Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 hafa verið töluvert fyrir því haft að koma bassahátalara hljóðkerfisins þannig fyrir í afturhluta bílsins að hann saxaði ekki mikið á farang- ursrýmið. Í skottinu er pláss fyrir 536 lítra af farangurstöskum, inn- kaupapokum eða heimilishundum – mesta rýmið í stærðarflokknum, seg- ir Renault. Þarf að fá frið fyrir börn- unum í aftursætinu? Auðvitað er Renault þá búið að hugsa fyrir því að þau geti stungið snjalltækjunum í hleðslu, með tvær USB-innstungur á áberandi og aðgengilegum stað. Kaupandinn getur síðan lagað bíl- inn að eigin smekk; ellefu litir eru í boði auk fjögurra lita fyrir þakið svo að allt talið mætti útfæra lita- samsetningarnar á 90 mismunandi vegu. Að innan eru samtals 18 sam- setningar í boði og ef það er ekki nóg má fá stemnings-lýsingu með 8 litum. Þeir sem panta sér Captur þurfa því ekki að hafa miklar áhyggjur af því að fara bílavillt á planinu við Smára- lind. Captur þarf ekki að skammast sín fyrir nokkurn hlut Ég verð að játa að ég hef gert allt of lítið af því að aka bílum í sama flokki og Captur og var árið 2019 ár kappakstursbíla, stórra þýskra dreka og lúxusbifreiða á efstastigi. Á undan Captur kom Rolls-Royce Cullinan, þá BMW M850i blæjubíll, Porsche Ta- ycan rafmagns-sportbíll, Rolls-Royce Phantom og kappakstursbrautarleik- fangið Radical. Í vélinni á leiðinni til Aþenu hugsaði ég með mér að það hlyti að vera hálfósanngjarnt fyrir fjöldaframleiddan franskan alþýðubíl að fylgja í kjölfarið á annarri eins halarófu af bílum, því það gæti ekki annað verið en að haf og himinn væri á milli 100 milljóna króna lúxuskerru og fransks smájepplings sem byrjar í tæpum 3,4 milljónum. En viti menn: Capturinn þarf ekki að skammast sín fyrir nokkurn hlut. Viðbragðið er prýðilegt, aksturs- upplifunin hreint ágæt, og í alla staði fjarskagóður bíll fyrir bæði ökumann og farþega. Fantafínn franskur ferðafélagi. Það segir heilmikið um hvað Capt- ur hefur fram að færa að ég átti í mesta vanda með að finna eitthvað í fari hans til að láta fara í taugarnar á mér. Eftir mikla leit, bæði að innan sem utan, var það eina sem ég gat kvartað yfir að lykillinn mætti vera þyngri. „C’est rien!“ eins og Frakk- arnir myndu orða það. Ef það versta sem hægt er að segja um bíl er að lykillinn er laufléttur, þá ættu hönnuðir Renault að vera nokk- uð öruggir með það að halda starfi. Heilræði véfréttarinnar Á spani um gríska sveitavegi, inn- an um musteri og minjar, leitaði hug- urinn til sagnfræðitímanna í mennta- skóla, og grísku heimspekinganna sem reikuðu um þessar sömu sveitir fyrir um 2.500 árum. Ég minntist vís- dómsorðanna sem rituð voru á veggi musteris véfréttarinnar í Delfí, og áttu að vera góðu fólki leiðarvísir fyr- ir lífið. Nýlega hringdi ég til gamans ég í fornmáladeild Háskóla Íslands til að athuga hvort vísdómsorðin hefðu ekki örugglega verið þýdd á íslensku – eitthvað sem Bjarni Thorarensen hefði rúllað upp á einni kvöldstund. Viti menn að vísdómsorðin virðast ekki hafa verið þýdd og gæti það út- skýrt ýmislegt í fari Íslendinga. Flestir hafa heyrt, einhvern tím- ann á lífsleiðinni, um mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig, en færri kann- ast við að hafa verið minntir á hve brýnt það er að heiðra heimilið, vera vinum sínum hjálpsamur, lofa það sem gott er, vera réttlátur í athöfnum sínum, og virða góða menn. Ef forn- leifafræðingar myndu grafa sig niður á grískt musteri inni í miðri Öskjuhlið þá myndu þeir í besta falli finna þar eftirfarandi áletranir: Þetta reddast og Liffa og njóta. Alltént, þá virðast hönnuðir Re- nault Captur hafa tileinkað sér heil- ræði véfréttarinnar: Notaðu það sem þú hefur, nýttu hæfileika þína, virtu sjálfan þig, hlýddu á það sem allir hafa að segja, gerðu það sem þú ætl- ar þér að gera. Útkoman er þessi afskaplega vel heppnaði bíll. Hann er meira að segja væntanlegur í tengiltvinn-útgáfu. Umhverfi ökumanns er snyrtilegt og hæfilegt magn af tökkum. Lykilinn má geyma í litlu hólfi á milli framsætanna, þar sem hann smellpassar. Stór skjárinn snýr lóðrétt en ekki lárétt, sem bætir upplýsingagjöf. Skottið er nógu rúmgott og risastórt ef sætin eru felld niður. Ótal vel heppn- uð smáatriði gera Renault Captur að huggulegum hversdagsbíl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.