Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 7
vel um ökumann í akstri, en hann nýt- ur þess að auki að hafa helstu nútíma öryggistæki sér til aðstoðar, eins og veglínuskynjara og slíkt. Ágætur hiti er í sætum, en hitinn í stýrinu, sem er aufúsugestur á okkar ísakalda landi, fannst mér ekki nógu jafn allan hringinn. Útsýni yfir upplýsingakerfið sem er á skjá í miðri innréttingunni er gott, en kerfið er þó aðeins rýrari að virkni og innihaldi en í mörgum öðr- um bílum. Til dæmis er ekki hægt að stjórna þar loftræstingunni, sem er í staðinn á hefðbundnum stað fyrir neðan. Hanskahólfið er viðunandi að stærð, og hægt er að smeygja auka flöskum í hólf í hurðum. Lét vel að stjórn Ef maður vill losna við símann úr vasanum er hægt að skutla honum í hleðslu í miðjuna, aftan við gírstöng- ina, þar sem USB-tengi er til staðar. Í akstri er ekki hægt að kvarta yfir neinu. Viðbragðsflýtirinn var ágætur, bíllinn lét vel að stjórn, og veghljóð var lítið. Það var gaman að gefa hon- um inn, og hann lá vel í beygjum. Ég fór með dætur mínar í bíltúr og þær nutu sín ágætlega í aftursætinu. Meira að segja fannst þeim bíllinn dá- lítið hlýlegur, enda er afturrýmið ekki mjög stórt, rúður litlar og skyggðar, sem gerði allt pínu kósí. Boðið er upp á lyklalaust aðgengi að bílnum, og þegar hurðin er opnuð sést vörumerkið, Toyota C-HR, lýsa upp gangstéttina, sem gleður og kæt- ir og gerir bílferðina enn skemmti- legri en ella. Mælaborðið er einfalt og smekk- legt og hægt að skruna í gegnum ýmsa valmöguleika í miðju þess. MORGUNBLAÐIÐ | 7 Reki ehf Sími: 562 2950 Höfðabakka 9 110 Reykjavík Netfang: tryggvi@reki.is Vefsíða: www.reki.is BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL SÆTA Í HVERS KYNS VINNUTÆKI FRÁ UNITEDSEATS. 2013 2018 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Bíllinn er að mörgu leyti óvenjulegur útlits. Ljósin að framan eru lítið eitt breytt frá síðustu árgerð. Smávægilegar breytingar hafa orðið á afturhluta bílsins. Bílar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.