu í Malmö/Lundi í Svíþjóð. Eiginmaður er Jakob Olson, kokk- ur á veitingastað sem þau eiga og heitir Slaktaren i Lomma. Þau eiga tvo syni; 3) Guðrún Nína Óskarsdóttir, f. 27.10. 1987, doktor í brjóstholsskurðlækningum og er í sérfræðinganámi í lungnalækn- ingum. Eiginmaður er Árni Sæ- mundsson, sérfræðingur í þvag- færaskurðlækningum. Þau vinna bæði á Háskólasjúkrahúsinu í Malmö/Lundi. Þau eiga tvo syni; 4) Guðjón Reykdal Óskarsson, f. 1.5. 1991, lyfjafræðingur, er í doktorsnámi í líf- og læknavís- indum við HÍ og vinnur hjá Ís- lenskri erfðagreiningu. Hann er í sambúð með Priyönku Thapa, lyfjafræðingi hjá Lyfjum og heilsu. Bróðir Óskars er Magnús Ninni Reykdalsson, f. 18.5. 1970, sölu- maður hjá Íslenska gámafélaginu. Hann er búsettur á Selfossi. Foreldrar Óskars eru hjónin Margrét Ólafía Óskarsdóttir, f. 27.11. 1938, fyrrverandi stuðnings- fulltrúi, og Guðni Reykdal Magn- ússon, f. 28.3. 1935, fyrrverandi mjólkurbílstjóri. Þau eru búsett á Selfossi. Óskar S. Reykdalsson Margrét Ó. Óskarsdóttir stuðningsfulltrúi á Selfossi Sigurgeir Óskar Sigurgeirsson bóndi í Þykkvabæ Sigurgeir Gíslason bóndi í Þykkvabæ Hallfríður Sigurðardóttir húsmóðir í Þykkvabæ Filippía Filippusdóttir húsmóðir í Rifshalakoti, síðar á Rangá í Djúpárhreppi í Holtum Sigmundur Þorsteinsson bóndi í Rifshalakoti í Vetleifsholtshverfi , Rang. Sesselja Sigmundsdóttir húsmóðir í Þykkvabæ Þorsteinn Sigmundsson bóndi í Vestra- Fróðholti á Rangárvöllum og netagerðarmaður Grétar Þorsteinsson fyrrverandi forseti ASÍ Þórður Magnússon sjómaður á Stokkseyri Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir á Stokkseyri Á. Jónína Þórðardóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum K. Magnús Kristjánsson sjómaður í Vestmannaeyjum Kristján Þórðarson sjómaður í Vestmannaeyjum Guðný Elíasdóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Úr frændgarði Óskars S. Reykdalssonar G. Reykdal Magnússon mjólkurbílstjóri á Selfossi Hér er limra eftir Sigrúnu Har-aldsdóttur: Brúðhjónin Dunda og Dundi dvöldu um stund í Lundi Hún fékk sér bát húrrandi kát (er trúlega í Mið- flokknum) hann elti á hundasundi Davíð Hjálmar í Davíðshaga skrifaði í Leirinn á sunnudag: Veð- urfræðingar eru í öngum sínum, segja ómögulegt að spá vegna fjögurra óstýrilátra lægða um- hverfis landið. „Þær sópast að og sífellt eru á flökti“ sagði veðurfræðingur og snökti. „Skárra er að fást við harðar hægðir heldur en að spá um fjórar lægðir.“ Þetta minnir á stöku, sem Gunn- ar J. Straumland orti í síðustu viku með þessari skýringu: „Þetta er á Veðurstofu Hvalfjarðarsveitar. Veðurspá“: Mörsugi fylgir meinleg tíð og mæðinn veðrahamur sem eflaust verður, enn um hríð, umhleypingasamur. Ólafur Stefánsson vakti athygli á því, að það kom í fréttum að skýrslur sýndu Svía hafa flogið minna síðasta ár en árið áður. Þeir tala um „flyskam“ sem eina af ástæðunum. Íslendingar nota ann- að orð um fyrirbærið, „flug- viskubit“, sem er fyndið og hefur fest sig þótt langt sé. Svíar fengu flugviskubit, – það fært var í letur, og flugu minna (fólk sýndi lit) – en í fyrravetur. Áður hafði Ólafur rifjað upp að gefnu tilefni: „Einu sinni áttu þeir sr. Helgi Sveinsson og Jóhannes úr Kötlum að hafa komið fram á árshátíð í Hveragerði og kveðist á. Helgi kvað vísu og ýjaði að því að Jóhannes væri „línu-maður“ í póli- tík. Jóhannes svaraði: Á línum kannt þú svo lítil skil, að langbest þér væri að þegja. En innlína bæði og útlína’ er til, og Ólína, meira að segja. Salurinn hló, enda var sr. Helga Ólínunafnið hugstætt um þær mundir, og það vissi allt þorpið.“ Ármann Þorgrímsson segir skoðanakannanir eins og nátt- úrulögmál: Viðbrögð ótta virðast hörð vaknar þyngdar kraftur fylgir tungli flóð á jörð fjarar síðan aftur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af óstýrilátum lægðum og flugviskubiti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.