Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.01.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  16. tölublað  108. árgangur  MARKAÐSSTARF ÍSLENDINGA Í ASÍU SKILAR SÉR KLAUFA- GANGUR Í LEIKHÚSI LANDFLÓTTA VEGNA HÖFUÐSLÆÐU SÝNING LOTTU 28 ÍRANSKIR SKÁKMENN 14MÁNUDAGSVIÐTALIÐ 11  Reiknað er með því að Kínverjum sem heimsæki Ísland muni fjölga mikið á næstu árum en búist er við að 130 þúsund Kínverjar muni heimsækja Ísland á þessu ári. Fari svo taka þeir fram út Þjóðverjum sem þriðji stærsti ferðamannahóp- urinn. 90 þúsund Kínverjar heimsóttu landið árið 2018 og gistu að jafnaði í sex nætur. Sarah Chu, sérfræðingur hjá sænska ráðgjafarfyrirtækinu Nordic Business House, segir Kín- verja verja tiltölulega löngum tíma hér, þeir skoði landið vel og eyði meiru af ferðapeningum sínum en gestir frá öðrum þjóðum. »12 Búast við 130 þús- und Kínverjum Margt má breytast til að frumvarp um hálendisþjóðgarð, sem Guð- mundur Ingi Guðbrandsson um- hverfisráðherra áformar að leggja fram á Alþingi, verði að lögum á vorþingi. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra og þingmaður Sunnlendinga. Hörð andstaða við þjóðgarðs- málið kom fram á kynningar- fundum sem umhverfisráðherra hélt á Suðurlandi í síðustu viku. Í Biskupstungum óttast fólk að missa yfirráð sín yfir afréttinum á há- lendinu og sveitarstjórnarmenn telja að skipulagsvald sveitar- stjórna verði skert. Þessum sjón- armiðum segir Sigurður Ingi mik- ilvægt að gefa gaum og sjálfur kveðst hann hafa sem ráðherra sveitarstjórnarmála lagt áherslu á styrkingu þess stjórnsýslustigs. „Við heyrum áhyggjur víða frá og þjóðgarður verður ekki stofn- aður nema í góðri sátt við íbúa. Kynning á málinu er nú í samráðs- gátt stjórnvalda og eðlilega verður umhverfisráðherra að taka mið af umsögnum þar og gagnrýnis- röddum sem heyrst hafa á kynning- arfundum.“ »4 og 14 Hlustað verði á gagnrýni  Lög um þjóðgarð varla sett í vor  Endurvinnslan hf. endurgreiddi 2,5 milljarða króna fyrir drykkjar- vöruumbúðir á liðnu ári. Alls var skilað 157 milljónum flaskna og dósa árið 2019 og eru áætluð skil um 85% af þeim umbúðum sem fóru á markað í fyrra. Miðað við núver- andi skilagjald hefur Endur- vinnslan endurgreitt um 41 milljarð þau 30 ár sem fyrirtækið hefur safnað flöskum og dósum. Helgi Lárusson, framkvæmda- stjóri, Endurvinnslunnar, segir að áldós verði að nýrri áldós á 60 dög- um. Við það sparist mikil orka og ekki síður hráefni. Ávinningur þess að endurvinna 85% umbúða sem skilað er nemi kolefnisjöfnun á við sjö milljón tré á ári. Orkusparnaður þess að endurvinna áldósir nemi orkuþörf um 12 þúsund meðal- stórra heimila á ári. »6 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Enduvinnsla Um 157 milljón dósum og flöskum var skilað til endurvinnslu. 2,5 milljarðar end- urgreiddir í fyrra „Við eigum að vera stolt af þessu og halda í þetta kerfi,“ segir Helgi Gunn- laugsson afbrotafræðingur um þá staðreynd að endurkoma fanga hefur ekki aukist frá því rafrænt eftirlit og aukin tækifæri til samfélagsþjónustu í stað fangavistar voru tekin upp hér á landi. Samkvæmt tölum Eurostat, hag- stofu Evrópusambandsins, var hlut- fallslegur fjöldi fanga á Íslandi árið 2017 sá minnsti í Evrópu, eða 39 fang- ar á hverja 100 þúsund íbúa. Til sam- anburðar er hlutfallið hæst í Litháen eða 232 á hverja 100 þúsund íbúa en næstlægsta hlutfallið er í Finnlandi þar sem 56 fangar voru árið 2017 á hverja 100 þúsund íbúa. Helgi segir að minni áhersla á fang- elsisvistun hafi gefist vel og að ekki hafi orðið vart við aukna brotatíðni í kjölfarið. „Finnar voru með talsvert hærri tíðni en hin löndin á Norður- löndum en tóku svo upp kerfi þar sem samfélagsþjónusta og rafrænt eftirlit gegna stærra hlutverki. Þar féll hlut- fall fanga án þess að hafa áhrif á af- brotatíðni. Segja má það sama um okk- ur. Þessar aðgerðir hafa ekki leitt til aukinnar brotatíðni,“ segir Helgi. »4 „Við eigum að vera stolt“  Hlutfall fanga á Íslandi það lægsta í Evrópulöndum Morgunblaðið/Eggert Fangelsi Hlutfallslega færri dvelja í fangelsi á Íslandi en í öðrum Evr- ópulöndum skv. tölum Eurostat. „Vel gert“ gæti Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, verið að hugsa á þessari mynd sem tekin var í Malmö í gær ef mið er tekið af handahreyfingunni. Ísland vann Portúgal 28:25 og nældi í sinn fyrsta sigur í milliriðlinum á EM. Fyrir aftan Guðmund er einn reyndasti maður mótsins, Brynjólfur Jónsson læknir, og yngri menn: Viktor Gísli Hall- grímsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson. »27 AFP Fyrsti sigurinn í milliriðlinum Ágúst Ingi Jónsson Rósa Margrét Tryggvadóttir Innheimt gjald í ofanflóðasjóð á tímabilinu 1998-2019 á verðlagi í des- ember 2019 nemur alls um 43,4 millj- örðum króna, samkvæmt upplýsing- um frá umhverfisráðuneytinu. Um 22 milljarðar hafa á þessum tíma far- ið í ofanflóðavarnir. „Þetta hefur alveg legið fyrir. Þetta er algjörlega óviðunandi,“ seg- ir Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aldís bendir á að hún ásamt fjöl- mörgum sérfræðingum hafi skrifað undir áskorun til ríkisstjórnarinnar í fyrra til að vekja athygli á þessari staðreynd og hvetja ríkisstjórnina til að láta fjármuni renna í ofanflóða- varnir. „Það er dapurlegt að það hafi ekki Algjörlega óviðunandi  43,4 milljarðar innheimtir í ofanflóðasjóð frá 1998 en 22 milljarðar hafa farið í varnir  Gleymum stundum hve hættuleg íslenska náttúran er, segir formaður SÍS Morgunblaðið/Árni Sæberg Vörn Aðeins um helmingur ofan- flóðasjóðs hefur runnið í varnir. MRúmir 43 milljarðar … »4 verið hlustað á þessa áskorun fyrr en núna þegar við verðum vitni að þess- um atburðum sem hafa átt sér stað,“ segir Aldís. „Því miður er náttúran á Íslandi þess eðlis að við gleymum því stundum hversu hættuleg hún getur verið og þá er hætt við að við sofnum á verðinum og setjum ekki nægilega fjármuni í nauðsynleg verkefni.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.