Morgunblaðið - 21.01.2020, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður m.a. upp á
nýtt ökumannshús með góðu
aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
• Hnappur sem losar glussaþrýsting á tengjum
Breski sportbílasmiðurinn Morgan hefur
ákveðið að stíga það skref að brúka ál í
undirvagn og burðarvirki bíla sinna í stað
stáls.
Verður stálundirvagninn kvaddur fyrir
fullt og allt árið 2020, og tekur CX-
Generation álramminn þá við. Kemur
fyrsti bíllinn byggður upp af honum, Morg-
an Plus Six, á götuna á árinu.
Undirvagn Morgans hefur verið meira
og minna óbreyttur að uppbyggingu frá
árinu 1936. Á honum sitja bílar eins og
Morgan 4/4, Plus 4 og V6 Roadster.
Hinn splunkunýi undirvagn CX-
Generation er á síðustu stigum þróunar áð-
ur en hann leysir stálbotninn hefðbundna
af hólmi.
Morgan mun bjóða m.a. upp á sjálfskipt-
ingu í nýja undirvagninum og vélar þeirra
verða smærri í sniðum, en Plus Six-bíllinn
er t.a.m. með þriggja lítra sex strokka rað-
hreyfil.
Á bílasýningunni í Genf í mars sl. kynnti
bílsmiðurinn Morgan Plus Six með álund-
irvagni. Hlaut bíllinn góðar viðtökur bæði
hjá fjölmiðlum og bílkaupendum og er það
að stórum hluta rakið til undirvagnsins.
Morgan segir CX-Generation tvöfalt
stífari en fyrri álundirvagn sem fyrirtækið
hefur byggt, Aero 8 og annarrar kynslóðar
Plus 8-módelin. Mikið var lagt upp úr því
að létta rammann með þeim árangri að
hann vegur aðeins 97 kíló. Er tómaþyngd
Plus Six-bílsins því komin niður í 1.075 kíló.
agas@mbl.is
Álið í
staðinn
fyrir
stálið
Morgan ætlar einvörðungu
að brúka ál í undirvögnum
bíla sinna, í stað stáls.
Nær á myndinni er bíll með
CS-Generation undirvagn-
inum og fjær má sjá Morg-
an með stálundirvagni.