Morgunblaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.01.2020, Blaðsíða 27
EM 2020 Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska landsliðið hefur ekki sagt sitt síðasta orð á Evrópumóti karla í handknattleik. Í gær vann Ísland lið Portúgals 28:25 í milliriðli II og náði í sín fyrstu stig í milliriðlinum eftir tvo tapleiki í röð. Portúgölum hafði hins vegar gengið flest í haginn því liðið vann geysilega óvæntan sigur á Frökkum í riðlakeppninni og fylgdi því eftir með stórsigri á Svíum í milliriðl- inum. Íslendingar voru þó miklu einbeittari í upphafi leiks og gáfu tóninn með því að komast í 4:0 og 7:1. Fyrsta mark Portúgals kom eft- ir tæplega tíu mínútna leik. Vörn íslenska liðsins heppnaðist mjög vel gegn Portúgal í gær og sóknarleikur Portúgala var oft vandræðalegur. Á EM sést vel hversu misjafnlega hentar að spila á móti mismunandi mótherjum. Portúgalar voru í vandræðum gegn ágengri vörn Íslendinga en fyrir nokkrum dögum léku Slóvenar sér að því að fara í gegnum hana. Leik- skilningur portúgölsku leikmanna er ekki á jafn háu stigi og hjá þeim slóvensku. Hinir lágvöxnu og snöggu Slóvenar lentu svo í vand- ræðum gegn Ungverjum í gær og töpuðu þá gegn hávöxnum og sterk- um leikmönnum. Ungu mennirnir standa sig Í síðari hálfleik reyndu Portúgal- ar að spila 7 á móti 6 eins og þeir gera svo oft. Hefur það reynst þeim mjög vel á EM en íslenska vörnin réði mjög vel við það verkefni í gær. Réði það úrslitum í síðari hálfleik. Eins og áður eru Elvar Örn Jónsson og Ýmir Örn Gíslason í mikilvæg- ustu hlutverkunum í vörninni. Að- eins 22 ára gamlir leikmenn og ekki sérlega þungt í þeim pundið. Öllu al- gengara er að sjá reynslubolta í miðri vörn hjá toppliðum í íþróttinni en Elvar og Ýmir hafa komist mjög vel frá sínu. Fyrir þeim virðist vera jafn eðlilegt að leika á stórmóti eins og Englendingum þykir að hafa Yorkshire pudding með sunnudags- steikinni. Janus Daði Smárason hefur átt góða spretti í sókninni á mótinu og hann sprakk virkilega út í gær. Dró hann vagninn í markaskorun og skoraði 8 mörk í tíu skottilraunum. Náðu hann, Aron Pálmarsson og Al- exander Petersson mjög vel saman. Alexander átti góðan leik í vörn og sókn og Aron skoraði mikilvæg mörk í seinni hálfleik. Þá skoraði fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson fimm mörk úr fimm skotum. Björgvin Páll Gústavsson lék all- an leikinn í markinu og stóð sig vel með 12 skot varin og 35% mark- vörslu. Góð vörn íslenska liðsins gerði það einnig að verkum að portúgalska liðið tapaði boltanum ellefu sinnum í leiknum án þess að koma skoti á markið. Ungverjar breyttu stöðunni Eins og fram hefur komið eru tvö sæti í boði fyrir Evrópuþjóðir inn í undankeppni Ólympíuleikanna. Eru það tvö síðustu sætin sem í boði eru. Danir eru komnir inn á leikana sem heimsmeistarar. Evrópuþjóðirnar sem komnar eru í undankeppnina eru Frakkland, Spánn, Króatía, Þýskaland, Noregur og Svíþjóð. Í okkar milliriðli eru því Slóvenía, Ungverjaland og Portúgal einnig að keppa um að komast í undankeppn- ina. Í hinum milliriðlinum eru það Austurríki og Hvíta-Rússland sem eru í 4. og 5. sæti í milliriðli I með 2 stig. Margt á því eftir að gerast áður en þessi mál skýrast en eftir sig- urinn í gær er ekki öll nótt úti hjá ís- lenska liðinu. Liðið þarf þó að vinna bæði Noreg og Svíþjóð í síðustu tveimur leikjum sínum til að eiga raunhæfa möguleika. Norðmenn eru á mikilli siglingu og þeim mæta okkar menn á morg- un. Verður það afar erfiður leikur en Noregur er á toppnum í riðlinum með 6 stig. Norðmönnum hefur gengið illa að landa sigri gegn Ís- lendingum á stórmótum og vonandi taka þeir ekki upp á því að breyta því á morgun. Svíar eru hins vegar nokkuð frá sínu besta, sérstaklega í sókninni, og spurning hversu vel þeir verða stemmdir þegar kemur að leiknum gegn Íslandi. Fyrsta tap Slóvena Ungverjar urðu fyrstir til að vinna Slóvena á EM þegar liðin mættust í gær. Ungverjaland hafði betur 29:28 og liðið reif sig upp eftir skell gegn Norðmönnum. Slóvenar og Ung- verjar eru þá með 4 stig hvort lið og eru tveimur stigum á eftir Noregi. Í síðustu umferð mætast Noregur og Slóvenía sem gæti orðið áhugaverð rimma. Bence Banhidi átti frábæran leik fyrir Ungverja og skoraði níu mörk úr tíu skotum. Þá varði Ronald Mi- kler níu skot í marki Ungverja og var með 30% markvörslu. Jure Dole- nec var markahæstur Slóvena með átta mörk í þrettán skotum. Svíar sem leika undir stjórn Krist- jáns Andréssonar eru án stiga á botni milliriðilsins eftir tap gegn Norðmönnum í síðasta leiknum í gær 23:20. Svíar misstu af tækifæri til að setja riðilinn í algert uppnám. Hefðu Svíar unnið hefðu öll liðin í riðlinum verið með annað hvort 4 eða 2 stig. Svo fór þó ekki og Norð- menn voru yfir allan leikinn. Náðu fimm marka forskoti nokkrum sinn- um en hristu Svíana aldrei almenni- lega af sér. Þegar tvær mínútur voru eftir fengu Svíar tækifæri til að minnka muninn niður í eitt mark en brenndu þá tvívegis af dauðafærum. Þeir fóru illa með mörg dauðafæri í leiknum og brenndu til að mynda af tveimur vítaköstum. Sander Sagosen var markahæstur hjá Noregi með 8 mörk en Lucas Pellas skoraði 5 mörk fyrir Svía. Sáu við Portúgölum  Eftir tvö töp í röð kom sigur hjá Íslandi á EM  Sóknir Portúgala voru oft vandræðalegar gegn íslensku vörninni  Enn möguleiki á sæti í undankeppni ÓL Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Vippa Guðjón Valur Sigurðsson svífur inn úr horninu og skorar eitt fimm marka sinna í Malmö í gær. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2020  Knattspyrnumennirnir Ingvar Jóns- son markvörður og Atli Barkarson eru gengnir til liðs við Víking í Reykjavík og gerðu báðir samning til þriggja ára. Ingvar, sem er þrítugur að aldri, var í EM-hópi Íslands árið 2016. Ingvar kemur frá Viborg í Danmörku og Atli frá Fredrikstad í Noregi.  Hlauparinn Trausti Þór Þorsteins náði besta árangri Íslendings frá upp- hafi í míluhlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 4:05,58 mínútum í hlaupi sem fram fór á Staten Island í New York í Bandaríkjunum í gær. Trausti varð í öðru sæti í hlaupinu en hann keppir fyrir Wagner College. Trausti bætti sinn besta árangur í greininni um tæpar tvær sekúndur og þá bætti hann árangur Hlyns Andr- éssonar frá árinu 2017 um tuttugu hundraðshluta úr sekúndu.  Snjóbrettakappinn Marinó Krist- jánsson hafnaði í 5. sæti í brekkustíl (slopestyle) í Evrópubikar í Vars í Frakklandi í gær. Er þetta besti árang- ur sem Íslendingur hefur náð í Evrópu- bikar sem er næststerkasta mótaröð í heimi. Marínó fékk 72 FIS-stig inn á heimslistann fyrir árangurinn. Er hann í 10. sæti í stigakeppni mótarað- arinnar í brekkustíl.  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, landsliðskona í handknattleik, átti mjög góðan leik fyrir Bourg-De-Péage sem vann eins marks heimasigur gegn Besancon 25:24 í frönsku 1. deildinni. Hrafnhildur var markahæst í liði Bourg-De-Péage með fimm mörk.  Snorri Einarsson, landsliðsmaður í skíðagöngu, var meðal keppenda í heimsbikarnum í Novo Mesto í Tékk- landi en þar náði hann sínum besta ár- angri í vetur. Aðstæður voru krefjandi en Snorri hafnaði engu að síður í 35. sæti, aðeins 14 sekúndum frá 30. sæt- inu sem er síðasta sætið til að gefa heimsbikarstig.  Birkir Bjarnason lék sinn fyrsta leik fyrir Brescia í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu er liðið gerði 2:2-jafntefli við Cagliari á heimavelli. Mario Balo- telli, samherji Birkis, fékk rauða spjaldið í leiknum.  Jón Daði Böðvarsson skoraði fyrir Millwall þegar liðið vann hans gamla lið, Reading, 2:0 í ensku B-deildinni í knattspyrnu. Var þetta fyrsta mark Jóns fyrir Millwall í deildinni.  Landsliðsmiðherj- inn Tryggvi Snær Hlinason lék vel í sigri Zaragoza á Gran Canaria 81:62 í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Skoraði hann 13 stig fyrir Zaragoza, varði 3 skot, tók 4 fráköst og gaf 2 stoð- sendingar. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Geysisbikar karla, 8-liða úrslit: Dalhús: Fjölnir – Keflavík ................... 19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Þór Ak .... 19.15 MG-höllin: Stjarnan – Valur................ 19.15 Ice Lagoon-höll: Sindri – Grindavík ........ 20 Geysisbikar kvenna, 8-liða úrslit: Hertz-hellir: ÍR – Skallagrímur.......... 19.15 Í KVÖLD! Kúluvarparinn Erna Sóley Gunn- arsdóttir setti nýtt Íslandsmet í greininni innanhúss þegar hún kastaði kúlunni 16,19 metra á há- skólamóti í Houston í Bandaríkj- unum um helgina. Erna keppir fyr- ir Rice University en hún bætti Íslandsmet Ásdísar Hjálmsdóttur frá árinu 2017 um 23 sentimetra. Fyrir gærdaginn átti Erna best 16,13 metra utanhúss í greininni og hún var því að bæta sinn besta ár- angur. Erna er aðeins 19 ára gömul en hún fékk meðal annars brons- verðlaun á EM U20 ára í fyrra. Íslandsmet hjá Ernu í Houston Ljósmynd/FRÍ Met Erna Sóley Gunnarsdóttir gæti náð langt í kúluvarpinu. Íslenska U20 ára landslið karla í ís- hokkí er komið upp um deild á HM eftir 4:1-sigur á Ástralíu í úrslita- leik 3. deildarinnar í Búlgaríu í gær. Ísland vann alla fimm leiki sína á mótinu og leikur í 2. deild B á næsta ári. Axel Snær Orongan fór á kostum á mótinu og var markahæstur og með flestar stoðsendingar allra. Skoraði hann átta mörk og gaf átta stoðsendingar í fimm leikjum. Axel skoraði tvívegis í úrslitaleiknum en Heiðar Gauti Jóhannsson og Heiðar Örn Kristveigarson skoruðu einnig. Atkvæðamestur allra á mótinu Ljósmynd/Íshokkísamband Rúme Markahæstur Axel Snær Orongan fór mikinn í Búlgaríu. Malmö Arena, EM karla, milliriðill II, sunnudag 19. janúar 2020. Gangur leiksins: 0:3, 1:5, 3:8, 7:11, 10:11, 12:14, 15:16, 18:19, 20:22, 22:23, 23:25, 25:28. Mörk Portúgals: António Areia 4/1, Miguel Martins 4, Fábio Magalhaes 3, Alexandre Cavalcanti 3, Diogo Branquinho 2, Joao Ferraz 2, Luís Frade 2, Rui Silva 1, Fábio Antunes 1, Alexis Borges 1, Daymaro Salina 1, Belone Moreira 1. Varin skot: Alfredo Quintana 11. PORTÚGAL – ÍSLAND 25:28 Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Íslands: Janus Daði Smárason 8, Guðjón Valur Sigurðsson 5, Alex- ander Petersson 5, Aron Pálmarsson 5, Bjarki Már Elísson 2/2, Arnór Þór Gunnarsson 1, Sigvaldi Björn Guð- jónsson 1, Ólafur Guðmundsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Václav Horácek og Jirí Novotný, Tékklandi. Áhorfendur: 6.199.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.