Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 32

Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 32
Anna Rún Tryggvadóttir mynd- listarkona opnar einkasýningu í menningarstofnuninni Kunstler- haus Bethanien í Berlín á morgun. Sýningarstjóri er Birta Guðjóns- dóttir. Anna Rún hefur sýnt víða um lönd á síðustu árum og er nú í eins árs vinnustofudvöl við stofnunina en íslenska ríkið hefur gert samn- ing um að íslenskir listamenn geti sótt þar um starfsdvöl og styrk. Sýnir í menningar- stofnun í Berlín MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Ég vissi að við værum með gott lið en að vinna Dani og slátra Rússum er kannski ekki alveg eitthvað sem maður átti von á. Ásýnd liðsins hef- ur líka komið mér á óvart og það hversu heilsteypt liðið er,“ segir Ás- geir Örn Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsmaður, meðal annars um handboltalandsliðið í viðtali um EM í blaðinu í dag. »26 Ásýnd liðsins hefur komið á óvart ÍÞRÓTTIR MENNING Vöruhönnuður- inn Valdís Steinarsdóttir er einn fimm ungra nor- rænna hönn- uða sem hafa hlotið tilnefn- ingu til sænsku hönnunar- verðlaunanna Formex Nova 2020. Valdís útskrifaðist frá vöruhönn- unardeild Listaháskóla Íslands árið 2017 og er sjálfstætt starfandi hönnuður með aðalfókus á til- raunakennt efnisval með áherslu á endurvinnslu lífrænna efna. Markmiðið með verðlaununum er að kynna og efla norræna hönnun og verður sigurvegari kynntur í ágúst. Tilnefnd til norrænna hönnunarverðlauna menn ekki lengi frá vinnu og þurfi ekki að fara út úr húsi. „Stjórnendur fyrirtækja hafa tekið þessu vel og starfsfólk upplifir mikla þjónustu,“ segir hún. „Mér finnst þetta skemmtilegur vinkill vegna þess að hreyfing er svo mikilvæg. Við erum sköpuð fyrir mikla hreyfingu og hreyfing á ekki að vera aukahlutur, að við þurfum að fara annað til þess að hreyfa okkur. Við þurfum ekkert nema okkur sjálf, það er kroppurinn sem talar.“ Eygló hefur stundað jóga frá 2008 og byrjaði að kenna jakkafatajóga árið eftir. Hún var bankastarfs- maður í hruninu og segir að jógað hafi verið haldreipi sitt. „Ég fann hvað jógað gerði mér gott,“ segir hún. „Ég laumaðist afsíðis til að gera jógaæfingar, fannst þetta frekar hallærislegt og vildi því ekki gera æfingarnar fyrir framan alla. Fljót- lega eftir hrunið fór ég í jóga- kennaranám án þess að hafa ætlað mér að fara að kenna, en það bara gerðist og eitt leiddi af öðru.“ Skömmu eftir að Eygló yfirgaf bankaheiminn kom hún þangað inn undir öðrum formerkjum. „Ég byrj- aði að bjóða þar upp á jakkafata- jóga,“ segir hún og bætir við að þá hafi ekki þurft að gera æfingar leng- ur í skúmaskotum. Skrif bókarinnar voru eins konar kennari Eyglóar. „Ég skrifaði hana til þess að leita uppi gleði í lífinu á ný. Ég missti vinkonu mína og fannst heimurinn ekki vera mjög sanngjarn. Í kjölfarið fór ég að leiða hugann að upplifunum sem enginn gæti tekið frá mér, og þessar stundir eru úti um allt ef maður leyfir sér að staldra við.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bókin #ómetanlegt eftir Eygló Egilsdóttur er komin út, en í henni fjallar höfundur um núvitundar- og jógaæfingar. „Æfingarnar eru í hæfilega litlum skömmtum fyrir byrjendur en nýtast öllum, þar sem þær leiða lesandann í gegnum heilan dag og falla vel að tímalínu dagsins,“ segir hún. Jóga og líkamsrækt er lifibrauð Eyglóar. Hún stofnaði Jakkafata- jóga 2009 og hefur síðan boðið upp á æfingar í fyrir- tækjum og stofnunum. Fyrir rúmu ári, 7. jan- úar 2019, stofnaði hún síðan þjálfunarstöðina Metabolic Reykjavík við Gullinbrú, sem er öllum opin undir handleiðslu þjálfara, en æfinga- kerfið er eftir Helga Jónas Guð- finnsson. Auk þess er hún í sam- starfi við Sigrúnu Haraldsdóttur í Happy Hips. „Öll hreyfing er góð og þótt æfingar okkar komi ekki endi- lega í staðinn fyrir aðra hreyfingu eru þær góð viðbót á hverjum vinnu- degi.“ Kroppurinn talar Áhugi á jakkafatajóga hefur auk- ist jafnt og þétt og Eygló býður upp á þjónustuna víða um land. „Ég er með hóp jógakennara með mér og við vinnum eftir ákveðinni forskrift. Ég legg línurnar og síðan vinnum við saman sem teymi.“ Hún leggur áherslu á að jakkafatajóga sé ein- mitt það; fólk geri æfingarnar án þess að þurfa að skipta um föt, þar sem er olnbogarými, hvort sem það er á fínum skrifstofum, í bílskúrum, mötuneytum eða fundarherbergjum. „Þessar æfingar eru streitulosandi og auka líkamsvitund. Iðkandinn lærir að þekkja sjálfan sig eins og í öllu jóga.“ Hún segir að þar sem lítill tími fari í æfingarnar séu starfs- Jakkafatajóga fyrir alla hvar sem er  Eygló Egilsdóttir með bók um núvitundar- og jógaæfingar Jógakennari Eygló Egilsdóttir hefur sent frá sér bók um jógaæfingar. Ljósmynd/Stúdíó Dís Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Útsalan er hafin 30-60% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.