Morgunblaðið - 20.01.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020
Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði
Klippt & beygt
kambstál
fyrir minni og stærri verk
Reynsla | gæði | þjónusta
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Hertogahjónin af Sussex, Harry Bretaprins og
Meghan hertogaynja, munu framvegis ekki bera
konunglega titla sína og hætta að sinna opinber-
um konunglegum skyldum sínum í þágu konungs-
fjölskyldunnar. Af því leiðir að þau munu ekki
lengur þiggja opinbera fjármuni, og leitast eftir
því að verða fjárhagslega sjálfstæð. Þó er óljóst
hvað þau munu fást við, nú þegar þau hyggjast
dvelja jafnt í Kanada sem Bretlandi.
Elísabet drottning lýsti brottfalli konunglegra
titla hjónanna yfir í yfirlýsingu er út kom á laug-
ardaginn var. Óskaði hún þeim alls hins besta, og
gerði Boris Johnson forsætisráðherra slíkt hið
sama fyrir hönd Bretlands í gær.
„Harry, Meghan og Archie munu ávallt vera
hluti af fjölskyldunni og okkur öllum kær,“ sagði í
yfirlýsingu drottningarinnar.
Hertogahjónin munu ekki nota konunglegu titl-
ana sem skammstafaðir eru HRH, sem stendur
fyrir „yðar konunglega hátign.“ Frá og með vor-
inu verða þau kölluð Harry, hertoginn af Sussex
og Meghan, hertogaynjan af Sussex. Svipar
ákvörðunin til þess þegar Díana prinsessa skildi
við Karl prins, árið 1996.
Hjónin munu dvelja í Frogmore-húsinu áfram
samhliða dvöl í Kanada og hyggjast þá borga til
baka kostnað vegna endurbóta á húsinu, sem áður
hafði verið greiddur með opinberu fé. Kostnaður-
inn hljóðar upp á 2,4 milljónir punda sem nemur
tæplega 390 milljónum íslenskra króna. Þau munu
einnig greiða leigu fyrir húsnæðið.
Fyrrverandi konunglegi fréttaritarinn Dickie
Arbiter, tjáði fréttamiðlinum The Sun í gær að
enginn meðlimur konungsfjölskyldunnar hefði
nokkurn tímann endurgreitt skattfé.
Þá hefur Harry einnig verið sviptur hern-
aðarlegum titlum sem hann ávann sér eftir að
hafa þjónað breska hernum í tveimur leiðöngrum
til Afganistans.
Hjónin tilkynntu í byrjun janúar að þau vildu
draga sig út úr konunglegum störfum. Kom yfir-
lýsingin Elísabetu drottningu á óvart og birtist
örstuttu síðar yfirlýsing frá embættismönnum
drottningarinnar í Buckingham-höll þess efnis að
málið væri á byrjunarstigi.
Enn er mörgum spurningum ósvarað, til dæmis
hvað hjónin munu fást við eftir þessar breytingar
á högum þeirra.
Trúlofast. Meghan hættir að leika
Hittast gegnum sameiginlegan vin
2011
2000-11
Giftist kvikmynda-
framleiðandanum
Trevor Engelson
Fær lykilhlutverk
í sjónvarps-
þáttunum Suits
15. september 1984
Fæðist í London
2004
Starfar á munaðar-
leysingjahæli í Lesotho
2005-06
Herþjálfun
í Sandhurst
Vekur hneykslan
þegar hann klæðist
nasistabúningi á
grímuballi
Janúar 2005
Nóv. 2017
Maí 2019
Október 2019
Brúðkaup íWindsorkastala
Sonur, Archie, fæðist
Stefna fjölmiðlum fyrir dóm fyrir„linnulausan áróður“.
Harry viðurkennir ósætti við Vilhjálm bróður sinn
Janúar 2020
Ná samkomulagi við drottninguna um að afsala sér
opinberum skyldum, titlum og fjárframlögum
19. maí, 2018
2007, 2012
Gegnir herþjónustu
í Afganistan
Stofnar Invictus
íþróttaleika fyrir
særða hermenn
2014
2013
Skilur
Starfar
fyrir Sameinuðu
þjóðirnar
4. ágúst 1981
Fæðist í Los Angeles
Fyrirsæta og þjónn
Nemur leiklist
og alþjóða-
samskipti í
Northwestern
háskóla
Heldur úti vinsælu
lífsstílsbloggi
1997
Harry prins
6. í erfðaröð bresku krúnunnar
MeghanMarkle
Hertogaynja af Sussex
Júlí 2016
Faðirinn er ljósameistari í
sjónvarpi, móðirin félags-
ráðgjafi og jógakennari
Yngri sonur Karls krónprins Breta
og lafði Díönu Spencer
Díana lést
í bílslysi
Engir titlar og engar skyldur
Hertogahjónin afsala sér titlum sínum og hætta opinberum embættisstörfum
Fram kemur í
skjölum sem hef-
ur nú verið lekið
að Isabel dos
Santos, auð-
ugasta kona Afr-
íku, hafi eignast
öll sín auðæfi
með því að arð-
ræna þjóð sína.
Santos kom að ýmsum arðbærum
viðskiptum, meðal annars með olíu
og demanta þegar José Eduardo
dos Santos, faðir hennar, var for-
seti Angóla. Í skjölunum sem var
lekið kemur fram að Santos og eig-
inmaður hennar hafi keypt ýmsar
eignir ríkisins í viðskiptum sem
breska ríkisútvarpið, BBC, segir af-
ar vafasöm. Santos segir sjálf að
ásakanirnar séu falsaðar og hluti af
herferð angólskra stjórnvalda gegn
sér. Santos býr nú í Lundúnum þar
sem hún á fjölmargar fasteignir.
Málið er rannsakað sem sakamál
í Angóla og hafa eignir Santos þar í
landi verið frystar.
AFRÍKA
Ríkasta kona Afríku
arðrændi þjóð sína
75 fangar sluppu
úr fangelsi í aust-
urhluta Paragvæ
nærri landamær-
um Brasilíu.
Yfirvöld grunar
að fangarnir hafi
sloppið út um að-
alinngang fang-
elsisins með að-
stoð fangelsisvarða. Jarðgöng sem
höfðu verið grafin í fangaklefa
fundust við rannsókn málsins, en
yfirvöld telja að göngin séu yfir-
hylming og að föngunum hafi verið
sleppt vísvitandi. Talið er að fjöl-
margir af strokuföngunum tilheyri
stærstu skipulögðu glæpa-
samtökum Brasilíu, PPC.
Euclides Acevedo, innanríkis-
ráðherra Paragvæ, segir ljóst að
fangarnir nutu aðstoðar starfs-
manna fangelsisins við flóttann og
hefur dómsmálaráðherra landsins
fyrirskipað að fangaverðir fangels-
isins verði reknir og handteknir.
SUÐUR-AMERÍKA
75 fangar flúðu með
hjálp fangavarða
Lögfræðiteymi Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta hefur opinberað
málsvörn forsetans við ákæru á
hendur forsetanum til embættis-
missis.
Í málsvörninni segir að ákæran sé
„hættuleg árás á rétt bandarísku
þjóðarinnar til að velja sér forseta og
móðgun við stjórnarskrána“. Pat Ci-
pollone, lögfræðilegur ráðgjafi Hvíta
hússins, fer fyrir lögfræðiteyminu
sem er einnig skipað Jay Sekulow,
persónulegum lögmanni Trumps,
Alan Dershowitz, sem þekktastur er
fyrir að verja ýmsa fræga einstak-
linga í gegnum tíðina, og Kenneth
Starr, en hann er þekktastur fyrir að
hafa verið saksóknari í ákæru
Bandaríkjaþings á hendur Bill Clin-
ton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
árið 1998.
Trump er sakaður um að hafa látið
frysta neyðaraðstoð til Úkraínu í því
skyni að þrýsta á stjórnvöld þar í
landi að rannsaka demókratann Joe
Biden og son hans Hunter Biden.
Joe Biden býður sig fram sem for-
setaefni í forkosningum Demókrata-
flokksins og verður mögulega and-
stæðingur Trumps í komandi
forsetakosningum. Trump er einnig
ákærður fyrir að reyna að hindra
framgang rannsóknar fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings, sem ákærði for-
setann.
„Þetta er ósvífin og ólögmæt til-
raun til að snúa við niðurstöðu for-
setakosninganna 2016 og til að hafa
áhrif á kosningarnar í ár,“ segir í
málsvörn forsetans.
Ákæran var send til öldungadeild-
arinnar sl. miðvikudag og verður
tekin fyrir á þriðjudag. Repúblikan-
ar eru með meirihluta í öldunga-
deildinni og gætu því sýknað forset-
ann innan hálfs mánaðar.
„Hættuleg árás“
á lýðræðið
Málsvörn Donalds Trumps opinberuð
AFP
Ákæra Trump er ákærður fyrir að
hindra framgang réttvísinnar.